Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Júlía Rún
Júlía Rún
jólalögin æfð í október 2011...
Júlía Rún: Nú skal segja, nú skal segja hvernig gamlir karlar gera...BORA í nefið....
Hmmm, maður fer að hugsa um hvernig hún sér gömlu karlana í lífi sínu fyrir sér :)
0 | 12.10.2011 21:29:09 #
Nammigrís, sem sver sig í móðurættina...
Júlía og mamma voru að horfa á Kastljós og þar var kokkur að búa til allskyns fígúrur úr súkkulaði. Þá segir Júlía: Oh, mig langar svo í súkkulaði við að horfa á þetta. Og stuttu seinna: Mamma, ég er alveg að deyja, mig langar svo í súkkulaði, ég get ekki hætt að hugsa um súkkulaði eftir að ég sá þetta í sjónvarpinu! Svo við mæðgurnar fengum okkur súkkulaði :)
0 | 12.10.2011 21:26:12 #
Fann nýtt nafn á Heiðrúnu Helgu...
Júlía að leika við HH: "Ég er búin að finna nýtt nafn á þig, VillingaVör!" (Heiðrún með tvöfalda vör eftir eitt fallið og að villingast eins og venjulega)
0 | 9.10.2011 19:12:26 #
Mannasiðir Gillz
Júlía: Ég veit alveg hvernig maður passar að skíta ekki út klósettið þegar maður er að kúka
Mamma: Hvernig?
Júlía: Sko maður setur klósettpappír fyrst og svo kúkar maður
Mamma: Já það er sniðugt, hver kenndi þér það?
Júlía: Gillz
0 | 9.10.2011 19:11:03 #
Lélegt símanúmer!
"8689427, vá mamma hvað þú ert með lélegt símanúmer" Júlía Rún að læra nokkur vel valin símanúmer...
0 | 9.10.2011 19:10:00 #
Hvað er máni? (Júlía Rún 6 ára, 5.október 2011)
Umræða um orðið máni ásamt öðru. Júlía hafði nefnt þetta orð sem dæmi um orð sem innihalda "m". Mamma: "Veistu hvað máni er?" Júlía Rún: "Já, það er svona sem maður lætur fána á- Fánimáni..."
0 | 6.10.2011 09:34:33 #
Framtíðarplön 6 ára skvísu, þegar fyrsti skóladagurinn er framundan (innblásið af því að Jóhanna Guðrún var að syngja í útvarpinu og Júlía Rún frétti þá að söngkonan hefði byrjað að syngja mjög ung inná plötur...reyndar skildi hún það ekki fyrr en ég sagði geisladiska...)
"Þegar ég verð stór verð ég örugglega fræg og þá flyt ég til útlanda og gleymi hvernig á að tala íslensku"
0 | 23.8.2011 23:44:49 #
Umræða um aldur...
"Mamma hennar Helgu Guðrúnar er alveg eitthvað fjörtíu! Hún er sko eldri en pabbi!!!!" (mjög hneyksluð, eins og pabbi sé steingervingur...og já, veit þá ekki hvað Agnes greyið á að vera)
0 | 23.8.2011 23:42:50 #
Veiðiferð?
Júlía Rún: Helga Guðrún er að fara á Sauðárkrók að sækja pabba sinn, hann var að veiða í 3 daga!
Mamma: Já ekki eins og pabbi þinn gerir í mánuð
Júlía Rún: Nei, hann er sko að veiða niður á höfn í öðrum sjó í þrjá daga.
Mamma: Nei, er hann ekki að veiða í á eða vatni
Júlía Rún: NEI! niður á höfn! Hann sefur í bílnum held ég...í þrjá daga!
0 | 8.8.2011 18:27:04 #
Veiðiferð?
Júlía Rún: Helga Guðrún er að fara á Sauðárkrók að sækja pabba sinn, hann var að veiða í 3 daga!
Mamma: Já ekki eins og pabbi þinn gerir í mánuð
Júlía Rún: Nei, hann er sko að veiða niður á höfn í öðrum sjó í þrjá daga.
Mamma: Nei, er hann ekki að veiða í á eða vatni
Júlía Rún: NEI! niður á höfn! Hann sefur í bílnum held ég...í þrjá daga!
0 | 8.8.2011 18:26:44 #
Júlía og mamma voru að hlusta á biblíusögur á gamalli kasettu. Sögumaðurinn: Jósef, María og asninn komu að gistihúsi.....o.s.frv....
Júlía Rún: Mamma, af hverju kalla allir hann asna?
0 | 20.4.2011 15:23:05 #
Júlía Rún fór út í búð fyrir foreldra sína að kaupa mjólk....hér kemur nokkurn veginn hennar lýsing á ferðinni:
"Sko þetta var svolítið löng leið og ég var orðin mjög þreytt en ég talaði bara við sjálfa mig...svo ég hefði einhvern að tala við"
0 | 12.4.2011 20:06:47 #
Verið að ræða um það að Júlía hafi rifið í hárið á Alexöndru þegar hún var ungbarn, í tilefni þess að Heiðrún er byrjuð á slíkri hegðun...
Pabbi! ég reif og reif bara eins og fætur toguðu!
0 | 12.4.2011 09:11:42 #
Rætt um leikskólann í byrjun mars 2011:
Mamma: Hvað ertu að læra á leikskólanum núna Júlía mín, tölurnar?
Júlía: Nehhh ég er eiginlega hætt að pæla í þeim.
0 | 4.3.2011 13:00:19 #
Reynt fyrir sér í göldrum....
Júlía var rúmlega 4 ára þegar hún var nýbúin að horfa á Bibi Blocksberg sem er mynd um litla norn. Þá kom mamma að henni standandi fyrir framan klósettið að segja galdraþulu sem endaði á: Hex hex! og svo horfði hún á klósettið og beið eftir því að það sturtaði sjálft niður!
0 | 4.3.2011 12:59:25 #
Áhrif sjónvarpsins í janúar 2011
Mamma fer að skamma Júlíu fyrir að hafa ekki sturtað niður eftir klósettferð.
Júlía: En mamma, ég gerði eins og Gillz, sturtaði niður eftir fyrsta!
(Nýbúin að horfa á mannasiði Gillz í sjónvarpinu sem kenndi körlum að sturta niður eftir fyrsta stykkið til að lágmarka lyktina...)
0 | 2.2.2011 20:16:38 #