| Óskar og Lúkas Hrafnssynir | |
|
|
Verið velkomin á heimasíðu okkar bræðra. Við erum miklir vinir, bestu bræður í heimi:)
|
|
|
Um okkur:
Óskar fæddist 27. október 2004 og er fyrsta barn pabba og mömmu. Hann var 15 merkur og 51 sm þegar hann kom í heiminn. Skolhærður, með smá rauðum tón og ljósblá augu. Allt gekk voða vel og fékk hann að fara heim strax að hitta hundinn sinn. Óskar er sterkur og duglegur strákur sem hefur mjög gaman af lífinu og tilverunni. Skemmtilegast er að fá að leika sér úti eða inni, fótbolti gannislag við bróðir sinn og pabba. Lesa(skoða bækur), æfa sig að skrifa. Óskari er mjög duglegur að öllu leyti, finnst gaman að segja brandara og leggur hann sig oft mikið fram við að koma öðrum að hlæja-yndislegur að öllu leyti, fullkominn. Á daginn er Óskar á leikskólanum sínum sem heitir Reynisholt og líður honum rosalega vel þar enda yndislegar stelpurnar sem sjá um hann.
Lúkas kom í heiminn 4. júlí 2007. Hann var 16 merkur og 51 cm. Hann er með gulllitað hár og himinblá augu. Þetta gekk allt nokkuð vel fyrir sig og fórum við fljótlega heim eftir stutta dvöl á Hreiðrinu. Lúkas er stór, sterkur og brosmildur strákur. Það allra besta er að vera með stóra bróðir enda er hann ótrúlega þolinmóður og góður við Lúkas. Mamman, pabbi eru skemmtileg líka en bróðir er langbestur. Fótbolti, hnoðast við stóra bróðir og pabba er frábært. Leika með Bubba byggir dót, turtles, leika með bíla sérstakelga gröfur,honum þykir mjög gaman hnoðast með bróðir og pabba sínum, leika inni, úti, horfa á Dóru, Turtles eða Latibær, lesa bækur og helst leika með stóru strákadót. Hann er mjög duglegur að öllu leyti, borða, leika, hlæja og reynir mikið að gleðja og koma fólki til að hlæja eins og bróðir sinn, alveg einstaklega gaman að vera með þeim bræðrum. Lúkas er byrjaður á leikskólanum reynisholti og líður honum einstaklega vel þar. Foreldrar okkar eru alveg afskaplega stoltir af okkur og elska okkur meira en allt í heiminum. Takk fyrir að kíkja á okkur og allar góðu kveðjurnar, okkur þykir voðalega vænt um þær. Endilega skrifið í gestabókina, takk fyrir ; |
|
|
|
|
Annað:
Foreldrar mínir heita Hrafn Þórðarson (73) og Berglind Sigurðardóttir (78)
Sigurður Örn frændi minn og Sonja Margrét frænka mín eru með líka með heimasíður, kíkið á þær. Svo á ég fullt af vinum sem gaman er að heimsækja: Andri Ísak og Tómas Logi Antonía Eir og Sindri Björn Arngunnur Vala Árnheiður Ásta Tómas Charlie Garyson Ísey og Hrafnkell Eva María og Auður Ýr |
|
| Þú ert gestur nr. 37228 |