Ég heiti Birta Líf


ÞETTA ER ÉG;)

Ég heiti Birta Líf og er sjö ára prinsessa.Ég fæddist á heimsins fallegasta degi þann 5.apríl 2002 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.Þegar ég fæddist var ég voðalega lítil eða 7 merkur og 42 cm.Það þurfti að flytja okkur mömmu strax eftir fæðingu á vökudeild Landsspítalans,sem við vorum á í 10 daga.Þegar ég var orðinn eins árs var ég greind með Russell Silver Syndrome.Í dag er ég rosalega dugleg stelpa.Núna er ég komin í annan bekk og gengur mér rosalega vel.Mamma mín heitir Ólína Þuríður Lárusdóttir og pabbi minn Ólafur Oddgeir Einarsson.Þau eru allveg endalaust stolt af mér.Pabbi segir alltaf að ég sé litla músin sín.Ég á einn stórann bróðir sem heitir Stefán og er ellefu ára.Hann á heima í Njarðvík.Svo eignaðist ég lítinn bróðir í okt´09 hann heitir Lárus Einar.Mömmu og pabba finnst við fallegustu börnin í öllum heiminum:)






Þetta kerti logar fyrir elsku frænda minn Pétur Snæ
f:21.10.92-d:17.05.06

Fjölskylda mömmu: Foreldrar mömmu minnar heita Ólína Alda Karlsdóttir og Lárus Ólafsson,þau búa í Kópavogi.Ég er mikil ömmu og afastelpa og mér finnst voða gaman að heimsækja þau.Mamma á nokkur systkini,en mamma er næst yngst.Systkyni hennar eru Gréta, Jón karl, Brynjar Mar og Kristinn sem á heima í Hafnarfirði.

Fjölskylda pabba: Foreldrar pabba minns heita Jóhanna Auður Árnadóttir og Einar Pálmason þau eiga líka heima í Kópavogi eins og hin amma mín og afi.Það er líka rosalega gaman að heimsækja þau og leika hjá þeim.Pabbi á tvö systkini sem heita Árni Jens og Erna Pálmey.













Ljós í myrkri, langt og mjótt
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu kominn
inní heiminn, lítill dofinn.
Dregur andann hið fyrsta sinn

Þú ert vorið, vindur hlýr
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni,
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég.

Líf.
Ljómi þinn er skínandi skær.
Líf.
Augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf
því ég á
þetta líf.

Óskadraumur -ásýnd þín.
Ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi
þessa stund ég elltaf geymi
í mínu sinni ókomin ár




Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til




Elsku Mamma og pabbi

Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni

Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir

Ekki slá á hendurnar á mér þegar
Ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta

Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera



MAMMA ER KONAN..

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.



Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.








Bróðir minn

Viktor Patrik frændi minn

Sóldís Kara og Brynja Dís frænkur mínar

Katrín Helga frænka mín

Frændsystkinin mín á Suðurgötunni

Frændsystkinin mín í Garðinum

Hildur Helma og Sara Mist frænkur mínar

Róbert Páll frændi minn

Kara Petra frænka mín

Snæfríður Una frænka mín

Birgitta Sól frænka mín

Emma Karín frænka mín

Aron Freyr frændi minn

Thelma Lind frænka mín

Ársæll Kristinn og María Rós

Gunnar Freyr vinur minn

Alexander Breki vinur minn









Þú ert gestur nr. 18462