Hæ hæ allir! Jæja þetta gengur ekki lengur, nú verðum við að skrifa smá fréttir af okkur hérna inn á, það er sko orðið allt, allt, alltof langt síðan við létum heyra í okkur.
Það er nú svo sem ekkert mikið af okkur að frétta nema þetta venjulega. Sauðburður byrjaður og búinn... allar kindurnar komnar upp í hraun. Við erum með fjóra heimalinga sem við þurfum að gefa. Ólöf Inga er ansi góð að gefa þeim. Ólöf Inga sést varla hérna inni þessa dagana, hún vill bara vera úti með pabba sínum í traktornum og að sinna hinum ýmsu verkum. Svo er trampólínið komið upp svo hún er líka mikið á því, orðin rosa flink að gera rassabombu þar sem hún hoppar lendir á rassinum og skoppar aftur upp á fæturna.
Nú eru bara þrír dagar eftir af leikskólanum hjá Ólöfu Ingu og svo er hún komin í sumarfrí alveg til 1. september, þetta verður gott sumarfrí sem hún fær.
Tinna Guðrún er orðin algjör prílari, hún fer upp um allt. Svo tekur maður hana niður en þá er hún fljót að fara upp á eitthvað annað. Mömmu finnst ansi notalegt þegar Tinna Guðrún er að leggja sig
. Hún er farin að spjalla og spjalla, maður skilur nú ekki alltaf hvað hún er að segja en það er alltaf að bætast við orðaforðan hennar. Hún er búin að vera lasin núna síðustu daga, með hita og hálsbólgu, fórum með hana til læknis á miðvikudagskvöldið því við héldum kannski að hún væri með streptókokka en það reyndist ekki vera. Svo er hún að hressast núna. Tinna Guðrún verður eins og systir sín algjör útigrís, hún unir sér best úti að leika sér, hún á það til að vera soldið vælin inni en þá er gott ráð að klæða hana í útiföt og hleypa henni út og þá verður hún kát. Fer í sandkassann eða spjallar við Pílu getur talað við hana heillengi og ekki finnst henni leiðinlegra að komast í fjósið og fjárhúsin... Hún stefnir í að verða hörkudugleg sveitastúlka eins og systir sín.
Það verður nóg að gera hjá okkur í sumar í heyskap og húsbyggingum, það á að fara að steypa húsin í næstu vikur svo þetta verður í fullri vinnslu í allt sumar, þannig að okkur á ekki eftir að leiðast. Við ætlum nú samt að reyna að fara í eitthvað sumarfrí en hvenær það verður eða hvert veit enginn.
Jæja það verður vonandi ekki eins langt á milli frétta hjá okkur næst. En við biðjum að heilsa í bili. Kveðja Ólöf Inga og Tinna Guðrún
Hæ hæ jæja er ekki löngu tímabært að skrifa einhverjar fréttir hér inn!!!
Ólöf Inga og pabbi áttu afmæli fyrr í vikunni, þau urðu þriggja og þrjátíu ára
. Þau héldu smá veislu um síðustu helgi sem heppnaðist rosavel. Ólöf Inga fékk fullt af flottum fötum og dóti sem hún var rosalega ánægð með og þakkar kærlega fyrir sig. Ólöf Inga unnir sér alltaf jafnvel í leikskólanum og lærir alveg helling á því að vera þar. Hún er líka rosalega dugleg að fara út með pabba sínum að sinna hinum ýmsu útistörfum, varð ekkert smá ánægð um daginn þegar hún fékk svona alvöru fjósagalla eins og pabbi og Ágúst eru alltaf í
. Stundum fer hún út eftir kaffið og kemur ekki inn fyrr en um átta. Þá er hún alveg búin á því og er fljót að sofna á kvöldin, eitt kvöldið var hún ekki einu sinni komin inn í rúm þegar hún sofnaði. Hún settist aðeins fyrir framan sjónvarpið hjá Ágústi og steinsofnaði
.
Tinna Guðrún er alltaf sama rófan...
