| Velkomin á heimasíðuna okkar |
við heitum Rebekka Rut, Rannveig Lára og Rúnar Máni
Endilega kvittið í gestabók svo við sjáum hverjir eru að koma í heimsókn :) |
Rebekka RutÉg er fædd þann 23. mars 2002 klukkan þrjú á Landsspítalanum. Ég var 3535 gr. eða 14 merkur og 52 sm. Ljósan sem tók á móti mér heitir Ólafía Guðmundsdóttir.
![]() ![]() ![]()
Rannveig LáraÉg er fædd á Landsspítalanum þann 15. maí 2004, klukkan hálf sjö rétt fyrir Júróvision. Ég var 4090 gr. eða 16 merkur og 53 sm. Ljósan sem tók á móti mér heitir Eygló Ragnarsdóttir.
![]() ![]() ![]()
Rúnar MániÉg er fæddur á Landsspítalanum þann 16. mars 2009, klukkan hálf átta að morgni. Ég var 4030 gr. eða 16 merkur og 53,5 sm. Ljósan sem tók á móti mér heitir Guðrún Böðvarsdóttir.
![]() ![]() ![]()
Hrúturinn er vormerki. Á vorin fer birta vaxandi og veður batnandi. Mesti athafnatími ársins er fyrir höndum. Eðli Hrútsins endurspeglar þetta og birtist meðal annars í þörf fyrir athafnasemi og innri vissu um að lífið bjóði uppá ótal tækifæri. Hrúturinn er fyrir vikið drífandi og fljótur að framkvæma ætlunarverk sín. Að sama skapi er honum illa við alla bið. Hann vill gera það strax sem hann fær áhuga á. Frumkvöðull Hrúturinn þolir illa reglur, kerfi og vanabindingu, en hefur gaman af nýjum áskorunum. Það má líkja honum við landnema. Hann tendrast upp þegar ný mál eru á dagskrá hans, lifnar við og smitar út frá sér með ákafa sínum, en dofnar og verður leiður ef hann þarf að fást of lengi við það sama. Hann er góður í upphafi, sæmilegur þegar verk er hálfnað en verður oft að beita sig aga til að ljúka verkum. Hann er fæddur brautryðjandi og frumkvöðull, en er síðri í rekstri og vanaverkum. Keppni og áskoranir Hrúturinn kappsfullur og baráttuglaður að upplagi. Hann er því uppá sitt besta þegar honum er stillt upp við vegg, eða þegar þarf að drífa af ákveðin verk fyrir tilsettan tíma. Þá magnast hann upp. Hann er eldsmerki og þarf því að hafa líf í kringum sig og líður best þegar hann er að keppa eða fást við nýja áskorun. Hann þarf sömuleiðis á hreyfingu og líkamlegri útrás að halda, annað hvort með því að stunda líkamlega vinnu eða í íþróttum, líkamsrækt og útivist. Ef umhverfi hans er líflaust og kallar á vanabindingu og endurtekningar þá tapar hann orku. Fram á veginn Hrúturinn er lítið gefinn fyrir að horfa um öxl. Hann vill lifa fyrir daginn í dag og horfa fram á veginn. Hann veltir sér því sjaldan upp úr vandamálum, að minnsta kosti ekki til langframa. Ef erfiðleikar steðja að er hann fljótur að hrista þá af sér. Lífið býður alltaf upp á ný tækifæri, nýjar áskoranir og ný verkefni til að keppa að. Fljótfær og uppstökkur Hinn dæmigerði Hrútur er fljótfær og á til að vera uppstökkur. Hann er tilfinningaríkur og skapstór. Þetta kemur sérstaklega fram ef einhver ætlar að stöðva hann eða hindra hann í að gera það sem hann hefur ætlað sér. Hann þolir ekki tafir. Þá er hætt við að hann rjúki skyndilega upp. Á móti kemur að hann er fljótur að róast og fyrirgefa. Einlægur Dags daglega, og þegar allt er í lagi, þá er Hrúturinn einlægur og vingjarnlegur í fasi, og yfirleitt hress og jákvæður. Hann er að mörgu leyti það sem kalla má 'hrein sál', eða maður sem flækir hlutina ekki að óþörfu. Hann stundum svolítið barnalegur í einlægni sinni og hreinskilni, en oftast er honum fyrirgefið, því hann meinar í raun ekkert illt með því, þó að hann skjóti á fólk eða slái einstaka sinnum frá sér. Snerpa og hraði Segja má að Hrúturinn sé skorpumaður og spretthlaupari. Lífsorka hans er hröð og hann starfar einna best þegar mikið er um að vera og krafist er snerpu og skjótrar ákvarðanatöku. Um Hrútinn er sagt að hann eigi að treysta á fyrstu tilfinningu sína í hverju máli. Slíkt reynist honum best.
