|
| |
|
|
Um mig:
Ég fæddist á Landspítalanum sunnudaginn 19. september 2004 kl. 22:58,
sjö vikum fyrir áætlaðan fæðingardag. Ég var 2033gr. (8 merkur) og 45cm. Mamma mín heitir Rakel Heimisdóttir og pabbi minn heitir Atli Sveinn Jónsson. Ég er mikil afa og ömmu stelpa og ég er svo lánsöm að eiga 5 ömmur og 6 afa. Mamma er búin að skipta um lykilorð á síðunni minni, þeir sem verða duglegir að kvitta í gestabókina fá nýja lykilorðið :)
|
|
|
|
Annað:
Ekki slá á hendurnar á mér þegar
Ég snerti eitthvað fallegt Ég skil það ekki Horfðu á mig þegar ég tala við þig Þá veit ég að þú ert að hlusta Ég hef viðkvæmar tilfinningar Ekki vera alltaf að skamma mig Leyfðu mér að gera mistök Án þess að mér finnist ég vitlaus Ekki búast við því að myndin sem ég teikna Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið Elskaðu mig fyrir að reyna Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera Stundum skil ég ekki það sem þú segir Ég elska þig svo mikið Elskaðu mig bara fyrir að vera ég Ekki fyrir eitthvað sem ég geri ----------
Þú getur ekki kennt barni þínu að hugsa um sjálft sig nema þú leyfir því að reyna að bjarga sér. Barnið mun gera mistök, en af mistökunum lærir það. Það besta sem þú eyðir í barnið þitt er tími! Börn veita því frekar athygli sem þú gerir en þess sem þú segir. Börn eru óútreiknanleg. Þú veist aldrei hvenær þau munu standa þig að verki í að vera ósamkvæm(ur) sjálfum þér. ---------- Það geta allir orðið feður og mæður en það eru bara sumir sem verða pabbar og mömmur ----------
Bara í dag... -ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og brosa þegar mig langar frekar til að gráta... -ætla ég að leyfa þér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúin fyrir nýjan dag... -ætla ég að leyfa þér að velja hvað föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu... -ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll... -ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt... -ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur... -ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann... -ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór... -ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd... -ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær aftur þegar þú sérð ekki til...
Vikar Máni Rebecca Lísbet Sól og Elísa Andrea Marín Matthildur Sigurgeir Andri Þórey Arna Gísli Alexander Andrea Dís
|
| Þú ert gestur nr. 17968 |