Ég var sett þann 17 janúar,sá dagur kom og ég var alveg að fríka út því að ég bara var stressuð því að ég á að eiga í dag,en nei ekkert kom..ég fór út að labba og allt.Svo voru næstu dagar þannig að ég og mamma héngum í kringlunni eða smáralind að reyna labba barnið úr mér en neinei ekkert gekk!Svo var ég reyna allar þessar aðferðir til að reyna koma mér af stað ,,labba upp og niður stiga og borða sterkan mat og allt þetta en nei ekki neitt...Svo fór ég til nuddkonu sem nuddar mann og ýtir á orkupunktana á manni og það var geðveikt gott ég var næstum sofnuðuð. hún sagði að ég myndi eiga allavega um helgina..um kvöldið þá var ég allveg að verða klikkuð ég ætlaði að taka laxerolíu hehe en hætti við...Við Halli fórum bara og leigðum okkur spólur, wishmaster og eikkað annað,svo horfðum á heilminginn af henni og fórum að lúlla og eftir hálftíma svefn þá vaknaði ég og eftir 3 sekundur kom heill fosssEn já ég missti vatnið aðfaranótt laugardags 29 jan kl 2:50,fékk alveg sjokk,bara tonn af vatni beint í nýja fína rúmmið mitt ég ýtti við kallinum mínum og sagði "Halli ég held að ég hafi misst vatnið" hann kveikti ljósið og leit ég spurði er eitthvað og hann alveg ehh já ,ég hringdi upp í mömmu og sagði að hvað væri í gangi hehe ég var geðveikt hrædd og var að skjálfa á fullu,já þá hringdi mamma á sjúkrabíl, og kom svo niður og missti andlitið útaf miklu vatnsmagni ,ég varð aðvitað að fara úr blautu fötum og fara í ný en hehe þau blotnuðu líka .ég sagðist þurfa að pissa og fór að pissa og pissaði heillengi ...Svo tókum við drasl til sem ég vildi hafa með á spítalann og sjúkrakallarnir komu og ég fór á svona börur hehe og ég fór í sjúkrabíl,það var eins og sjúkrakallarnir væru að reyna að keyra í allar holur og bompur á veginum bara til að pína mig var með svolitla bakverki. Svo kom eg á spítalann og ég var sett í monitor og skoðuð. Þá var ég komin með ca 3-4 cm í útvíkkun. Og verkirnir voru ekkert það slæmir og ég hló bara að þeim. Svo var ég færð inná fæðingarstofu. Þar var ágætis rúm og ég,mamma,halli og ljósmóðirin vorum bara í tjillinu.Svo fóru verkirnir að vera verri, svo langaði mig svo að fara að pissa, en ég mátti ekki fara að pissa afþví að hún var ekki búin að skorða sig. Svo tékkaði ljósmóðirin að því og mér til mikillar ánægju var hún búin að skorða sig þannig að ég skokkaði glöð og sæl á klósettið að létta á ... Ég sat inná klóstinu í svona 15mínutur. og þegar ég ætlaði að standa upp gat ég það ekki útaf verkjum,og þetta voru nú engir smá verkir! en ég píndi mig upp úr afþví ég var farin að heyra stunur og óp úr konu í næsta herbergi þannig að ég dreif mig fram. Ekki vildi ég eiga barnið inná klósti.. ég hélt ég yrði ekki eldri útaf verkjunum. Ég fór að væla og sagði æjjjiæjjjiæjjji,ljósan stakk upp á að ég myndi fá kaldan bakstur og nálastungur ég bara samþykkti það og það kom kona og stakk mig með fullt af nálum í mallan og hausinn hehe...þetta virkaði ekki neitt og ég fór að biðja um mænudeyfingu. Og ég fékk hana. Þá varð ég kát. Guði sé lof. Mamma var líka búin að vera að nudda mig. Það var gott. Svo þegar ég var búin að fá deyfinguna þá varð ég samræðuhæf aftur og blaðraði og blaðraði og blaðraði. Bobby og Balli komu og voru að spjalla Svo þurti ég að fara á klósettið aftur. En gat ekki pissað því ég var dofin og fann ekki neitt og þá þurfti ljósmóðirin að setja þvaglegg og þá gat ég pissað. Svo tékkaði hún á útvíkkun og þá var ég eigilega barasta komin með 10 cm (semsagt fulla útvíkkun). Þá sendi ég Balla og Bobby fram því ég vildi ekki þurfa að rembast fyrir framan þá. . Þá byrjaði ég að rembast og það var geðveikt erfitt. Það var svona það erfiðast sem ég hef þurt að gera í lífinu,ég fann aftur fyrir verkjunum þá ,Svo eftir hálftíma rembing fékk ég litlu stelpuna mína í fangið og það var yndislegt. Hún var 16,5 mörk, 54 cm. 4165 grömm. . Halli klippti naflastrenginn. Hún gargaði og gargaði og gargaði þangað til hún fékk brjóst. Þá þagnaði loks litla skinnið. Svo var ég bara með hana í eikkvern tíma á meðan ljósmóðirin var að sauma mig og svona. Svo fékk Halli að klæða hana en honum fannst það voða erfitt afþví hún var svo brothætt eikkvað. Svo vorum við bara flutt á sængurkvennadeildina og vorum bara í dúllast þar með nýja litla barnið. |
| |
|