Ég heiti Sigríður Björg og er 5 ára skvísa!!


baby

Um mig:
Ég fæddist á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 13. september 2004 kl 23:20.
Ég fæddist akkúrat viku eftir áætlaðan fæðingardag og var 3160gr (12,5 mörk) og 49cm,
sem sagt lítil og sæt stelpa.
Mamma mín heitir Soffía og pabbi minn Steini.
Ég og mamma búum saman í Reykjavíkinni en erum nánast allar helgar í sælunni hjá ömmu og afa á Skaganum ;o)

Ég er skírð í höfuðið á ömmum mínum. Sigríður var mamma hans pabba og Björg er mamman hennar mömmu minnar.
Það eru allir rosalega ánægðir með nafnið mitt og finnst ég bera það vel ;o)


Nafnið mitt þýðir:

Sigríður
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Sig" sem leiddur er af nafnorðinu "sigur" og viðliðnum "ríður" sem merkir falleg, - umhygglusöm.

Björg
Hjálp, - að bjarga.






Þetta er uppáhaldsmyndin hennar mömmu. Þarna er ég 6 daga gömul.






Annað:


23. ágúst - 22. september


Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.







Halldóra Soffía
Emilía Rós
Brynjar Bjarmi
Sandra Dögg
Júlía Sara
Guðrún Björk
Sylvia og Ísabella
Bergur
Arnar



Þú ert gestur nr. 44719