Velkomin á heimasíðuna okkar Gústafs Bjarna og Emils Gauta Valberg
Við erum hressir og kátir bræður úr Firðinum


Um mig:
Gústaf Bjarni
Ég fæddist 28. júní 2000. Ég kom akkúrat í heiminn á deginum sem mamma var sett. Þannig að ég lét sko ekki bíða eftir mér. Ég var reyndar ca. 1 1/2 sólarhring að koma mér út frá fyrstu verkjum en mömmu fannst þeir svo sannarlega þess virði. Ég var 3480gr. ( tæpir 14 merkur) og 51,5 cm með pínu rautt hár og gráblá augu þegar ég fæddist. Ég var eins og snýttur út úr nösinni á pabba þegar ég fæddist!

Emil Gauti
Ég fæddist 12. mars 2003. Ég kom í heiminn kl. 7:40 þegar mamma var komin 39 vikur og 2 daga. Mamma var sett af stað vegna þess að hún er með nýrnasjúkdóm og læknirinn vildi létta álaginu á nýrunum á mömmu. Mér lá rosalega á að koma í heiminn. Það tók mig bara klukkutíma og 10 mínútur að koma mér út eftir að belgurinn var sprengdur. Það má því segja að ég hafi verið aðeins sneggri að þessu en stóri bróðir minn. Ég var voða líkur stóra bróður að stærð. Ég var 51,5 cm á lengd og 3430 gr. Ég var með dökkt hár og mjög dökk augu. Svo var ég með mjög fallegan brúnan húðlit. Það er eins og ég hafi verið á sólarströnd inni í maganum á mömmu:)












Annað:
Mamma okkar heitir Berglind Bjarnadóttir og pabbi okkar heitir Jón Andrés Valberg en er alltaf kallaður Nonni. Við búum í Hafnarfirði. Við ætlum að reyna að vera dugleg að setja nýjar upplýsingar um okkur, hingað inn. Endilega skoðaðu síðuna okkar og ekki gleyma að kvitta í gestabókina!
Þú ert gestur nr. 40677