| Halló, halló... |
| Við heitum Dagur Þór og Tinna Rut - Nýjar myndir 18. desember |
|
|
Nokkur orð um okkur
Dagur Þór kom í heiminn þann 27. október 2004, klukkan 02:22. Þegar hann fæddist vóg hann 3395 grömm og var 50.5 cm á lengd. Hann var með ljóst hár og dökkblá augu.
Tinna Rut kom í heiminn þann 28. ágúst 2008, klukkan 05:15. Þegar hún fæddist vóg hún 2730 grömm og var 48 cm á lengd. Hún var með ljóst hár og dökkblá augu. Pabbi og mamma heita Hjörtur Vilhjálmsson og Sunna Björg Guðnadóttir. Við erum litlu gullmolarnir þeirra og þeim þykir óendanlega vænt um okkur. |
|
|
Elsku Dagur Þór og Tinna Rut
Áður en þið voruð til þráðum við ykkur
Áður en þið komuð í heiminn elskuðum við ykkur Áður en þið höfðuð lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir ykkur Þið eruð kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til Dagur Þór - Sporðdreki 24. október - 21. nóvember Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann. Tinna Rut - Meyjan 23. ágúst - 22. september Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra. Nöfnin okkar Dagur: Dagur. Þór: Nafn þrumuguðsins í norrænni goðafræði. Tinna: Steinn. Rut: Vinátta, biblíunafn. |
| Þú ert gestur nr. 26017 |