Hún er farin að príla upp um allt núna, var komin nánast ofan í hókus pókus stólinn sinn um daginn. Síðan prílar hún upp á stól sem er hjá píanóinu og af honum upp á píanóið eða ýtir honum að glugganum og tætir dótið sem er í gluggakistunni
þannig að nú er allt í hershöndum
. Mamma var að vona að Tinna Guðrún myndi bara halda sig niðri á gólfinu og ekki verða eins og Ólöf Inga alltaf prílandi upp um allt... Henni finnst alltaf jafngott að borða, algjört matargat
Hún er farin að spjalla soldið, spyr mann alltaf hvað er þetta? og svo endurtekur hún stundum það sem sagt er við hana. Svo kann hún að segja mamma, pabbi, afa, amma, nammnamm, detta o.fl. Ætlar að vera fyrr en systir sín að byrja að tala.
Við fórum með Ólöfu Ingu til læknis um daginn, nef-, háls- og eyrnalæknir, í eftirlit. Hann skoðaði eyrun hennar og sagði að þau væru í fínu lagi, en hún væri með soldið stóra hálskirtla. Hann vildi samt ekki gera neitt í því strax, bara að bíða og sjá hvað verður. Við létum hann líka skoða Tinnu Guðrúnu og hún var með vökva í öðru eyranu, hann vildi heldur ekkert gera í því strax. Fyrst að það var bara vökvi í öðru eyranu ætlaði hann að sjá hvort hann færi ekki bara sjálfu sér. Vildi samt sjá þær aftur eftir svona þrjá mánuði.
Ólöf Inga var álfaprinsessa á öskudaginn. Þegar hún var búin í leikskólanum fór Eva Sóley með henni að syngja í nokkrum búðum. Hún þorði ekki alveg að syngja í fyrstu húsunum sem þær fóru í en var svo alveg farin að syngja ein hátt og skírt eftir nokkur skipti
. Hún fékk alveg fullt af nammi og hafði rosalega gaman af þessu. Mamma gleymdi að taka mynd af henni í öskudagsbúningnum svo hún verður bara að klæða hana í hann aftur fljótlega og taka mynd
.
Jæja mamma man ekki eftir neinu meiru í bili, skrifar vonandi fljótt aftur. Kveðja systurnar kátu
Hæ hæ allir
Nú ætlar mamma aðeins að skrifa smá fréttir af okkur...
Aðalfréttin er að Tinna Guðrún er farin að labba!
Hún er svo dugleg!!! Þetta er samt allt á svona byrjunarstigi ennþá, hún byrjar allar sínar ferðir labbandi en stundum dettur hún á rassinn á miðri leið og klárar þá bara skríðandi eða stendur bara upp þar sem hún er og heldur áfram
... Hún er sko ekkert að bíða með þetta því fyrstu skrefin tók hún þegar hún var 11 mánaða og viku síðar var hún farin að reyna að labba allar sínar ferðir
Ólöfu Ingu finnst rosasniðugt að sjá litlu systir sína að labba, kallar alltaf til mömmu "Tinna Guðrún að labba" og hlær síðan. Tinna Guðrún er alveg að verða eins árs, bara tíu dagar í það
Mömmu finnst það alveg ótrúlegt að litla rófan hennar sé að verða svona stór, finnst ekki svona langt síðan hún eignaðist hana
.
Ólöf Inga er alltaf söm við sig, hress, kát, dugleg og ákveðin stúlka
. Henni finnst alltaf jafn gaman að vera í leikskólanum en finnst líka voða gott, þá daga sem hún fer ekki, að fá að vera heima
. Núna er hún að raula jólalögin á fullu sem hún lærir í leikskólanum. Henni finnst líka svaka sniðugt að syngja fyrir afa sinn vísuna um afa og ömmu sem fóru út að hjóla, afi datt í drullupoll og amma fór að spóla
Þá segir afi alltaf að hann hafi ekki dottið í neinn drullupoll og þá brosir Ólöf Inga bara og setur upp prakkarasvipinn og syngur það aftur
En annars er bara allt gott að frétta, jólin nálgast og við erum bara að dunda okkur við það sem þeim fylgja, taka til, setja upp jólaljósin, baka og allt svoleiðis... Ólöf Inga fer í jólafrí 20. des. og byrjar ekki aftur fyrr en 2. jan.Við nennum ekkert að vera að vesena við að senda hana í leikskólan á milli jóla og nýárs... viljum bara hafa hana heima hjá okkur.... En mömmu dettur ekkert meira sniðugt í hug svo við kveðjum í bili.... Ólöf Inga söngvari og Tinna Guðrún labbari
Hæ hæ allir saman!!!
