Ég heiti Hekla Björg Jónsdóttir. Ég fæddist á fæðingardeild Landsspítalans í Reykjavík 18. ágúst 1999 kl. 21:03. Hárið mitt var kolsvart og mikið og augun gráblá. Ég var stór og mikil stúlka 5180 grömm og 56 cm. Ég var lengi að reyna að komast í heiminn en það þurfti að skera í magann á mömmu svo ég kæmist út. Ég var blá og máttlítil enda mikið veik. Ég fæddist með hjartagalla sem heitir Truncus Arteriosus eða á íslensku Sameiginlegur slagæðastofn. Ég var líka með klofinn góm sem búið er að laga í dag. En ég var bara tveggja daga
gömul þegar ég fór í risastóra flugvél til Boston í Bandaríkjunum. Ég þurfti að fara þangað í flýti í hjartaaðgerð og með mér fóru mamma, pabbi, Jóna amma, hjúkka og vinur minn hann Gulli hjartalæknir. Ég var einn mánuð í Boston en þegar ég var 8 mánaða þurfti ég að fara aftur og það stefnir svo í þriðju ferðina bráðum.
Litli bróðir minn heitir Gunnar Atli og fæddist 9.janúar 2006 á Landsspítalanum kl 17:46. Maginn á mömmu var líka skorinn svo hann kæmist út því hann var bara aðeins minni en ég eða 5145 grömm og 56 sentimetrar.
Ég bý ásamt mömmu minni og Gunnari á Hafnarbergi 12a í Þorlákshöfn. Mamma okkar heitir Anna Kristín Gunnarsdóttir og hún er 34 ára Leikskólakennari. Hún er Flateyringur en pabbi Þorlákshafnarbúi. Hann heitir Jón Haraldsson og er 35 ára Vélfræðingur. Ég er í Grunnskóla Þorlákshafnar í 5.bekk HS :) Mamma gaf okkur helminginn í hestinum Muninn og því eigum við hest :)
Nafn þetta er sótt til eldfjallsins Hekla.
Það hefur verið tengt við nafnorðið "hekla" sem merkir ermalaus kápa með hettu
Hjálp, að bjarga
Nafn þetta er myndað af forliðnum "Gunn" sem merkir orrusta og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður.
Atli er breyting á germönsku orðunum ''Atta'' sem merkir faðir/pabbi og ''la'' sem merkir lítill , orðið ''Attala'' gæti því útlagst sem lítill faðir/pabbi.
Önnur skoðun,er sú að orð þetta sé komið úr norrænu og þá dregið af orðinu ''atall'' sem merkir grimmur/harður.
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.
Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir °°rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.
Telma Rós og Ástrós Halla
Elfa Dís & Rakel Ásta
Svandís Rós
Arnar Freyr, Una og Tómas
Litla stúlkan okkar
Þú ert ljúfasta yndið mitt með augun blá
sem alltaf finna nýtt að skoða og sjá
þau brosa til mín björt og skær
og blika eins og stjörnur tvær.
Eins og ljósálfur dansar þú lipur og smá
og það ljómar af kæti og sólskin á brá
,,Sko ég er svo fín
og ég kem til þín"
segir jólarósin mín.
Þú ert draumfagra blómið sem grær á grund
og gleði mína vekur hverja stund
það er sem svanur syngi blítt
og silfurbjöllum hringi þýtt.
Þegar hjalið þitt ómar með indælum hreim
það er ekkert fegra um gervallan heim
Ég leita til þín
og lífið mér skín
þú ert litla stúlkan mín.
|