Nautin eru fædd að vori, þegar daginn er tekið að lengja og náttúran að vakna til lífsins. Vorið er frjósamur og gjöfull tími vinnu og undirbúnings fyrir sumarið en jafnframt tími til að njóta vaxandi veðurblíðu og grænkandi náttúru. Þetta endurspeglast í upplagi Nautsins, sem sambland af vinnugleði og leti, eða því að skapa og njóta. Hið dæmigerða Naut er því duglegur nautnamaður. Gæflyndi Í samræmi við vorblíðuna er Nautið að öllu jöfnu gæflynt í skapi. Það trúir á lífið og sér ekki ástæðu til annars en að menn lifi í sátt og samlyndi. Það vill stunda vinnu sína, eiga gott heimili og sinna áhugamálum og félagslífi, og vill jafnframt láta aðra í friði með sitt. Einbeiting Eitt helsta einkenni Nautsins er sterk einbeiting og í tengslum við það hæfileiki til að útiloka umhverfið og þá þætti sem það telur sér óviðkomandi. Nautið er frekar hlédrægt og varkárt í skapi og í raun feimið. Segja má að Nautið sé rólegur og traustur persónuleiki, að öllu jöfnu vingjarnlegt og seinþreytt til reiði. En þegar Nautið reiðist, þá reiðist það svo um munar. Jarðbinding Nautið er jarðarmerki og vill því sjá áþreifanlegan árangur gerða sinna. Orði verður að fylgja athöfn og því framkvæmir Nautið flest það sem það ætlar sér og er að öllu jöfnu áreiðanlegt. Nautið trúir á það sem það sér og getur snert á, en hið óáþreifanlega á síður upp á pallborðið. Þessi jarðbinding getur birst á ýmsan hátt. Annars vegar eru Nautin fólk sem getur rekið fyrirtæki eða fengist við hagnýtar framkvæmdir og hins vegar fólk sem lifir í sterkum tengslum við jörðina, náttúruna og hið líkamlega. Nautið metur þess vegna mikils þætti eins og útiveru, líkamlega vellíðan, þægileg húsgögn, góðan mat, fallegt umhverfi, kynlíf, fjárhagslegt öryggi og gott heimili. Það er einstaklingsbundið hvað verður ofan á hjá hverju og einu Nauti. Sum þeirra leggja áherslu á allt framangreint, önnur einungis á sumt. Það að vera jarðbundinn þýðir einnig að vilja hafa fast land undir fótum eða fást við hagnýt mál og hafa ákveðna röð og reglu á umhverfinu. Þrjóska Nautið er stöðugt merki og því fast fyrir og oftar en ekki þrjóskt. Persónuleiki þess er fastmótaður og breytist lítið og það heldur sig oft við sömu áhugamálin í langan tíma. Meðal einkenna Nautsins eru því úthald, festa og varanleiki. Það er oft eins og jarðýta. "Ekkert skal stöðva mig. Það er sama hvað það tekur mig langan tíma að ná takmarkinu. Ég skal." Melta málin Þegar Nautið hefur bitið eitthvað ákveðið í sig þýðir lítið að ýta á það eða ætla að þvinga það til hlýðni. Ekkert virkar nema