![]() |
| VIÐ ERUM SYSTURNAR SARA ÍSFOLD 12 ÁRA OG AUÐUR 6 ÁRA |
|
|
Um mig:
Ég heiti Sara Ísfold og fæddist á Akureyri þann 04.04 1998
klukkan 10.10. Ég lét bíða lengi eftir mér eða bara alveg eins lengi og ég gat :) Ég bý á Akureyri með Evu Dögg mömmu minni, Konna fósturpabba mínum og litlu systur minni henni Auði. Pabbi minn og Helga konan hans eiga svo heima í Reykjavík með bróður mínum Kristjáni Mána og Soffíu Hrönn litlu systur. Svona er ég rík. Ég er í 7. bekk í Naustaskóla. Ég heiti Auður og ég fæddist á Akureyri þann 25.11 2004 klukkan 13.06 með hraði. Eins og Sara stóra systir lét ég líka bíða eftir mér eins lengi og ég gat en læknarnir sögðu við mömmu og pabba að startarinn í mömmu væri bilaður :) Ég bý á Akureyri með Pabba mínum, Mömmu minni og Söru stóru systur. Í haust byrjaði ég í skóla og finnst það mjög gaman. Skólinn minn heitir Naustaskóli. |
|
|
Annað:
Takk fyrir að heimsækja okkur systur |
| Þú ert gestur nr. 13101 |