Heimasíðan okkar er læst, sendið mömmu tölvupóst á katan82@hotmail.com ef þið þekkið okkur og vantar lykilorðið
Brynja Björk fæddist á Landspítalanum við Hringbraut þann 5. janúar 2005, hún var aðeins að flýta sér í heiminn en hún var ekki væntanleg fyrr en 10. janúar.
Mamma byrjaði að fá hríðir um hádegi þann 4. janúar. Um klukkan korter í eitt eftir miðnætti voru mamma, pabbi og amma Dísa komin upp á fæðingardeild, þá var mamma komin með 4-5 í útvíkkun. Fæðingin gekk frekar hratt fyrir sig, ég var komin í heiminn kl: 3:24.
Hún var tekin með klukku vegna þess að hjartslátturinn hennar var farinn að hægja á sér og kom í ljós að naflastrengurinn var vafinn um hálsinn á henni, en það reddaðist allt og pabbi klippti stoltur á naflastrenginn.
Brynja Björk vó 3900gr. (tæpar 16 merkur) og var 50,5 cm, með mikið svart aðeins liðað hár og spékoppa í báðum kinnum, mömmu sýndust augun hennar verða blá og það var rétt hjá henni því þau eru himinblá:)
Kristófer Haukur fæddist á Landspítalanum við Hringbraut þann 6. júlí 2008, deginum fyrir settan dag.
Mamma byrjaði að fá hríðir um kl: 19:00 þann 5. júlí. Um klukkan 23:00 voru mamma, pabbi og Sigga komin upp á fæðingardeild, þá var mamma bara komin með 1-2 í útvíkkun en það kom í ljós að Kristófer Haukur var sitjandi og því þurfti mamma að fara í keisaraskurð. Kristófer Haukur kom í heiminn kl: 2:36
Hann vó 4495 gr (18 merkur) og var 52 cm með ljós skollitað hár, spékoppa í báðum kinnum og blá augu
Mamma okkar heitir Katrín Ingibjörg fædd 1982 og pabbi okkar heitir Birgir fæddur 1976. Mamma er fædd og uppalin á Selfossi en pabbi er úr Breiðholtinu. Við búum hjá mömmu í Reykjavík.
Móðuramma okkar heitir Sigga Dísa og býr í Grafarvoginum ásamt honum afa Didda, móðurafi okkar hét Kristófer en hann dó þegar mamma var lítil stelpa.
Föðuramma okkar og afi heita Haddý og Mummi og þau búa í Breiðholtinu.
Svo eigum við einn langafa sem heitir Haukur

|