Hér erum við mættar á nýjan leik með smá fréttir af okkur. Það er bara allt gott af okkur að frétta, lífið gengur bara sinn vanagang...
Ólöf Inga fer alltaf í leikskólan á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum og er þar frá 9:00-14:00 og líkar bara rosalega vel þar, vill ekkert koma heim þegar er verið að ná í hana langar bara til að vera lengur
. Hún fer alltaf með ömmu sinni í leikskólan á morgnanna því nú er amma farin að vinna þar, samt ekki á Ólafar Ingu deild heldur er hún að vinna á yngstu deildinni. Ólöf Inga er nánast orðin altalandi þetta kom allt hjá henni eftir að hún fór að heyra
. Svo lærir hún fullt af nýjum orðum í leikskólanum eins og í gær lærði hún kúkalabbi
, það eru víst allir í leikskólanum að segja þetta og fósturnar alveg í vandræðum með að láta þau hætta því þeim finnst þetta rosasniðugt orð
.
Hún er alltaf jafn dugleg og þarf alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni, hjálpar mömmu t.d. stundum að taka úr og setja í uppþvottavélina, fara með þvottinn inn í skápa, reynir að brjóta hann saman líka og út í fjósi hjálpar hún til við að reka kýrnar, setja sag í básana og gefa litlu kálfunum... verður örugglega farin að þrífa kýrnar um leið og hún nær upp
Ekki amalegur starfskraftur þarna á ferð
. Hún er ekkert mikið fyrir að sitja kyrr og gera ekki neitt nema núna upp á síðkastið hefur hún soldið viljað suða um að horfa á DVD, reyndar ekki mikið annað hægt að gera í veðrinu sem er búið að vera í allt haust nema að leika við systir sína sem hún er líka dugleg að gera, þær geta dundað sér saman í dótinu og stóra systir nýtur þess að geta stjórnað litlu systir sinni soldið, er reyndar alltaf að verða minna og minna sem hún getur það því að Tinna Guðrún er ansi hreint ákveðin líka.
Tinna Guðrún er líka rosalega dugleg hún er farin að labba með öllu og ýta bílnum eða stólum á undan sér og stundum þegar hún veit ekki að það er enginn að halda í hana stendur hún bara á gólfinu en svo ef hún ætlar að fara að labba eða fattar að það haldi enginn í hana þá pompsar hún á rassinn
. Hún er farin að segja mamma, pabbi, neineineinei, hættu og óóóóó
. Hún á það til að vera voðalega hávær og þá helst þegar hún á að fara að borða, mamma setur hana í stólinn sinn og fer svo að gera matinn hennar kláran og allan tíman kallar hún stöðugt með háum köllum og rekur á eftir mömmu sinni
kann sko að láta heyra í sér. Hún er alltaf rosalega dugleg að borða og borðar bara það sem henni er gefið og mamma heldur sveimérþá að hún sé bara með botnlausan maga
. Hún er soldil mömmustelpa og vill helst bara eiga hana ein reynir að ýta Ólöfu Ingu í burtu ef mamma heldur á henni
og er ekkert voðalega sátt við það að mamma sé eitthvað að halda á frændsyskinum okkar
. Tinna Guðrún lítur mjög upp til stóru systir sinnar og finnst rosalega gaman þegar hún nennir að leika við hana og allt sem stóra systir gerir er svaka fyndið. Þær geta hlegið mikið saman dundað í dótinu en svo kemur líka fyrir að Tinna Guðrún sé óþolandi litla systir sem er alltaf að tæta dótið sem Ólöf Inga er að leika með
. En oftast erum við bara rosalega þægar og góðar!
Það er að koma smá kvef í okkur núna en verður vonandi bara eitthvað sem við hristum fljótt af okkur. Tinna Guðrún er búin að vera með niðurgang í u.þ.b. tvær vikur núna mamma og pabbi eru alveg ráðalaus, vita ekkert hvað þau eiga að gera við hana... Gáfu henni meira að segja malt um daginn og hún skánaði reyndar við það og mamma heldur og vonar að þetta sé að lagast hjá henni núna, það þarf allavega ekki að skipta á henni eins oft og um daginn þá fóru alveg 4-5 kúkableyjur á dag en núna eru þær svona 2 en það er nú reyndar ennþá í þynnri kanntinum. Hún missti sem betur fer ekkert matarlystina svo hún hefur getað viðhaldið sér vel en kinnarnar hennar hafa samt aðeins minnkað.
