Velkomin(n) á heimasíðuna okkar!!
Við heitum Victor Örn og Nökkvi Þór


Um okkur: Foreldrar okkar heita Ásdís Ólafsdóttir og Úlfar Þórðarson
Ég kom í heiminn 18 nóvember 2004. Ég var 17 og 1/2 merkur, 52 cm og 4315gr. Ég var alveg æðislega hárprúður með mikið dökkt hár og mikinn sveip í toppnum. Augun mín voru svo dökk þegar ég fæddist að ekki var hægt að sjá litinn en núna eru þau aðeins ljósari og glittar í bláan lit. Stjörnumerkið mitt er SPORÐDREKI.
Ég vona að þið hafið gaman af þessum myndum af mér og svo er ég rosa þakklátur ef þið skráið ykkur í gestabókina mína.
LOVE - Victor Örn.
Nökkvi Þór bróðir minn fæddist 17. nóvember 2006. Nökkvi var 18 og hálf merkur, 53 cm og 4625gr. hann var með aðeins minna hár en ég ,samt er svipaður litur. Augun hanns eru blá og stjörnumerkið hanns er líka sporðdreki enda eigum við næstum sama afmælisdag hehehe.




Þú ert gestur nr. 9822