-
Hæ stóra stelpa, gaman að þið eruð komnar í tölvusamband aftur, var að vona að þú kæmir í réttir með okkur hinum, bíðum eftir ákvörðun mömmu þinnar, bestu kveðjur ÞóraÞóra|12.9.2007 14:26:42
-
Halló litla (stóra)skottan mín, bara að sýna þér að ég kíki stundum líka á þína síðu! Bestu kveðjur frá bestu mömmunni þinni!Stella Sverrisdóttir|0|14.9.2006 16:18:49
-
Sæl og blessuð Linda Líf, þú ættir að varast að skrökva að fólki á heimasíðu þinni, þú ert sannarlega ekki að læra á myndinni, bara smá ´grín, hlakka til að sjá þig seinna í dag kveðja ÞóraÞóra|14.9.2006 12:20:49
-
Til hamingju með afmælið Linda mín.Það var gaman að hitta þig þegar við komum norðurþú ert alveg sérstaklega dugleg og klár stelpa,Birta Rós er serstaklega heppin að eiga þig fyrir systur.Kveðja til allra Kolla frænkakolbrún|2.8.2006 15:27:19
-
Hæ Linda Líf og til hamingju með daginn :) Ótrúlega skrýtið að þú skulir vera orðin 10 ára. Ég man svo vel þegar ég sá þig fyrst og hafði svo miklar áhyggjur af þér af því mér fannst þú svo pínu, pínulítil. Núna ertu hins vegar alls ekkert lítil lengur heldur stór og klár stelpa. Risaknús frá Eyjum :)Fanney|1.8.2006 08:57:41
hæhæ, ég er að gera bakrunna og svoleiðis á barnaland síður! ef þú hefur áhuga endilega kíkja á síðuna mína! 1 síða kostar 1000kr!:DAníta | 0 | 28.6.2006 20:11:16 #
Halló aftur, þá er nú að koma vor og sumarfrí. Á föstudaginn var kom Bjarndís vinkona mín með mér heim og gisti. Við gerðum ýmislegt af okkur (segir mamma) og á laugardag fórum við í Kjarnaskóg og borðuðum svo á Glerártorgi. Svo keyrðum við Bjarndísi heim og fengum að skoða lömbin hjá þeim og ég varð svo eftir. Við settum upp bú og lékum okkur í bakstri og matargerð. Á sunnudaginn vorum við úti allan daginn, fórum bara inn að ná í mat í hádeginu. Það á að mála stóra mynd utaná skólann minn í vor og allir sem vildu tóku þátt í samkeppni um mynd til að setja á vegginn. Það voru þrjár myndir sem unnu og ég átti eina þeirra! Það eru 5000 króna verðlaun fyrir hverja mynd sem verða afhent á skólaslitunum. 1. maí fór ég með pabba, mömmu, Birtu Rós, Maríu Ösp, Fanney og Árna í Möðruvallakirkju þar sem séra Sólveig Lára Guðmundsdóttir skírði okkur stelpurnar. Við María Ösp lásum úr Biblíunni og við sungum öll saman tvö sunnudagaskólalög. Við fengum kerti með mynd af engli með okkur heim. Það stendur Guð blessi þig á þeim og ég ætla ekki að brenna mitt. Við María Ösp fórum stundum á KFUK fundi í vetur og erum í barnastarfi hjá Sólveigu og Gylfa einu sinni í viku í skólanum. Svo erum við að fara í sumarbúðir á Úlfljótsvatni í júlí og erum strax farnar að hlakka mikið til. Skrifa meira seinna, bless bless, Linda Líf!
-
hæhæMaría Ösp|24.3.2006 17:58:18
-
Halló Linda Líf. það er gaman að lesa á svona fjörugri síðu það dansar allt fyrir augunum á mér.Ármann Daði var veikur í heila viku en fór svo á íþróttamót í gær og á Æskan og hesturinn. í Reykjavík í dag.Vonandi kemur þú í heimsókn í páskafríinu. Bless Bless ÁstaÁsta í sveitinni|12.3.2006 11:11:21
hæhæ það er soldið erfitt að lesa herna en englarnir eru samt mjög fallegir. Dugleg að læra se eg hittums vonandi bráðum. Arndís og fjölskyldaArndis | 0 | 22.2.2006 20:41:24 #
Halló stóra frænka, þú ert nú ekki mikið fyrir að láta okkur hérna fyrir sunnan fá fréttir af þér, geri ráð fyrir að þú hafir lítinn tíma til að sinna svona tölvuskrifum, þessi snjókorn eru svolítið truflandi, en hvað um það, bið kærlega að heilsa Maríu Ösp svo og öllum þarna í Berghólnum ÞóraÞóra | 0 | 10.2.2006 08:16:12 #
Halló Linda, Ég kíki alltaf reglulega á siðurnar ykkar Birtu þó ég kvitti ekki alltaf, því það er kanski einum of að ég kvitti á hverjum degi.. Æðislegar síður. Góða skemtun á Kanarí. Kveðja Sillasilla á Hjalteyri | 0 | 2.1.2006 14:47:21 #





