| Velkomin í heimsókn! |
| Ég heiti Júlía Rún Árnadóttir Mamma er búin að læsa myndunum og vefdagbókinni, en lykilorðið er gælunafnið hennar mömmu, bara sleppa kommunni ;) Mamma er ofsa dugleg að uppfæra gullkornin, en annað er svolítið lengi í vinnslu alltaf, endilega kíkiði á hvað ég er sniðug! PS ég varð stóra systir 20.janúar 2011 og litla systir er líka komið með síðu http://barnaland.is/barn/93661/ |
|
Fjölskyldan mín
Ég fæddist þann 16. júní 2005 á fæðingadeild Sjúkrahúss Keflavíkur.
Ég vó 3935g og var 54,5cm löng. Ég var líka ofsalega falleg á litinn, gullbrún og með dökkt og mikið hár. Ég tók minn tíma í að fæðast (9klst eftir að vatnið fór og harðar hríðir allan tímann) því ég vildi gera það rétt og skaða mömmu sem minnst en náði samt að viðbeinsbrjóta mig. Ljósmóðirin sem tók á móti mér er komin í dýrlingatölu á þessu heimili og heitir hún Margrét Knútsdóttir. Mamma mín heitir Guðrún Ösp Theodórsdóttir (´81) og pabbi minn heitir Árni Rúnar Jónsson (´76). Mamma er hjúkrunarfræðingur en pabbi er vélstjóri á frystitogaranum Guðmundi VE. Ég er þeirra fyrsta barn saman en fyrir á pabbi systur mína hana Alexöndru Líf Árnadóttur sem er fædd árið 1998. Svo eignaðist ég litla systur, hana Heiðrúnu Helgu, í janúar 2011. |
|
|
|
Það sem við erum, er gjöf Guðs til okkar. Það sem við verðum, er gjöf okkar til Guðs
Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu. "Júlía" Nafn þetta er ýmist talið komið af gríska orðinu "jovilios" sem merkir afkomandi Júpíters eða að það sé komið af gríska orðinu "iolus" sem merkir þakinn dúni, - dúnmjúk. "Rún" Nafn þetta merkir töfrastafur, - leyndardómur, vinur í raun. Einhvers staðar lásum við líka að Júlía væri komið af Júlíus sem þýðir unglingur, þá er endaleg merking nafnsins: "Leyndardómur unglingsins" Systur mínar: Alexandra Líf systir mín Litla systir mín Annað áhugavert í mínu lífi: Leikskólinn minn vinnan hans pabba vinnan hennar mömmu |
| Þú ert gestur nr. 38053 |