Við erum mjög heppnar því að við erum fæddar inn í mjög stóra fjölskyldu. Mamma á sjö systkyni og pabbi á fimm. Við ætlum að kynna fjölskylduna okkar lítillega og byrja á mömmu fjölskyldu. Móðurafi og amma heita Þorkell og Guðrún. Þau eiga saman átta börn og búa á Furumel í Mýrasýslu. Amma vinnur á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi en afi er enn við búskap þegar hann er ekki að vinna fyrir austan á ýtu fyrir Suðurverk. Elsta barn þeirra heitir Guðbrandur og er kallaður Bubbi, konan hans heitir Christine og kemur frá Þýskalandi. Þau eiga einn strák sem heitir Þorkell Finnur, hann er á sama ári og Ólöf Inga, og síðan eignuðust þau eina litla stúlku í maí 2007 sem þau skírðu Pálínu Söru. Þau búa á Skörðum í Miðdölunum og eru þar með kindabúskap. Þetta var móðurættin okkar en nú skulum við skoða föðurættina. Föðurafi okkar heitir Helgi, konan hans heitir Regula og kemur frá Sviss. Þau eiga heima í Austvaðsholti í Landsveit. Þau eiga tvö börn saman, þau eru Katíóla sem er farin að Laugarvatni í nám og Símon sem er í sjöunda bekk. Þau eru hálfsystkini hans pabba. Afi á einnig þrjá stráka í viðbót sem hann eignaðist með ömmu. Föðuramma okkar heitir Sigþóra, maðurinn hennar heitir Magnús. Þau búa í Reykjavík. Þau eiga engin börn saman en amma á fjögur börn.![]()
Næstelstur er Jónas, konan hans heitir Inga. Saman eiga þau tvo stráka, Gunnar Braga sem er 11 ára og Þorkel Inga sem er 9 ára. Þau eru nýbúin að byggja og flytja í hús í skógræktargirðingu á Melslandi, og heitir húsið Birkimelur.
Næstur er Gunnar eða Gunni eins og hann er kallaður, kærastan hans heitir Kristbjörg. Þau eiga Hallbjörn Gísla tveggja ára og svo er það Hjalti sem fæddist í júní 2007. Þau búa niður í Tröðum.
Rögnvaldur Rúnar kemur næst, hann er kallaður Röggi, konan hans heitir Gunnlaug eða Gulla. Þau eiga þrjár stelpur, þær heita Thelma, fædd í febrúar 2004, Guðrún Eygló, fædd í febrúar 2006 og Rakel Svava, fædd í ágúst 2007. Þau búa í skógræktargirðingunni á Reynimel.
Mamma kemur svo næst í röðinni en þið vitið nú allt um hana.
Þóroddur er að vinna á Reyðarfirði hjá Suðurverk.
Ágúst er að fara að byrja í Landbúnaðarháskóla Íslands á búfræðideild. Hann er með íbúð á Hvanneyri. Hann er algjör sveitakarl og hefur mjög gaman af dýrunum í sveitinni. ![]()
Eva Sóley er að byrja í Fjölbrautarskóla Vesturlands og býr á vistinni. Hún er algjör hrakfallabálkur og er alltaf eitthvað meidd eða veik. ![]()
Pabbi kemur hérna en þið vitið allt um hann líka.
Benedikt eða Benni, hann er tvíburabróðir hans pabba, við þekkjum þá samt alveg í sundur
. Ragnheiður heitir kærastan hans og eiga þau hana Söru Katrínu sem er 11 ára og svo voru þau að eignast aðra stelpu 2006 sem heitir Birta Marín. Þau búa á Akranesi.
Borgþór eða Boggi, konan hans heitir Ragna. Þau eignuðust litla prinsessu 2006 og var hún skírð Sunna Hlín. Þau eiga heima á Laugarlandi í Holtum.