Ég heiti Aron Gabríel :)


Um mig:


Ég kom í heiminn föstudaginn 22. október 2004 kl. 11:42. Fæðingin gekk mjög vel og mamma var rosa ánægð með mig og segir að ég sé algjört krútt sem er náttúrulega alveg hárrétt hjá henni.
Ég fæddist með dökk dökk brún augu og rosa mikið dökkt hár :) Karlmaður í lagi sko ;)

Mamma mín heitir Valdís og pabbi minn heitir Daníel og við búum öll saman í Grafarholtinu þar sem fer voða vel um okkur.







Annað:
Knúsi Knús




BARN Í VOGINNI



Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangurn getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja:" Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.



Nafnið mitt

Aron

Nafn úr biblíunni. Aron var bróðir Móse og talsmaður hans. Nafnið er líklega af hebreskum uppruna "has-on" sem merkir hinn sterki.

Gabríel

Nafn þetta er biblíunafn komið úr hebresku og merkir hetja guðs.
Gabríel er einn helsti af englum guðs og af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverkið.
Gabríel var erkiengill sem sagði Maríu mey að hún myndi eignast Jesús.




Lilypie 5th Birthday Ticker









Þú ert gestur nr. 18845