Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Birta Rós
Birta Rós
  • þú ert svo sæt
    birta rós
    |
    19.4.2011 15:07:44
  • þú ert svo sæt
    birta rós
    |
    19.4.2011 15:07:43
  • Sæl Birta Rós, innilega til hamingju með 6 ára afmælið, hlakka til að sjá þig á morgun og heyra allt um leikskólaafmælið:) afmælisknús
    Dagný leikskólakella
    |
    6.6.2010 20:13:57
  • Til hamingju með daginn elsku sæta mín:** hafðu það gott í dag og svo sjáumst við á föstudaginn:**
    María:*)
    |
    6.6.2010 09:31:53

Jæja, þá er komið helgarfrí. Pabbi og mamma komu snemma að sækja mig í dag, ég fór nefnilega allt of seint að sofa í gær. Það var árshátíð á Þelamörk og við fórum að sjá Didduna mína og alla hina krakkana í skólanu sýna alls konar leikrit, tónlist og dans. Mér fannst úlfarnir skemmtilegastir í leikritinu um grísina þrjá í óhefðbundinni útgáfu 1-2 bekkjar. Annars er lítið að frétta, ég er búin að föndra einn mjög gulan, stóran og fínan páskaunga sem mamma er búin að hengja upp í stofunni. Kannski bý ég til eitthvað meira eftir helgina því ég er víst ekki komin í páskafrí, bara Didda. Mamma vill víst fá frið til að pakka niður eftir helgina, áður en við brunum í sveitina. Þar ætla ég að leika við Stellu Björk og alla bróana hennar og líka kíkja í fjós og fjárhús og sjálfsagt bralla ýmislegt. Mamma lofar að setja inn ferðasögu og kannski getum við tekið myndir á vél sem skilar þeim af sér í nothæfu formi, þ.e. inná Netið. Skrifumst fljótt aftur, risaknús frá Birtu Rós Bestustelpu.

0 | 26.3.2010 15:18:50 #

Já það er margt hægt að gera og sjá á leiðinni millli leikskóla og Berghóls, bestu kveðjur úr Álakvíslinni, Þóra
Þóra | 0 | 19.3.2010 08:15:05 #

Það er hiti á mælinn þótt slett hafi úr éli undir morgun. Ég labbaði í leikskólann að sækja Birtu Rós í dag og skildi kerruna eftir heima. Í skólanum rabbaði ég aðeins við stóru stelpurnar (þ.e. kennarana) og fór svo inn á deild að heilsa Birtu og Mikael. Hann var nú alveg til í að koma líka en ég er ekki viss um að ég hefði komið þeim báðum heim gangandiLaughing. Svo hefði mamma hans líka orðið hissa ef hann hefði bara gufað upp rétt sisvona. En við klæddum okkur í úlpur og Birta í stígvél og drifum okkur út í garð að róla. Síðan hoppuðum við í stærsta pollinum, sem fór ekki vel með strigaskóna mína, en það er nú önnur saga. Næst var það skógarreiturinn, stígurinn var alþakinn snjó sem Birta borðaði í stórum stíl. Brúin yfir lækinn bar nýlegum leysingum vitni, lækurinn hafði runnið yfir hana og fyllt hana af leir. Þetta fannst okkur mjög spennandi og ég hugsaði hlýlega til þvottavélarinnar minnar þegar Birta skellti sér á rassinn til að skoða drulluna betur. Hún fann líka risastrá sem náði alla leið upp í nefið á mér og henni fannst það nú ekki leiðinlegt. Þegar við komum gegnum skóginn og inn í Skógarhlíð hittum við Unnar sem heilsaði okkur vingjarnlega eins og alltaf. Svo komu hundarnir, Dagur og Nótt, mamma hans til okkar og við máttum klappa þeim báðum. Uppi á bjálkahúsinu sem þeir búa í er stytta af uglu. Við sáum að hún var ansi lík gömlu vitru uglunni í sögunni um litlu kisuna sem týndi malinu sínu og heilsuðum henni með Húúúú húúú, en hún svaraði ekki. Við sáum líka tvo krumma, annan uppi á ljósastaur en hinn á húsþaki. Þeir svöruðu strax þegar við krunkuðum á þá. Hjá bláa húsinu hittum við þrjá ketti. Einn var feiminn og vildi ekki koma, en hinir tveir vildu klapp. Svo fóru þeir í eltingaleik og skoppuðu uppí loftið. Við héldum áfram og vinkuðum í hundinn hennar Önnu Dóru niðri í garði. Fyrst það komu engin fleiri dýr fórum við að sparka í stein og láta hann skoppa eftir götunni. Í Birkihlíð hittum við tvær stelpur á hjólum og Birtu langaði líka í svona hjól, en sættist á að fá það seinna. Þegar við vorum alveg að koma heim var stór bíll þar að tæma ruslagámana. Ég bauð Birtu að stoppa og horfa á, en hávaðinn var fullmikill fyrir hennar smekk. Núna er Birta Rós að naga epli og horfa á Gretti í sjónvarpinu og lífið gengur sinn vanagang. Knús frá okkur báðum í Berghól.

