![]() |
| *Guðbjörg Sól* |
|
|
Ég er fædd á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þann 21. september 2004 klukkan 10:02. Þegar ég fæddist var ég 4060 gr (16 merkur) og 54 cm. Hárið var mikið og dökkt, og mamma segir að ég sé fallegasta barn sem hún hafi nokkurtíman augum litið. Þetta var ekki bara merkisdagur fyrir okkur mömmu, því að þennan sama dag eignuðust báðar lang-ömmur mínar sín fyrstu börn. Þannig að Inga stóra systir ömmu og Matti stóri bróðir afa eiga líka afmæli þennan dag. Daginn sem ég fæddist nefndi mamma mig Guðbjörg Sól. Mamma mín heitir Fríða Hrönn Halldórsdóttir og pabbi minn heitir Sindri Óskarsson. Pabbi minn á fullt af börnum mig, Óskar Alex stóra bróðir minn og yngri systkyni mín Herborgu og Teit, þau eiga síðan systir sem heitir Silja Elsabet. En ég er svo heppin að ég bý með mömmu hjá Ágústi frænda, Guðbjörgu Erlu og Emilíönu Erlu elsku litlu prinsessunni MINNI! Við búum í Kópavoginum* Nöfnin mín þýða! Guðbjörg merkir: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "björg" sem merkir hjálp. Sól merkir: Nafn þetta er komið af nafnorðinu "sól". Ég fékk nöfnin mín frá Guðbjörgu ömmu og konu sem heitur Sigrún Sól sem mamma þekkir, mamma ákvað að skíra mig eftir þeim því þær eru svo góðar konur og nöfnin þeirra svo björt og falleg. |
|
|
|
Ég hef aldrei lofað að brautin sé bein, og gullskýldir blómstígar alla leið heim. Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar á göngunni löngu til himinsins borgar. En lofað get ég þér aðstoð og styrk og alltaf þér ljósi þó að leiðin sé myrk. Mundu svo barn mitt að lofað ég hef að leiða þig sjálfur hvert einasta skref. |
| Þú ert gestur nr. 32630 |