VELKOMIN
Ég heiti Valdís Una og er ekkert smá mikið krútt ;o)


Um mig:
Mamma og pabbi ákváðu að læsa síðunni okkar og lykilorðið er bæjarnafnið á sveitabænum okkar ef þið munið ekki hvað það er hafið þá bara sambandi í e-maili... ;o)



Ég fæddist 17. ágúst á Landsspítalanum. Fæðingin gekk mjög vel, Mamma og pabbi komu upp á spítala klukkan hálf tólf um kvöldið og belgurinn hjá mömmu var sprengdur klukkan 12:10 og ég var komin í heiminn kl 01:05, þannig að allt gekk mjög hratt fyrir sig. Ég var 49 cm og 12 og 3160 gr og ofsalega hress ;o)
Pabbi minn heitir Guðmann Unnsteinsson og mamma mín heitir Ragnheiður ósk Guðmundsdóttir. Ég á eina stóra systir sem heitir Laufey Helga og er 4. ára gömul og er ekkert smá dugleg að hjálpa mömmu og pabba að hugsa um mig ;o) Við búum á sveitabæ rétt furir utan Flúðir og mér finnst ekkert smá gaman að búa í sveitinni og dafna ekkert smá vel þar ;o) Svo er líka svo gaman að hafa ömmu og afa rétt hjá okkur, og auðvita uppáhaldsfrænda minn hann Palla ;o)








Til þín

Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til









PABBI ER MAÐURINN

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og annað fólk.

Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.










MAMMA ER KONAN.....

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, tildæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!









Bara í dag....

-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast
og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...



-ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...

-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu...

-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...

-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt...

-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...

-ælta ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...

-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór...

-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...

-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki
hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...








Annað:
Ég á fullt af ömmum og öfum og langömmum og líka eina langalangömmu. ´
Afi minn og amma í föðurætt heita Unnsteinn Hermannsson og Valdís Magnúsdóttir. Pabbi á eina eldri systir sem heitir Sæunn Ósk og einn lítinn bróðir sem heitir Páll Magnús sem er fjögra ára. Í móðurætt er það afi minn Guðmundur Helgi Þórarinsson og amma mín Laufey Sveinbjörnsdóttir. Mamma á eina systir sem Heitir Halldóra Jóna og kærasti hennar heitir Airidas.
Ég á alveg 4 langömmur, og eina langalangömmu. Ég er ekkert smá rík af ömmum og öfum ;o)
Svo er ég á leikskólanum Undralandi og mér finnst ekkert smá gaman þar og er ég rosaleg ráðskona þar ;o)










Til pabba míns.

Ég elska þig svo mikið af því að þú elskar mig, mér finnst þú frábær og æðislegur og þú verður það alltaf. Ég elska þig vegna þess að þú vinnur svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak yfir höfuðið. Ég elska þig svo mikið vegna þess að þú skammar mig aldrei og gefur mér nammi. Ég elska þig vegna þess að þú ert PABBI MINN!!!!. Faðir er sá sem veldur því að þér finnst þú ómissandi þótt engum öðrum finnist það.



















Bara Í Kvöld....

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...

-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...

-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...

-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...

-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.

Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra. Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt... ...nema annan dag með

þér...





LJÓNIÐ
23. júlí - 22. ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.


Þú ert gestur nr. 7669