|
| Við heitum Hrefna María og Kolbeinn Óli |
|
|
Um okkur:
Hrefna María fæddist 28. október 2004. Hún var nú ekkert að flýta sér í heiminn þó svo að hún hefði ákveðið að koma þremur dögum fyrir áætlaðan fæðingardag! Mamma og pabbi komu upp á fæðingardeild rétt fyrir miðnætti á miðvikudag og ég kíkti svo á þau klukkan 14:07 á fimmtudag, það vantaði ekki prinsessustælana í hana! En fæðingin gekk alveg ofboðslega vel þó svo hún hafi tekið svona langan tíma!
Hrefna María var 51 cm. og 13 merkur þegar hún kom í heiminn með mikið dökkt hár og dökk augu sem núna eru orðin brún eins og pabbi var búinn að spá! Kolbeinn Óli fæddist 4. júní 2007. Hann átti ekki að fæðast fyrr en 16. júní en ákvað að þetta væri bara orðið ágætt í mömmubumbu. Það voru allir mjög ánægðir með það. Fæðingin hans gekk mun hraðar fyrir sig en hjá stóru systur. Mamma og pabbi komu upp á sjúkrahús um hálf ellefu á sunnudagskvöldi og litli bróðir fæddist svo klukkan 2:50 um nóttina. Allt gekk alveg rosalega vel. Litli bróðir var 50 cm. og tæpar 12 merkur þegar hann kom í heiminn. Hann var með lítið ljóst hár og blá augu. Ekki mjög líkur stóru systur en alveg jafn yndislegur! Mamma okkar heitir Berglind Júlíusdóttir og pabbi okkar Haraldur Reinhardsson. Við búum öll á Húsavík.
Til þín Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til
ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA Áður en ég varð mamma borðaði ég matinn á meðan hann var heitur, gekk í hreinum fötum og gat spjallað í rólegheitunum í símann. Áður en ég varð mamma gat ég farið seint í háttinn, sofið út um helgar, greitt mér daglega og gengið um íbúðina án þess að stíga á leikföng. Áður en ég varð mamma velti ég því aldrei fyrir mér hvort pottaplönturnar á heimilinu væru eitraðar. Áður en ég varð mamma hafði enginn kúkað, pissað eða ælt á mig. Áður en ég varð mamma hugsaði ég skýrt, hafði fullkomið vald yfir líkama mínum og tilfinningum og svaf alla nóttina. Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei haldið grátandi barni föstu til þess að læknir gæti sprautað það eða tekið úr því blóðprufu. Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei brostið í grát við að horfa í tárvot augu og þekkti ekki þá hamingjuflóðbylgju sem getur sprottð af einu litlu brosi. Áður en ég varð mamma sat ég aldrei langt fram á nótt og horfði á barn sofa eða hélt á sofandi barni vegna þess að ég tímdi ekki að leggja það frá mér. Áður en ég varð mamma vissi ég ekki hvað ein lítil vera getur haft mikil áhrif á líf manns og hversu óendanlega sárt það er að geta ekki kippt öllum vandamálum í lag. Áður en ég varð mamma vissi ég ekki að ég gæti elskað svona heitt og hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri. Áður en ég varð mamma þekkti ég ekki þetta einstaka samband móður við barn sitt og gleðina sem fylgir því að gefa svöngu barni brjóst. Áður en ég varð mamma vaknaði ég ekki tíu sinnum á nóttu til þess að aðgæta hvort allt væri ekki örugglega í lagi. Áður en ég varð mamma hafði ég ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum, sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir því að eiga barn
PABBI ER MAÐURINN.... Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og annað fólk. Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI
MAMMA ER KONAN.............. Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum, og lagað til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar gaman er að vera til. MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI |
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 27177 |