Sá eldri Engill Þór. Sá fæddist 1. september 2001 kl 8:53 í keflavík. Hann var 14 merkur og 53cm.



MEYJAN
23. ágúst - 22. september

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.


Sá yngri Þórður Davíð. Fæddur 30 Apríl 2007 Kl 9:20 í Keflavík. Hann var 11 merkur og 50cm.



NAUTIÐ

20. apríl – 21. maí

Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. “Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?” Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.



Foreldrar okkar eru Halla Guðbjörg og Sigurjón Veigar. Þau eru ung og spræk og hafa fulla orku í okkur!!!!!!!!
Við erum búsett í Vogunum á vatnsleysuströnd. Eigum við þar í bæ einnig ömmu og afa sem kallast Afi Toggi og Amma Mæja. Þau eru foreldrar mömmu og er ekkert sem jafnast á við að fara í skemmuleik hjá Afa Togga og gott djús hjá ömmu Mæju.
Pabbi kemur frá Grindavík og eigum við þar Ömmu og Afa sem Kallast Amma Kristín og Afi Doddi. Gott er að skreppa yfir í Grindavíkina og fá dekur og leiki. Einnig eigum við tvo frændur þar Sem heita Siggi og Raggi og er alltaf hægt að treysta á að þeir sjái manni fyrir hasar!!!!
Hundurinn á heimilinu Heitir Hummer og er af tegund Bullmastiff. Hann er góður bangsi sem passar uppá að allt sé í lagi með alla og er svo ljúfur og góður.
Á Akureyri á ég fósturbróðir sem heitir Kristján og er alltaf gaman þegar hann kemur til okkar og hlakkar okkur alltaf til að fá hann heim í Voga.




Kristján Gabríel bróðir okkar


Frænkurnar í DK


Bjarki frændi okkar



Fyrir mæður drengja!!!


Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit.

Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi.

Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá,

fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá.

Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu,
Viska með tuggugúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum.
Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir,
orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra.

Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar,
viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað
til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi.
Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn

(í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla,

laugardagsmorgna og brunabíla.
Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur,
spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma.
Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann.
Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja
feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu,
og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann.
Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni
þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann
burtu úr skrifstofunni þinn, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga
þér.
Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi
og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með
allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með
tveim töfraorðum - "Halló mamma!"







Þú ert gestur nr. 47397