Núna eru
online
(o: Við erum sætustu systkini í heimi :o) Nýjar myndir settar inn 12. júní 2011


Um okkur:
Ég Ólöf Inga fæddist 19. febrúar 2005, kl. 17:43, á sjúkrahúsinu á Akranesi. Mamma var skrifuð 9. febrúar en ég ákvað að láta bíða aðeins eftir mér ;o) Þegar ég loksins ákvað að koma í heiminn mældist ég 3450 g eða tæpar 14 merkur og 50 cm og var með fullt af brúnu hári og blá augu.

Ég Tinna Guðrún fæddist 17. des. 2006 kl. 20:36, á sjúkrahúsinu á Selfossi. Mamma var skrifuð 13. des. en eins og stóra systir ákvað ég að láta bíða aðeins eftir mér, samt ekki eins lengi og hún. Ég fæddist 53 cm og 4.145 gr eða tæpar 17 merkur. Ég var alveg með fullt af dökku hári og augun mín voru líka voða dökk en verða sennilega blá.

Ég Helgi Freyr fæddist 17. febrúar 2010 kl. 8:46 á sjúkrahúsinu á Akranesi. Mamma var skrifuð 7. febrúar en ég var ekkert að drífa mig í heiminn og lét bíða í 10 daga eftir mér :o) Þegar ég fæddist var ég 4.225 gr eða tæpar 17 merkur og 53 cm. Ég var með soldið af brúnu hári og dökk augu sem síðar urðu blá.

Mamma og pabbi heita Þórey Björk og Sigurjón. Við eigum heima á bæ sem heitir Melur og er í Mýraasýslu. Bæði mamma og pabbi eru útskrifaðir búfræðingar og ætla að leggja fyrir sig búskapinn. Við verðum því dugleg sveitabörn ;o)

Mamma og pabbi ákváðu að læsa myndalbúminu okkar en endilega biðjið mömmu bara um lykilorðið!!! Það virðist ekki virka alltaf að biðja um lykilorðið í gegnum síðuna en þá getið þið sent mömmu á netfangið hennar sem er torey85@msn.com eða bara skrifað netfangið ykkar í gestabókina og mamma sendir ykkur það svo.




Annað:






Make Glitter Graphics @ Dreamy-Delight.com

Nafnið Ólöf er lagað af nafninu Ólafur, sem er víxlmynd við fornnorræna nafnið "Áleifur" það er samsett af forliðnum "Anu" sem merkir forfaðir og viðliðnum "laibar" sem merkir afkomandi, - erfingi.
Nafnið Inga merkir konungborin.



Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.




Lilypie 5th Birthday Ticker







provided by flash-gear.com




Nafnið Tinna merkir harður, svartur kvartssteinn.
Nafnið Guðrún er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.



Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkenndar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.




Lilypie - Personal pictureLilypie Fourth Birthday tickers



Einstakur" er orð sem notað er þegar lýsa á því sem er engu öðru líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd.

"Einstakur" lýsir fólki sem stjórnast ad rödd síns hjarta og hefur huga í hjörtu annarra. "Einstakur" á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt.

"Einstakur" er orð sem lýsir þér best.





Hvað er kærleikur???


Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur

Kærleikur, er hvert bros sem þú gefur

Kærleikur, er að faðma þann sem grætur

Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir

Kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast

Kærleikur, er að bera umhyggju fyrir öllu sem lifir

Kærleikur er að biðja fyrir öllum, góðum og slæmum

Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra

Kærleikur er að dæma ekki

Kærleikur er ljósið sem býr í hjarta þínu......




Thelma, Guðrún Eygló og Rakel Svava


Steinunn Lára vinkona okkar


Hallbjörn Gísli frændi


Þorkell Finnur og Pálína Sara


Sunna Hlín frænka


Hjalti frændi


Þú ert gestur nr. 29686