Velkomin á síðuna okkar
Við heitum Snædís Eva og Ingi Þór, 6 ný albúm sett inn 14.janúar 2012


Um mig:
25.ágúst 2011: Núna er Snædís Eva byrjuð í 2.bekk í Kópavogsskóla, hún er með sama kennara og í fyrra, hana Rögnu. Hún virkar bara mjög ánægð með að vera byrjuð aftur í skólanum. Fimleikarnir eru byrjaðir aftur og svo stefnir hún á að vera eitthvað í fótboltanum og svo í skólakórnum.
Ingi Þór er orðinn 4ra ára og er kominn á "stóru" deildina, Krummadeild í leikskólanum Kópahvoli þar sem Snædís Eva var líka. Hann á það til að vera aljör gaur og svolítið stríðinn. Hann er mjög mikill boltastrákur og fer örugglega fljótlega að æfa fótbolta.

Snædís Eva fæddist á Landspítalanum þann 2. desember 2004 kl. 21.42. Hún var 49.5 cm og tæpar 12 merkur (2970 gr) þegar hún kom í heiminn. Var með fullt af dökku hári (miklu meira hár heldur en mamma og pabbi bjuggust við) og dökkblá augu.

Ingi Þór fæddist á Landspítalanum þann 21. ágúst 2007 kl. 09.27. Hann var 52 cm og tæpar 16 merkur (3925 gr) sum sé næstum því kílói þyngri en systir sín. Hann var með enn dekkra hár en Snædís Eva og nóg af því.

Mamma okkar heitir Kristjana Jónasdóttir og pabbi okkar heitir Þorsteinn Ingi Kruger. Við eigum heima í Kópavogi í húsi sem við erum að gera upp, og loksins núna 16.desember 2009, nákvæmlega 5 árum eftir að við fluttum inn á neðri hæðina gátum við flutt inn á efri hæðina og lífið er ljúft :)




Annað:

FRÆNDUR OKKAR OG FRÆNKUR:
Sverrir Þór, Þórdís Magnea, Jónas Breki og Margrét Brynja
Jóhanna og Kolbrún
Sigurður Atli og Thelma Guðrún
Aron Freyr
Kristófer Davíð, Alexander Örn og Emelía Ósk
Aron

VINIR OKKAR:
Erlingur Ísar og Birkir Gunnar
Júlía Margrét og Haukur Óli
Jón Páll, Leifur og Marel Haukur
Sigurlaug Inga, Gyða Kolbrún og Herdís Halla
Vigdís Edda
Ólafur Þór






Þú ert gestur nr. 20042