Ég heiti Ólafur Ómar Arnórsson



Um mig:



Ég kom í heiminn 14 mars 2005. Litli sólargeislinn hjá mömmu og pabba. Mamma mín heitir Halla Björk og pabbi minn heitir Arnór Elvar og ég er fyrsta barnið þeirra.























Annað:





FISKARNIR

19. febrúar - 20. mars


Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.





Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi faðir þér ég sendi.
Bæn frá mínu brjósti sjáðu,
blíði Jesú að mér gáðu.

Hafðu gát á hjarta mínu,
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf Jesús, vertu hjá mér.

Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.
(Ásmundur Eiríksson)





MAMMA ER KONAN:

...Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir manni alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, eins og td. að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er svo vön að hugsa svo vel um barnið sitt.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI



PABBI ER MAÐURINN:

...Sem veður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI!





Halla Líf
Kristján Már
Viðar Páll
Elvar Þór
Katrín Lilja
Almar Ingi
Árni Þór
Halldór Daði
Arndís María
Hildur Embla
Sigmundur Nói
Benedikt Snær
Lárus Óli og Ásta Fanney
Jón Bjarki
Gabríel Máni
Elísabet Drífa
Anna Lovísa
Mikael Helgi
Kristófer Helgi
Leó Breki
Silvía Lind og litla skvís








Þú ert gestur nr. 11163