|
| Við erum systkinin Eygló Anna, Elva Sól, Agnes Inga og Adam Smári Ottesen |
|
|
Um okkur:
Eygló Anna fæddist miðvikudaginn 20 janúar árið 1999. Hún var 3485 grömm og 50 cm, sem sagt tæpar 14 merkur. Hún fæddist með mjög lítið hár og blá augu.
Elva Sól fæddist þann sólríka dag sem föstudagurinn 13 júlí árið 2001 var. Hún var 3720 grömm og 50 cm, sem sagt tæpar 15 merkur. Hún fæddist með lítið hár og bláleit augu. Agnes Inga fæddist föstudaginn 12. maí 2006 á sólríkum degi. Hún mældist við fæðingu 4490 grömm og 52 cm. Sem sagt tæpar 18 merkur. Hún fæddist með ágætlega mikið hár og bláleit augu. Adam Smári fæddist miðvikudaginn 12. september 2007 á al íslenskum haustdegi, sem sagt rigning og rok. Hann mældist við fæðingu 3705 grömm og 50 cm. Sem sagt tæpar 15 merkur. Hann var með lítið hár og bláleit augu.
Eygló Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" sem merkir hamingja, - heppni og sögninni að glóa. Í skáldamáli merkir nafnið sól. Anna Nafn þetta kemur frá hebreska orðinu Channa sem merkir náð.
Elva: Nafn þetta er dregið af orðinu "elfur" sem merkir á. Einnig gæti það tengst orðinu "Álfur" í merkingunni huldumaður. Einnig getur það verið stytting nafnsins "Elvira" frá Norðurlöndum og merkir hin hvíta. Sól: Nafn þetta er komið af nafnorðinu "sól".
Agnes: Nafn þetta kemur að öllum líkindum úr grísku. Þar merkir það hreinn, - skírlífur. Agnes var vinsæll dýrlingur á miðöldum og er Agnesarmessa haldin þann 21. janúar ár hvert í kaþólskum sið. Nafnið Agnes gæti því táknað ljúfmennsku og hið góða. Inga: Nafn þetta merkir konungborin.
Adam: Nafn þetta merkir maður. Adam var fyrsti maðurinn sem var skapaður af Guð. Smári: Nafn þetta táknar jurtina smárann.
Elsku mamma Ég elska þig svo mikið og mig langar svo til að segja þér af hverju Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig Þú ert besta mamman í öllum heiminum Ég á þér svo margt að þakka Ég er svo stolt yfir því að vera dóttir þín Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda Þú lýsir upp líf mitt Frá þér streymir kærleikur og hlýja Þú ert skilningsrík og viskubrunnur þinn er óþrjótandi Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag ef ég hefði ekki átt þig að Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda og hvenær ég þarf uppörvun Þú þekkir mig svo vel Ég veit að til þín get ég alltaf leitað Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig ÞÚ ERT BEST Til Pabba míns Ég elska þig af því að þú elskar mig. Mér finnst þú frábær og æðislegur og þú verður það alltaf. Ég elska þig vegna þess að þú vinnur svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak yfir höfuðið okkar Ég elska þig svo mikið vegna þess að þú skammar mig aldrei og gefur mér nammi. Ég elska þig vegna þess að þú er PABBI MINN !!!! |
|
|
Annað:
Mamma okkar heitir Jónína Edda og er fædd árið 1979 og pabbi okkar heitir Guðlaugur og er fæddur árið 1976.
Arnór Breki Atlason <> <> <> <> |
| Þú ert gestur nr. 16242 |