Velkomin á heimasíðuna mína
Ég heiti Margrét Fríða Hjálmarsdóttir og er 8 ára, ég bý í Grindavík. Ég er fótboltastelpa.


Um mig:
Ég fæddist 25. nóvember 2000. Á laugardegi kl. 14:10 á Landspítalanum í Reykjavík eftir mikil átök í Keflavík og allt á fullu í sjúkrabíl sem endaði með bráðakeisara, ég var 16 og 1/2 mörk og 53 cm. Ég er með drúnt hár og græn/blá/grá augu.

Mamma mín heitir Jóna Rut Jónsdóttir og Pabbi minn heitir Hjálmar Örn Erlingsson. 10. febrúar 2004 eignaðist ég tvíbura systkini sem heita Viktor Örn og Rebekka Rut. Það er búið að vera mikið fjör á heimilinu síðan.






Annað:
Hér er heimasíða litlu tvíburanna minna

Viktor Örn og Rebekka Rut


Vinir, skólasystkini og ættingjar;
Elva Rut litla dúllan mín
Thelma Ósk og Kamilla Rós
Ciara Margrét





BOGMAÐURINN

22. nóvember - 21. desember


Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.








Barn færir ykkur endalausar gjafir, nýja ánægju og nýtt
undrunarefni á hverjum degi.





Dóttir mín



Elsku yndislega dóttir mín.

Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.

En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.

Mig langar til að segja þér hug minn.

Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.

Þú ert mér allt.

Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.

Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.

Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.

Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.

Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.

Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.

Ég reyni að meta þig að verðleikum.

Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.

Hvar væri ég án þín?

Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu.






Takk fyrir komuna, mundu eftir að skrifa í gestabókina ;)



























Þú ert gestur nr. 11182