Huginn Heiðar Guðmundsson.






Um mig ofurkrúttið...

Ég fæddist 18. nóvember 2004 á sjúkrahúsinu í Keflavík. Strax eftir fæðinguna kom í ljós að ég var mikið veikur og var fluttur á barnaspítala Hringsins. Þar barðist ég í 14 daga fyrir lífinu. Þann 14. desember fannst hvað var að mér. Ég var með alvarlegan lifrarsjúkdóm sem heitir Risafrumulifrarbólga. Til þess að fá bata þurfti ég að fá nýja lifur og var ný lifur grædd í mig 17. maí 2005 á Children's Hospital of Pittsburgh. Mamma mín var svo mikil hetja að hún gaf mér hluta af sinni lifur til að ég gæti lifað áfram. Aðgerðin gekk mjög vel og hefur nýja lifrin virkað fullkomlega. Eftir aðgerðina greindist ég með interstitial lungnasjúkdóm og er enn að kljást við hann.

Á fyrstu tveim árum ævi minnar var ég 94 daga heima hjá mér, en 636 daga á sjúkrahúsi.

Ég var skírður þann 27. nóvember á Vökudeildinni, mér var gefið nafnið Huginn Heiðar. Hægt er að lesa um líf mitt, sjúkrasöguna og ýmislegt fleira á vefdagbókinni.





BÖRN LÆRA ÞAÐ SEM ÞAU BÚA VIÐ

Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.







Þú ert gestur nr. 699568