skynsamleg rök og þolinmæði. Nautið vill gefa sér tíma, bæði til að taka á móti nýjungum og til að breyta um stefnu. Það þarf að melta hvert mál í ró og næði og því borgar sig ekki að reka á eftir því. Öryggi Til að viðhalda orku sinni þarf Nautið ákveðna festu og öryggi. Það þarf að sjá áþreifanlegan árangur og þarf að geta einbeitt sér að afmörkuðum sviðum. Það hentar Nautinu ekki að fara úr einu í annað. Fjárhagslegt öryggi skiptir það einnig miklu og skuldir fara verr með Nautið en flest önnur merki. Náttúran Nautinu er einnig mikilvægt að komast annað slagið út í náttúruna. Þetta á að sjálfsögðu helst við um þá sem búa í bæjum og borgum eða stunda innivinnu sem krefst lítillar hreyfingar. Nautið á að fara reglulega út fyrir bæinn, á skíði eða í göngu, horfa á tré og fjöll, strjúka lófanum eftir mosavaxinni jörð og anda að sér hreinu lofti. Þetta er hollt fyrir alla en Nautinu lífsnauðsyn. Menning Oft er talað um tvær gerðir af Nautum, Jarðarnaut og Venusarnaut. Hið fyrrnefnda er jarðbundnara og þyngra, bæði í skapi og vaxtarlagi. Venusarnautið er aftur á móti léttara í lund og menningarlega sinnað, enda er það svo að menning er ríkur þáttur í lífi margra Nauta. Áhugi á tónlist er til dæmis algengur og mörg þeirra hafa góða söngrödd. Hið sama er að segja um bókmenntir, málaralist og aðrar listir. Það má oft sjá menningaráhuga Nauta á heimili þeirra, sérstaklega þegar þau eru orðin eldri og hafa komið sér fyrir í lífinu. Stórir bókaskápar þekja þá veggi, í einu horni stofunnar er píanó, sem er Nautshljóðfæri, myndir eru á veggjum og umhverfið fallegt. Löngun til að eiga er nokkuð rík í eðli Nauta og þegar áhugi þeirra beinist inn á listræn svið vilja þau oft eiga listaverk. Varanleg gildi Eins og getið var um að framan táknar það að vera jarðbundinn einnig það að vera náttúrubarn og að vera raunsær, sjá raunveruleikann í umhverfinu og vilja standa föstum fótum í tilverunni. Þó æskilegt sé fyrir Nautið að búa við fjárhagslegt öryggi segja mörg þeirra að tóm efnishyggja sé sókn eftir vindi. Og þar er ef til vill komið að kjarna málsins. Nautið vill það sem er raunverulegt og hefur gildi fyrir lífið. Þetta getur komið fram í því að það sé lítið gefið fyrir eftirlíkingar og gerviefni í húsbúnaði, en vilji þess í stað vönduð húsgögn úr náttúrulegum efnum. Það getur einnig birst sem þörf fyrir að leita sannleikans á andlegum og listrænum sviðum, að leita varanlegra gilda. Nautið leitar þess sem er satt, varanlegt, djúpt og raunverulegt, hvort sem um eignir, ást eða hugmyndir er að ræða.
