Velkomin á heimasíðuna okkar, og ekki gleyma gestabókinni.
Við erum tvíburaranir Rebekka Rut og Viktor Örn


Um mig:
Við fæddumst 10. febrúar 2004. Vorum tekin með keisara.

Við eigum heima í Grindavík og eigum eina stóra systir sem heitir Margrét Fríða. Hún er 7 ára.
Mamma okkar heitir Jóna Rut og pabbi heitir Hjálmar Örn.




Annað:

Við erum á leikskólanum Krók.
Rebekka Rut er á Bláabergi og Viktor Örn er á Grænuhlíð.



Hér er heimasíða stóru systir okkar
Margrét Fríða

Hér eru heimasíður vina og ættingja sem vert er að heimsækja:

Elva Rut litla dúllan okkar

Jón Fannar og Lára
Tómas Darri
Dóra Snædís
Nicolas Örn
Laufey Lind
Ásdís Hidur
Aníta Ólöf
Helga Rut







Vatnsberinn

20. janúar - 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.







ELSKU MAMMA OG PABBI...

Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.

Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.

Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna.








ÞÚ ERT LÍKLEGA MÓÐIR



...ef þú felur þig inni á baðherbergi til að geta verið ein smástund.

...ef þú hefur verið í trimmgalla alla helgina.

...ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu
...og þér er alveg sama.

...ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu en að þú fáir ótruflaðan 8 tíma svefn.

...ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í einu.

...ef þín skilgreining á góðum degi er að halda fötunum frá sulli og óhreinindum.

...ef þú þværð barninu í framan með munnvatnsbleyttum þumalfingrinum.

...ef þú gerir ósjálfrátt tvöfaldan hnút á allt sem þú hnýtir.

...ef þér finnst góð lyktin af soðnum gulrótum með eplamauki.

...ef þú ert farin að kaupa morgunkorn með sykurpúðum.

...ef þér tekst að setja ólíkar tegundir matvæla á disk, án þess að nokkrar þeirra snertist.

...ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti, af því að það er það eina sem barnið borðar.

...ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita og leyfir öðrum að borða af disknum þínum.

...ef þú segir setningar eins og:
"ekki setja pastað í nefið á þér...!""

...ef þú telur skrautsykursmolana á hverjum kökubita svo allir fái jafnt.

...ef þú velur veitingastaði eftir gæðum barnamatseðilsins og dótinu sem fylgir með.

...ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi, hefur ekki tíma til að borða (hvað þá að drekka eða fara á klósettið) og samt tekst þér að þyngjast um 5 kíló!

...ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins og:
"Ekki skrifa á vegginn!"
"Ekki nota köttinn fyrir fjall!"
"Nei, skrifborðið á ekki að vera í sófanum!"
"Hættu að toga í hárið á systur þinni"
"Bíddu aðeins á meðan ég næ í þráðlausa símann, ég þarf að skipta á barninu/gefa barninu að borða/ finna barnið!!"

...ef þú nærð að hlaupa í gegnum alla íbúðina (og um leið setja barnið í stólinn sinn, hoppa yfir tvö öryggishlið, velta þremur taukörfum, hrasa um leikfang, hundinn og bolta á ganginum) og svara símanum áður en kviknar á símsvaranum. Um leið hefur þú öðlast réttindi til þáttöku í fjölþraut og átt góða möguleika á að vinna gullið!

..ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli, en fyllist skelfingu ef allt er hljótt.

...ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir: "Nei, ekki þegar þú ert í sparifötunum!"

...ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi móður þinnar á þér og syskinum þínum.

...ef þú ert farin að raula barnalög yfir uppvaskinu.

...ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum þínum og eyðir svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gengur heima.

...ef þú segir á hverjum degi: "Ég er ekki rétta manneskjan í þetta starf" en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við nokkurn annan!











Þú ert gestur nr. 13593