"Velkomin í prinsessuland"

Ég heiti Ólöf Alda og er stór, falleg og dugleg stelpa


Um mig:
Ég er rosalega falleg prinsessa
og ég var skírð í Akureyrarkirkju þann 25 júní.
Ég heiti Ólöf Alda í höfuðið á ömmum mínum tveimur og afa Jóni Ólafi.

Ég fæddist þann 12 maí en barnalæknarnir vilja halda því fram að ég hefði ekki átt að fæðast fyrr en um mánaðarmótin júní-júli.
Ég var tekin með keisara því ég var ekki að fá nóg að borða hjá henni mömmu minni. Ég var 2043gr og 43cm.

Mamma mín heitir Katrín Ösp Jónsdóttir og við eigum heima með Valdemar, kærastanum hennar mömmu.

Lilypie 2nd Birthday Ticker







Annað:
"Sú ákvörðun að eignast barn er einstök.

Að ákveða að um alla eilífð mun hjarta þitt

verða á gangi fyrir utan líkama þíns."



Ljóð eða bæn sem mamma mín samdi handa mér. Mamma var að svæfa mig eitt kvöldið þegar það bara kom upp úr henni:)



Blessaðu barnið er liggur hér,

því hún er engill sem þú sendir mér,

af þínu skýi, þín fegursta sál

er nú mitt hjartans mál.

Engill er þessi litla mær

þessi fallegu augu og þegar hún hlær

mitt hjarta er nú allveg brætt

mér líður sem ég hafi milljónir grætt.

Guð minn ég þakka þér,

fyrir gjöfina er þú gafst mér,

í þínu nafni ég hér með sver,

ég mun elska hana og vernda....

..á meðan ég verð og er.

Hún samdi einnig þetta ljóð.



Elsku Ólöf Alda.

Í vinnunni ég var, er gat kom á belginn

í dálitlum vafa, hringdi ég í læknirinn

nú tók við hræðslan og sár kvíðinn

nú spurningin var, hvenær er tíminn.


Líðan þín versnaði svo suður lá leiðin

sem betur fer, var allveg auð heiðin!

Liggja ég varð, mátti ei hreifa kviðinn

ég undirbúin var, því tíminn var liðinn.


Í læknaskoðun tilkinnt mér var,

í neyð barnið mitt væri, svo í flýti hún skar

á magann hún þrýsti og út komstu þar,

ást mín, líf mitt og yndi, í fyrsta sinn andar.


Þú komin ert í heiminn og nú ert þú hér,

fagur lítill engill sem sýgur brjóstið á mér

faðir þinn, svo stoltur hann er

Ást mín og líf mitt, allt er ætlað þér!








Þetta lag á sér sterka merkingu fyrir okkur fjölskylduna.

Ljós í myrkri, langt og mjótt
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu kominn
inní heiminn, lítill dofinn.
Dregur andann hið fyrsta sinn

Þú ert vorið, vindur hlýr
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni,
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég

Líf
ljómi þinn er skínandi skær.
Líf
augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf
því ég á
þetta líf

Óskadraumur -ásýnd þín.
Ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi
þessa stund ég alltaf geymi
í mínu sinni ókomin ár




Anja Steinunn


Arent Tristan


Guðmundur Orri


Jóhann Ægir


Tryggvi og Heiðdís Emma




Marín Jóhannsdóttir




Tristan Ylur





Þú ert gestur nr. 55437