Árstími Fisksins er í lok vetrar, þegar veður er umhleypingasamt. Þetta endurspeglast í eðli Fisksins, í margbrotinni og misjafnri skapgerð. Tími Fisksins er biðtími. Vorið er að nálgast og með því fyrirheit sumarsins en enn ríkir þó vetur. Á þessum tíma er litið um öxl yfir liðinn vetur. Jafnframt er horft fram á við og það undirbúið eða hugleitt sem gera skal á komandi vor- og sumarmánuðum. Þetta birtist í því að Fiskurinn hefur hæfileika til að hafa yfirsýn yfir mál og hugleiða þau í stærra samhengi. Aðlögunarhæfni Fiskurinn er í innsta eðli sínu næm tilfinningavera. Hann er breytilegt vatnsmerki og getur því tjáð sig á margslunginn hátt. Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskurinn getur því verið víðsýnn og margbrotinn, fær um að skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Hann hefur sterka aðlögunarhæfni en einnig fjölbreytta valkosti um eigið líf. Hann er því oft fjölhæfur, en getur átt erfitt með að takmarka sig og 'fókusera' á eitt ákveðið. Hann er stórhuga. Ímyndunarafl Annar sterkur eiginleiki Fisksins er ímyndunarafl og þar af leiðandi hæfileiki til að sjá atburði og fólk fyrir hugskotssjónum sér. Hann hefur einnig sterkt innsæi. Þetta þýðir að Fiskurinn getur búið til myndir af því sem hann er að hugsa um. Tveir heimar Tákn Fisksins er tveir fiskar sem synda hvor í sína áttina, en eru eigi að síður tengdir saman með bandi. Þetta hefur verið túlkað á nokkra vegu. Ein kenningin er sú að til séu annars vegar Fiskar sem syndi á móti straumnum og hins vegar þeir sem láti sig berast með veðri og vindum lífsins. Þetta getur verið rétt, en einnig er hugsanlegt að þetta tákni að í hverjum einstökum Fiski búi tveir eðlisþættir eða ákveðin klókindi. Fiskurinn geti því synt á móti straumnum og geri það þegar sá gállinn er á honum, en kunni einnig að sæta lagi og berast með straumnum þegar það hentar honum betur. Önnur kenning er sú að annar Fiskurinn sé í þessum heimi en hinn lifi í annarri veröld, í heimi ímyndunarafls, lista eða andlegra málefna, eftir því hver persónuleg viðhorf viðkomandi eru. Það er að minnsta kosti staðreynd að Fiskurinn þolir illa gráan og hversdagslegan veruleika og þarf á því að halda að glæða líf sitt litum og búa til ævintýri. Menning Áhugi á tónlist, menningu og listum er áberandi í fari Fisksins. Ef hann leggur ekki sjálfur stund á listir hefur hann yfirleitt gaman af því að njóta lista, sækja leikhús, kvikmyndasýningar, tónlistarviðburði, málverkasýningar og þess háttar. Sköpun Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Fiskurinn að fá jákvæða útrás fyrir ímyndunarafl sitt í einhvers konar skapandi viðfangsefnum. Hann tekur mikið inn á sig og þarf því að hreinsa sig reglulega af utanaðkomandi áhrifum. Það getur hann gert með því að njóta tónlistar, með því að draga sig annað slagið í hlé eða með því að breyta til og skipta um umhverfi. Stór fjölbreytileiki Vegna sterkrar aðlögunarhæfni og sveigjanleika er sennilega erfiðast af öllum stjörnumerkjunum að setja Fiskinn á afmarkaðan bás. Margir Fiskar sækja í listir, tónlist og dans, aðrir í fjölmiðla, sumir í stjórnmál og enn aðrir í viðskipti. Hvert sem sviðið er nákvæmlega þá notar Fiskurinn innsæi sitt og ímyndunarafl, og er skapandi, stórtækur og landamæralaus í athöfnum.
Við erum með svo litlar hendur, við ætluðum ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á okkur eru svo stuttir, farið þið hægar svo við getum fylgt ykkur. Ekki slá á hendurnar okkar þegar við snertum eitthvað fallegt, við skiljum það ekki. Horfiði á okkur þegar við tölum við ykkur, þá vitum við að þið eruð að hlusta. Við höfum viðkvæmar tilfinningar, ekki vera alltaf að skamma okkur. Leyfðu okkur að gera eitthvað vitlaust án þess að ykkur finnist við vitlausar. Ekki búast við því að myndin sem við teiknum eða rúmið sem við búum um sé fullkomið. Elskið okkur bara fyrir að reyna. ![]()
|
|
|
ÖMMUR OKKAR ERU ENGLAR
Þær fljúga um eldhúsið, að búa til allskonar góðgæti
einsog ![]() ![]()
Súkkulaði afmælisköku (mmm..) Þær lesa sögur fyrir okkur
Gefa okkur gjafir.....
.....Fara með okkur í búðir
![]() ![]()
Laga föt, leikföng og brostin hjörtu
Best af öllu
Þeim finnst við vera englar líka..
![]() ![]() ![]()
|