Annað:
ÞAÐ SEM BÖRN LÆRA AÐ BÚA VIÐ
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lætir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mild, lærir þolgæði.
Það bar sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska
ELSKU MAMMA OG PABBI
Ég er með svo litlar hendur Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni
Fæturnir á mér eru svo stuttir. Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir.
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt Ég skil það ekki Horfðu á mig þegar ég tala við þig Þá veit ég að þú ert að hlusta
Ég hef viðkvæmar tilfinningar Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök Án þess að mér finnist ég vitlaus
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið Elskaðu mig fyrir að reyna Mundu að ég er barn, ekki fullorðin Stundum skil ég ekki það sem þú segir Ég elska þig svo mikið Elskaðu mig bara fyrir að vera ég Ekki fyrir eitthvað sem ég geri
Boðorðin 10- Fyrir foreldra
1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau.
2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem "krakkann".
3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín.
4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það.
5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir.
6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau.
7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán.
8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki.
9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til
10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði.
|