0 | 18.3.2010 17:00:10 #

Það er gaman að sjá þessa stóru og duglegu stelpu.Ég á örugglega eftir að kíkja oft á síðuna og fylgjast með ykkur. Bestu kveðjur frá afabróðir og allri hans fjölskyldu. Kveðja líka til Siggu sem passar þig á leikskólanum.
Rósa Jónsdóttir | 0 | 9.3.2010 22:08:17 #

Það er svo ljúft að eiga hana Birtu Rós. Hún er oft óvær á nóttinni en í nótt vakti hún mig á óvenjulegan hátt. Hún var komin fram í stofusófa, en þangað fer hún gjarnan um miðjar nætur og sefur sitjandi. En hún hló svo hátt og dillandi upp úr svefni að ég vaknaði. Það var svo gaman að heyra að meira að segja í svefninum getur henni liðið svona vel. Mér hlýnaði um hjartaræturnar, sem eru nú ekkert kaldar fyrir. Hún er yfirleitt lífsglatt barn og fljót til sátta ef okkur verður sundurorða. Auðvitað gerir hún ýmislegt af sér flesta daga, en við erum bara ekkert að kaupa fín húsgögn og málum yfir vegglistaverkin á vorin. Það er stundum fúlt að eiga óvita svona lengi, en aðallega þegar við heimsækjum fólk sem ekki býr við slíkt og hún skemmir eitthvaðFrown. Svo er svo gaman að fylgjast með framförunum í talinu. Núna segir hún eitthvað flesta daga sem ég hef ekki heyrt áður. Í gær sagði hún t.d. "bara ég og mamma", færði hendina svo á milli okkar og bætti við, "við báðar"! Ég vissi ekki að hún gæti sagt það. Ég ætla að taka tíma núna næstu vikur og fylgja henni betur eftir í leikskólanum. Ég er smeyk um að hér heima höfum við hana orðið "of litla" klæðum hana og háttum umyrðalaust og gerum of litlar kröfur, það er svo auðvelt að gleyma því að þessi stubbur sé að verða sex ára næsta sjómannadag. Nú er hún að láta tuskukúna sína spila á hljómborðið og syngur hástöfum með lagið hennar Sollu Stirðu. Kærar kveðjur frá ritaranum sem getur núna ekki haldið fingrunum frá lyklaborðinu.

0 | 7.3.2010 10:11:16 #

Ásta í sveitinni
Gaman að lesa svona sögur,Hlakka til að sýna þér eitthvað skemmtilegt,kiðling eða kisu. Kossar heim til þín.
0
17.3.2010 21:50:59
Jæja lifnaði yfir ritaranum? Var farið að leiðast að sjá alltaf sömu myndirnar og textann, en kíkti í dag , sem betur fer, bestu kveðjur frá "'Alunum"
Þóra | 0 | 4.3.2010 16:04:32 #

Jæja, kannski kominn tími á nýja færslu? Myndavélin okkar er með tóm leiðindi og vill ekkert skila myndunum úr sér, liggur bara á öllu saman eins og ormur á gulli. Svo frekar en ekkert þá safnaði mamma saman leikskólamyndum af vefnum og setti í nýtt albúm. Ég fór til augnlæknis um daginn og þarf engin gleraugu enn sem komið er. Hitti líka hjartalækninn og allt óbreytt á þeim vígstöðvum líka. Ég hef verið býsna hraust síðan við komum heim úr sólinni um miðjan janúar og er farin að tala heilmikið. Það er nú ekki allt mjög skýrt, en talkennarinn minn og leikskólakennararnir hjálpa mér með framburðinn. Ég hef mjög gaman af að horfa á Latabæ og fæ oftast að horfa þegar ég kem heim úr skólanum á daginn. Vonandi fáum við einhvern snilling til að tugta myndavélina til svo við getum sett inn einhverjar sólarmyndir bráðum, knús og kossar frá Birtu Rós og lata ritaranum hennar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

