Við erum systkinin Guðrún Perla, Snædís Blær og Róbert

Lykilorðið er nafnið á hundinum sem mamma átti einu sinni


Um mig:
Ég heiti Guðrún Perla Gunnarsdóttir og er fædd 29.júní 2001. Ég vóg 3280gr við fæðingu og var 50.cm. Ég er með blágrá augu, skolleitt hár og smá krullur. Ég var alveg eins og pabbi minn þegar ég fæddist en er nú að líkjast mömmu meir og meir (segir mamma allavega). Ég er líka svoldið lík henni í mér, nema hvað að ég er kannski ekki alveg eins feimin :)

Ég heiti Snædís Blær og fæddist 26.nóvember 2004. Ég vóg 3940gr og var 50.5cm á lengd. Ég veit ekki hverjum ég er lík, sumir segja alveg eins og mamma en öðrum finnst ég voða lík pabba eða Eyjó bróður.

Við eigum einn stóran bróðir sem heitir Eyjólfur Karl, hann á líka heimasíðu www.folk.is/eykarl. Munið svo að skrifa í gestabókina okkar.





Annað:
KRABBINN

22. júní - 22. júlí

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.

Bogmaðurinn
22. nóvember - 21. desember

Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.
(upplýsingar: barnaland.is)


Ljónið
23.júlí - 22.ágúst
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.
Þú ert gestur nr. 33618