![]() |
| Við erum krílinn hjá Sif dagmömmu okkar á daginn:) |
|
|
Um mig:
Á Freyjukoti er gaman, þar leika allir saman ,bæði úti og inni og allir eru með,hnoða,lita og kubba þið ættuð bara að vita hvað allir eru duglegir í Freyjukoti hér. Við erum á Hringbraut 110 101 Rvk :) Allt fullt en nóg laust í haust :) |
|
|
Annað:
Dagskipulag 8-9 við mætum með foreldrum okkar og morgunmatur 9:30-10 frjáls leikur 10 útivera 11:30 hádeigismatur 12:30 út að sofa 14:30 eru fyrstu að vakna 15:00 eru allir vaknaðir og við fáum okkur mjólk og brauð 15:30-16:30 frjáls leikur þar til við erum sótt bleyjuskipti kl 12 og kl 15:30 og svo auðvitað eftir þörfum
Eftir hundrað ár skiptir ekki máli hvernig bankareikningurinn minn stóð. hvernig húsi ég bjó í eða hvernig bíl ég átti en ef til vill er veröldin ekki söm vegna þess að ég skipti máli í lífi barns.
Boðorðin 10 fyrir foreldrana 1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau. 2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem ?krakkann". 3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín. 4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það. 5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir. 6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau. 7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán. 8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki. 9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til 10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ! Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku. Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi. Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd. Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði. Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust. Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna. Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni. Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark. Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu. Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.
Hvað er kærleikur??? kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur kærleikur, er hvert bros sem þú gefur kærleikur, er að faðma þann sem grætur Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast kærleikur, er að bera umhyggju fyrir öllu sem lifir kærleikur er að biðja fyrir öllum, góðum og slæmum kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra kærleikur er að dæma ekki kærleikur er ljósið sem býr í hjarta þínu.......
|
| Þú ert gestur nr. 19089 |