Þetta er heimasíðan mín!
Við heitum Bjarki Hall og Eydís Hall


Um mig:
Bjarki fæddist að kvöldi 18. júlí 2002, þeim mikla sólskinsdegi, í Hreiðrinu á LSH í Reykjavík. Hans síðustu stundir í móðurkviði hlustaði hann á hamarshögg góðra manna fyrir utan gluggann, þar sem verið var að smíða barnaspítalann. Alveg síðan þá hefur hann verið mikill aðdáandi Bubba Byggis, sem að sjálfsögðu stjórnaði því mikla verkefni. Bjarki fæddist þakinn fósturfitu, gullfallegur og frískur, með heilmikið svart hár, sítt að aftan og yfir eyru. Hann vóg 3.660 gr. og mældist 53 cm. Þegar þau mamma hans voru komin á skrið þyngdist Bjarki HRATT og örugglega, fékk hinar myndarlegustu bollukinnar sem hann flaut á í ungbarnasundi!! Mjög heppilegt. Hárið lýstist og það fór honum bara líka vel. Bjrki er mjög duglegur og góður drengur og fær oft að heyra það.
Fyrir utan Bubba Byggi og hans vinnuvélum hefur Bjarki alltaf haft gaman af alls kyns ökutækjum, syngur allan liðlangann daginn og hef alltaf haft gaman af bókum. Bæði til að skoða og láta lesa fyrir sig. Sumar gat hann meira að segja lesið sjálfur eftir minni - þessar allra vinsælustu. Byrjaði á því um 20 mánaða gamall. Bjarki er mjög félagslyndur og síkátur (nema þegar hann er svangur...það liggur víst í ættir!!)

Eydís, litla systir hans, fæddist í Hreiðrinu, LSH, 17. desember 2007. Hún átti reyndar að vera nýársbarn ársins 2008 en ákvað að aðventan væri betri tími til að eiga afmæli, kom því tveimur vikur fyrr en áætlað var, aðeins viku fyrir jól! Þessa hugmynd fékk hún daginn sem jólatré fjölsyldunnar var hoggið niður í Heiðmörk og eftir þrusugóða afmælisveislu eins jólastráks í Keflavík ;-) Vatnið fór um kvöldið og hún hafði áætlun móður sinnar um að fara í próf þann 17. des að engu!
Eydís kom öskrandi í heiminn og lét vel í sér heyra. Hún vóg 3.325gr (13 merkur) og var 52cm að lengd. Hún var alveg eins og bróðir sinn...og kom því á óvart að hún væri stúlka. Með mikið svart hár, gullfalleg og augun voru dökk, heldur dekkri en hjá stóra bróður rúmum fimm árum áður.
Eydís var strax dugleg að drekka og ætlar að vera fljót að ná stóra bróður sínum :-)