Við vorum að koma inn í Borgarnes, seint um kvöld, frá Reykjavík og Ólöf Inga sagði "við eigum að fara í Bónus". Mamma og pabbi sögðu að það væri lokað núna og ekkert heyrðist meira í Ólöfu Ingu fyrr en við vorum að komast út úr Borgarnesi þá segir Ólöf Inga við pabba sinn "Pabbi, ertu ekki að grínast, við eigum að fara í Bónus!". :o) 25. des. ´08
Það var komin sofutími hjá Ólöfu Ingu og það er alltaf lesin saga fyrir hana á kvöldin. Þetta kvöld átti pabbi að lesa fyrir hana, en þegar þau voru að fara að hátta og tannbursta hringdi síminn hans pabba svo hann fór að tala í hann. Mamma ætlaði þá bara að hátta hana, tannbursta og lesa fyrir hana í staðinn en Ólöf Inga var nú ekki alveg á því, þegar hún ákveður eitthvað þá á það bara að vera svoleiðis. Eftir svoldið tuð í mömmu leyfði Ólöf Inga henni að tannbursta sig og klæða í náttfötin en pabbi skildi lesa söguna. Þegar þær voru búnar að þessu var pabbi ennþá í símanum, svo Ólöf Inga settist hjá honum og beið eftir að hann væri búinn að tala. Hún beið í einhverjar mínútur og svo sagði hún loks "Mamma, þú verður bara að lesa fyrir!" :o)
Það var baðdagur hjá okkur skvísunum en mamma var eitthvað mikið að gera og klukkan orðin margt svo hún nennti ekki að baða okkur, hún spurði hvort við ættum ekki bara að fara í bað á morgun. Þá sagði Ólöf Inga "Nei ég verð að fara í bað núna, ég er svo rosalega skítug". :o)
Mamma var að reyna að kenna Ólöfu Ingu hvað allir fingurnir eru kallaðir, þumalfingur, vísifingur, langatöng, baugfingur og litli fingur. Mamma benti á puttana og spurði "hvað heitir þessi?" Ólöf Inga var nú ekki alltaf viss svo mamma gaf henni stundum vísbendingu. Þegar mamma benti á löngutöng þurfti mamma að gefa Ólöfu Ingu smá vísbendingu og sagði "langa?" Þá kallaði Ólöf Inga sigrihrósandi "langamma!". :o)
Við sátum eitt sinn við matarborðið í kaffitímanum, allir voru búnir að drekka. Þá byrjar mamma að syngja eitthvað leikskólalag og ætlaði að fá Ólöf Ingu til að taka undir, þegar hún var nýbyrjuð á laginu sagði Ólöf Inga "það má ekki syngja við matarborðið". Mamma sagði henni að það væri allt í lagi núna því allir væru búnir að drekka. Þá var Ólöf Inga fljót að grípa sér kleinu í hönd og sagði "nei ekki ég" :o)