Annað:
***** Einkaréttur barna *****
Ef mér finnst það flott, þá á ég það.
Ef ég held á því, þá á ég það.
Ef ég næ því frá þér, þá á ég það.
Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það.
Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt.
Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana.
Ef það líkist dótinu mínu, þá á ég það.
***** Elsku barn *****
Ást mín verður með þér,
Hvenær sem þú þarfnast hennar.
Ást mín verður með þér,
Þegar gleðin ber þig ofurliði.
Ást mín verður með þér,
Þegar erfileikarnir eru að buga þig.
Ást mín verður með þér,
Þegar þú óttast lífið.
Ást mín verður með þér,
Í dag og alla aðra daga.
Til þín
Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund
hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til
M&P
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.
Barnið snýr sér að Guði og segir:
- Mér var sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun: en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
- Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla,og hann bíður eftir þér.
Þessi engill mun sjá um þig.
- En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en
að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur.
- Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur.
- En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
- Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur tíma heyrt, og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
- En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
-Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja
- Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
-Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.
- En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar.
-Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísar þér veginn í
áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
-Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir
heyrðust, og barnið sagði:
-Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér; Hvað heitir engillinn
minn?
-Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ?Mömmu?
BÖRNIN MÍN
Elsku yndislegu börnin mín.
Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar
mínar.
En nú langar mig til að segja ykkur hvað ég elska ykkur mikið.
Mig langar til að segja ykkur hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið ykkur inn í líf
mitt.
Þið eruð mér allt.
Þið eruð súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að
lifa.
Hamingjan mín hófst með komu ykkar í þennan heim.
Í dag horfi ég á ykkur og er hissa á því hvað þið eruð raunveruleg.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið ykkur inn í líf mitt, og
að fá að hafa ykkur mér við hlið í gegnum lífið.
Þið eruð gullin mín, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af ykkur í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta ykkur að verðleikum.
Þið hafið kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði
farið á mis við.
Hvar væri ég án ykkar?
Ég elska ykkur elsku börnin mín, nú og að eilífu.
|