Fæðing Tinnu Guðrúnar

Klukkan 04:30 aðfaranótt sunnudagsins 17. desember vaknaði mamma eins og flestar nætur til að fara að pissa. Pabbi spurði hana þegar hún var að fara fram hvort það væri nokkuð farið að gerast en mamma svaraði því neitandi. Þegar hún kom aftur upp í rúm og ætlaði að fara að sofa aftur byrjaði hún að finna fyrir einhverjum smá verkjum sem komu og fóru reglulega. Hún náði því ekkert að sofa meira. Hún ákvað samt að bíða, þar sem þetta voru ekkert miklir verkir, þanga til pabbi myndi vakna í fjósið og segja honum þá að eitthvað væri að gerast.
Pabbi slapp því við að fara í fjósið. Mamma hringdi í ljósmóðir eitthvað rúmlega sjö og spjallaði aðeins við hana, ljósmóðirinn sagði að mamma mætti bara að fara að huga að því að koma en þyrfti ekkert að stressa sig þar sem hríðarnar voru enn frekar stuttar. Mamma og pabbi fengu sér þá bara að borða og fóru að taka saman dót á Ólöfu Ingu. Þegar búið var að pakka öllu sem átti að fara með héldu þau af stað en komu við í Austvaðsholti og settu Ólöfu Ingu í pössun þar. Hún var bara kát með það, fór stax að leika við Katíólu og kyssti bara mömmu og pabba bless Smile.
Þau voru komin á fæðingardeildina kl. 9:30, tóku smá rúnt um Selfoss og skoðuðu jólaljósin áður en þau fóru þangað Wink. Þar tók á móti þeim ljósmóðirin Björk,mjög elskuleg og góð,  og setti mömmu í mónator til að sjá hvað væri að gerast. Þegar mamma var búin að vera í honum í 20 mínútur skoðaði ljósmóðirinn strimilinn og sá að það væri nú eitthvað í gangi en fannst hríðarnar samt ekki vera nógu sterkar ennþá, hún skoðaði svo mömmu og var hún þá komin með 2-3 í útvíkkun svo að það var ekkert annað að gera en að bíða. Mamma og pabbi fengu bara eitt herbergið á sængurlegunni til að bíða í þar sem sængurlegan var alveg gal tóm. Þar lágu þau bara í rúmunum og létu fara vel um sig. En þá fóru hríðarnar bara að detta niður og hélt mamma að þær ætluðu bara alveg að hætta en svo var ekki, þær héldu sem betur fer áfram að koma öðru hvoru. Um eitt leytið ákvað ljósmóðirinn að skoða mömmu aftur og athuga hvað þessar hríðar hefðu náð að gera en þá kom það í ljós að þær höfðu ekkert gert, mamma var enn með 2-3 í útvíkkun. Svo þau sáu að það væri nú enn soldið í að ég léti sjá mig og þar sem þetta gekk svona hægt þarna á sængurlegunni ákváðu mamma og pabbi að breyta aðeins til og fara bara á rúntinn og skoða jólaskrautið betur. Þau fóru um tvö leytið og rúntuðum um allt Selfoss, svo fengu þau sér að borða og héldu svo aftur upp á fæðingardeild þar sem mamma fann að verkirnir voru farnir að aukast, en þá var klukkan 16:00. Það var samt ekki fyrr en um sex leytið að ljósmóðirinn skoðaði mömmu aftur og var hún þá komin 6 í útvíkkun. Þar sem þetta var komið svona vel af stað fór ljósmóðirinn með mömmu og pabba inn á fæðingarstofuna. Þar lét hún renna í baðið fyrir mömmu og var mamma komin ofan í það um 19:00. Henni fannst mjög notalegt að vera þar ofan í. Vaktaskipti urðu svo kl. 20:00 svo að Björk fór og Kristín, sú sem mamma hafði talað við í síma um morguninn, var komin aftur á vakt. Þegar Kristín kom inn á fæðingarstofuna voru verkirnir orðnir svo vondir að mamma treysti sér ekki til að fara upp úr baðinu svo að þá var farið í það að undirbúa fæðingu í vatni. Svo loksins fór mamma að finna fyrir rembingsþörf og eftir þrjá rembinga kom ég syndandi úr vatninu og upp í fangið á mömmu Laughing, þá var klukkan 20:36.
Þegar við mamma vorum búnar að klæða okkur og búið að ganga frá öllu var okkur ekið inn á sængurlegu og þar hvíldum við okkur fjölskyldan eftir erfiðan dag Smile. Pabbi fékk að vera hjá okkur þar sem nóg var að lausum rúmum Wink.