|
| Við heitum Einar Húmi og Katla Fönn |
|
|
Um mig:
Einar Húmi var ekkert að drífa sig í heiminn, lét mömmu og pabba bíða í næstum því tvær vikur. Hann kom í heiminn föstudaginn 21. desember klukkan 7:47. Það voru tvær frábærar ljósmæður sem tóku á móti honum. Þær vigtuðu hann og var hann 4230g. Síðan sendu þær hann í ferðalag á barnadeildina sem er hinum megin á FSA. Einar Húmi var ekki mældur á lengdina fyrr en hann var orðinn tveggja daga gamall. Þá mældist hann 55cm. Við höldum að ég hann ekkert stækkað á barnadeildinni, þannig að sennilega var hann 55cm þegar hann kom í heiminn. Einar Húmi var með þónokkuð dökkt hár þegar hann fæddist en missti það mjög fljótt - þegar það kom aftur var það ljóst. Einar Húmi var rosalega líkur pabba sínum þegar hann fæddist og er það enn. Pabbi minn heitir Valur Mörk og mamma mín heitir Erla Rán. Pabbi átti heima fyrir austan en mamma átti heima fyrir vestan, og núna eigum við öll heima fyrir norðan
|
|
|
|
Annað:
Ég er með svo litlar hendur ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir farðu þér hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt. Ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég tala við þig þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar ekki alltaf vera að skamma mig. Leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið elskaðu mig bara fyrir að reyna.
|
| Þú ert gestur nr. 121217 |