'

0 | 3.3.2010 17:53:59 #

Leikskólamyndir 09-10

0 | 0 | 3.3.2010 17:13:59 #
Mikið er gaman að sjá lífsmark hér, kíkti greinilega ekki inn í síðustu viku áður en ág fór austur en ég kom í vinnu í dag og var að forvitnast og sá þá þessa fínu lesningu. Bið að heilsa öllum þarna í kring um þig og vona að ekki verði mjög langt í að við hittumst. Þóra
Þóra | 0 | 22.9.2009 16:07:23 #

Halló vinir mínir, ég varð fimm ára í sumar og í vikunni fór ég í 5 ára skoðun á heilsugæsluna og það var bara gaman! Okkur hjúkrunarfræðingnum kom vel saman og hún sagði að ég væri dugleg stúlka. pabbi og mamma hjálpuðu mér að sjá hvað ég væri orðin stór og þung, og ég er orðin 101 sentimetri og 19 kíló. Svo hitti ég barnalkninn og hún var líka ágæt, hlustaði mig og potaði í magann á mér. Við sögðum henni að ég væri alveg að fara að hitta eyrnalækninn svo hún var ekkert að skoða eyrun, það finnst mér ekki skemmtilegt. En hún var með sprautu sem ég kannaðist nú ekkert við. Mamma var búin að segja mér að ég þyrfti að fá sprautu og það væri vont, en bara í smástund, svona á-á-á-á-á og svo búið. Þetta var einmitt þannig, þegar ég var að byrja að skæla var þetta allt búið og ég fékk lítinn hest í verðlaun. Rörið mitt annað er enn hálf-stíflað en virðist sleppa til svo ég þarf ekki að hitta hann fyrr en eftir hálft ár. Svo heilsufarið er bara gott. Það er gaman í leikskólanum og gamli kennarinn minn er kominn aftur og okkur semur bara vel. Brói er á ferðalagi með litla frænda minn og ég sakna hans dálítið. þegar ég kom heim úr skólanum í dag hljóp ég inn og kallaði: Miklamáni! en hann var ekki heima hjá mér. Mamma segir að þau komi heim eftir nokkra daga. Nóg í bili, bið að heilsa.

0 | 15.9.2009 19:39:23 #

Hæ þetta var skemmtilegur lestur, kysstu Mikael Mána frá mér næst þegar hann kemur til þín, og til hamingju með stóru didduna þína, Þóra
Þóra | 0 | 17.8.2009 08:35:30 #

Halló, þá ætlar mamma loks að skrifa eitthvað fyrir mig. Nú er löngu og góðu sumarfríi lokið og leikskólinn og Bjarg orðnir fastir liðir í tilverunni. Mér fannst mjög gaman að koma aftur í skólann og hitta svona marga kunningja, en eftir tvo daga var þetta orðið gott. Þriðja morguninn vildi ég bara vera kyrr í bólinu hjá mömmu að leika og sagðist vera "búin" að fara í leikskólann. En þetta venst nú allt saman. Mér fannst mjög gaman í sjúkraþjálfuninni og þjálfarinn minn sagði að mér hefði farið vel fram í fríinu. Hann hefur kannski séð mig æfa hlaupin burt frá foreldrum mínum í þeirra óþökk einhvern daginn, hver veit. Svo fór ég til Tannsa í annað sinn í vikunni. Hann sagði að ég hefði fallegar og hraustar tennur og ég væri óvenju flink að beita tannburstanum mínum. Ég hermi alltaf eftir mömmu, sérstaklega þegar hún grettir sig skemmtilega meðan við erum að bursta tennurnar. Svo fór ég líka til Eyrnalæknisins um daginn og hann sagði að annað nýja rörið mitt væri stíflað svo ég þurfti að fá nýja eyrnadropa. Svo hittumst við bráðum aftur og þá þarf hann að skoða eyrað aftur, mér finnst það alls ekki skemmtilegt en við förum alltaf og kaupum ís þegar það er búið. Annars gengur lífið sinn vanagang, ég leik mér oft við Mikael Mána, litla frænda minn, en tek reyndar oft af honum dótið. Ég er víst dálítið afbrýðisöm því pabba og mömmu og Diddu líst öllum svo voða vel á hann og skamma hann aldrei, en þau skamma mig stundum. Þetta er pínu flókið, en mérfinnst sat ósköp vænt um hann og verð alltaf kát að sjá hann. Hann togar stundum í hárið á mér þegar hann er að standa upp með því að tosa í mig og þá verð ég reið og vil líka toga í hans hár, auðvitað! En það má ekki af því hann er svo lítill! Mér finnst hann nú bara alveg nógu stór, en svona er lífið. Knús til ykkar allra frá Birtu Rós.

