| Velkomin í heimsókn til mín!! |
| Ég heiti Katla Rún Káradóttir |
|
Um mig:
Ég fæddist þann 26. júní árið 2000. Mamma mín heitir Valgerður Solveig Pálsdóttir. Mamma og Dóra systir hennar mömmu voru búnar að veðja um hvort ég fæddist þann 25. eða 26. júní og mamma vann veðmálið.....en samt lét ég sko vita af mér þann 25. og var Dóra frænka ánægð með það. En svo kom ég í heiminn kl. 00:33 þann 26. júní. Dóra frænka er að gera þessa heimasíðu fyrir mig og mamma mun bæta inn frekari upplýsingum hérna síðar.... hún veit víst aðeins meira um mig en Dóra. Eitt sniðugt sem Dóra frænka mín sá þegar hún var að búa til heimasíðu fyrir mig er að Binni litli frændi minn (sem er reyndar 3 mánuðum eldri en ég, kalla hann bara Binna litla því afi hans og bróðir mömmu heitir líka Binni) er líka að búa til heimasíðu hérna á Barnalandi....fyndið!
PS endilega skrifið í gestabókina mína!! |
|
|
|
Annað:
Ég á stóra og góða fjölskyldu sem dekrar mig endalaust og ég reyni að stjórna þeim eins og ég get til að halda aga á liðinu tíhí.... Amma mín heitir Ólöf Brynjúlfsdóttir og á heima í sveitinni minni og afi minn hét Páll Sigurbergsson en hann er farinn til Guðs. Guð passar hann fyrir mig, ég sakna hans mikið enda var ég mikil afastelpa og tala mikið um afa minn. Mamma mín á 5 systkini en þau eru Binni og konan hans heitir Birna og þau eiga Konráð, Ollu Maju (mömmu hans Binna litla og bumbubúans), Margréti og Eirík. Beggi er næstur og konan hans heitir Pína og þau eiga Drífu sem á kærasta sem heitir Stebbi, Lóu og Summa Palla. Daddi sem á Helgu og börnin þeirra eru Þráinn, Arnar og Guðrún Sara. Svo eru það Óli og Dóra. Svo er systir hans afa míns hún Jóhanna frænka og maðurinn hennar Halli sem ég kalla oft afa og ömmu enda eru þau svo góð við mig. Þau eiga Valgarð frænda sem kallar mig alltaf tryppi ..... skil það nú ekki alveg og Unnu frænku en hún á mann sem heitir Jökull og tvo stráka Halla Palla og Óla Sigurjón. Svo á ég líka fullt af fleira frændfólki sem of langt mál væri að telja upp hér.
|
| Þú ert gestur nr. 15104 |