0 | 15.8.2009 16:59:01 #

Bara að segja hæ og takkkkkkkkk fyrir síðast þetta var skemmtilegur tími fyrir utan föstudaginn sem Fordinn fór til feðra sinna, bestu kveðjur til allra í Berghól, Þóra
Þóra | 0 | 12.8.2009 08:49:52 #
Hæ Birta Rós og fjölskilda....takk fyrir innlitið á heimasíðuna mín. Já Bostonferðin gekk mjög vel og önnur ferð er væntanleg eftir eitt ár eða svo og þá er það stóra aðgerðin, skipta um æð. Það hafa verið miklar breitingar hérna hjá okkur því að mamma og pabbi skildu í febr og ég og systkinin mín erum öll hjá mömmu. En hún mamma mín stendur sig eins og hetja. Mikið væri nú gaman að hitta ykkur ferðafélagar einhverntíman. kveðja Jakob Leví og mamma
Gróa Jónsdóttir | 0 | 30.7.2009 22:18:10 #

Loksins smá lífsmark á vefnum. Mamma finnur ekki snúruna úr myndavélinni, loksins þegar hún ætlaði að pota inn einhverjum myndum og brá þegar hún sá hvað var liðið langt frá síðustu færslu. Það hefur ýmislegt borið til tíðinda síðan þá. Ég átti afmæli þann 6.6 en þá giftu Brói og Helena sig svo afmælið mitt frestaðist um einn dag. En þá fékk ég Ömmu, Þóru, Birnu og Sæmund Óla í kaffi til mín og fékk fullt af pökkum. Svo var ég auðvitað búin að fá kórónu og afælissöng í leikskólanum mínum á föstudeginum.   Ég fékk fyrstu rörin mín 1.júli. Það var reglulega vont og ég var með bólgna hlust og blóðvilsu úr eyrunum í nokkra daga, en nú sef ég líka betur. Skömmu seinna fór leikskólinn í frí og við mamma og Didda fórum fljúgandi til Vestmannaeyja. Ég var auðvitað hin sprækasta í vélinni eins og alltaf og við kíktum á Þóru mina milli véla. Það var gaman í stóra fallega húsinu hennar Fanneyjar en reyndar læstu þær mamma alltaf inn í mest spennandi herbergin, skil nú ekki af hverju. Eftir nokkra daga sigldum við til Þorlákshafnar og keyrðum svo í sveitina til Arndísar stóru diddu og krakkanna hennar. Þar var líf og fjör, nóg af dóti og við Stella Björk lékum okkur daginn inn og út. Við fórum líka í heimsókn að Ljótarstöðum og Ásum og amma og María Ösp voru duglegar að heimsækja okkur. Helga, hin stóra diddan mín var líka hjá okkur langa helgi svo mamma hafði allar stelpurnar sínar og ömmustelpuna hjá sér í einu og var ekkert smámontin. Ég var komin með dálitla heimþrá og spurði mikið eftir pabba þegar leið á aðra vikuna að heiman. Helga kom og sótti okkur í sveitina og fór með okkur til Þóru og næsta dag kom Pabbi minn! Þar urðu miklir fagnaðarfundir og ég vildi fara strax heim í Berghól, en við vorum tvo daga í borginni. Þar stóð Fjölskyldu-og húsdýragarðurinn uppúr, fékk að fara tvisvar og hoppa lengi, lengi á Ærslabelgnum góða. Ferðin endaði á heimsókn til hjartalæknisins, ég fékk góða skoðun að vanda og svo brunuðum við heim. Það var eiginlega besti hlutinn, að komast aftur heim í dótið mitt og góða húsið okkar. Síðan höfum við aðallega legið í leti en mamma er búin að lofa því að fara bráðum með mig á Álfastein þótt allir séu enn í fríi. Núna er ég uppi með Diddu og Teklu vinkonu okkar og kannski get ég platað þær með mig út á eftir ef mamma nennir ekki, knús frá Birtu Rós Stóru Stelpu.

0 | 25.7.2009 14:08:55 #

Jæja góða ætlar þú þá að hlaupa frá mér um helgina? Hlakka mikið til að sjá ykkur öll. Kv. Þóra
Þóra | 0 | 4.6.2009 14:23:31 #