Á morgun á að skíra minnstu frænku okkar svo við förum í skírn og eftir hana ætlum við að bruna austur að heimsækja Afa, Regulu ömmu, Katíólu og Símon og alla sem við þekkjum þarna fyrir austan. Við ætlum að fá að gista eina nótt hjá þeim og svo á sunnudeginum á leiðinni heim ætlum við að kíkja á ömmu Sigþóru og Magga afa. Nota tækifærið og fara í heimsóknir á meðan afi er heima til að mjólka fyrir okkur.
En ætli þetta sé ekki komið gott að sinni. Látum heyra í okkur aftur seinna! Minnum bara á gestabókina svona í lokinn, það er svo gaman að vita hverjir eru að fylgjast með okkur. Kveðja Ólöf Inga og Tinna Guðrún
Hæ hæ
Jæja ætli það sé ekki komin tími á fréttir! Nú er Ólöf Inga byrjuð í leikskólanum Uglukletti, hún er á miðdeildinni sem heitir Baulan
. Hún byrjaði á fimmtudaginn síðasta og aðlöguninn hefur bara gengið eins og í sögu... Mamma skildi hana eftir eina í dag frá 9-11:30 og Ólöf Inga var alveg sátt við það, kyssti mömmu bara bless og hélt áfram að leika. Svo þegar mamma kom að ná í hana þá var hún nú ekki alveg tilbúin að fara heim en féllst á það þegar mamma sagði að hún færi aftur í leikskólan á morgun. Þá verður hún frá 8-12 og svo á fimmtudaginn verður hún eins og hún á að vera eða frá 8:00-14:00. Þegar hún er búin að venjast leikskólanum betur þá fer hún að fara með skólabílnum það á henni örugglega eftir að finnst gaman að fá að fara með Evu Sóleyju og Ágústi í skólabílinn
.
Tinna Guðrún er alltaf að verða stærri og stærri og farin að tæta meira og meira
. Hún skriður á gólfinu eins og ormur og fer bara þangað sem hún vill fara, nær að fara ansi hratt þegar hún er að drífa sig að tæta eitthvað sem hún veit að hún má ekki
. Hún er líka farin að hífa sig alstaðar upp á hnén, nær ekki alveg að tosa sig upp á tærnar ennþá. Hún er farin að taka nokkur spor ef maður heldur í hendurnar á henni og stundum ef hún stendur upp við eitthvað og sér eitthvað sem henni langar að ná í þá bara sleppur hún og reynir að ná því, soldill glanni...
.
Nú fara réttirnar að byrja og þá verður sko gaman við förum allavega í tvær réttir, Hítardals- og Grímsstaðarétt. Við komust sennilega ekki í Landréttirnar í þetta sinn því afi er farin að vinna upp á Kárahnjúkum svo þá verða pabbi og mamma að vera heima og mjólka.
En við munum ekki eftir fleiru í bili, vildu bara aðeins láta vita af okkur. Minnum bara á Gestabókina svona í endan
. Kveðja Ólöf Inga leikskólastelpa
og Tinna Guðrún tætirófa
Hæ hæ!!!
Jæja þá koma smá fréttir af okkur
.
Nú erum við búnar að fara í sumarbústað að Hólum í Hjaltadal með mömmu og pabba, við vorum alveg heila viku og okkur fannst rosa gaman. Við gerðum margt skemmtilegt, keyrðum út um allt en okkur fannst nú misgaman í bílnum
fór allt eftir því hversu langa bíltúra við fórum í en vorum samt alveg ótrúlega góðar oftast nær. Á hólum var svaka flottur róluvöllur. Ólöf Inga unni sér rosa vel þar, hljóp á milli leiktækjana og fór í öll tækin. Var svaka flink að róla og renna sér í rennibrautinni
. Tinna Guðrún dundaði sér bara við það að reyna að borða steinana
, hún fékk nú líka að prufa tækin og fannst það bara gaman. Það var líka sundlaug sem við fórum í og var það rosa fjör, við syntum alveg eins og brjálaðingar út um allt
. Sigþóra amma og Maggi afi komu og voru hjá okkur fyrstu dagana og við brölluðum ýmislegt með þeim
, seinna komu svo Helgi afi, Regula amma, Katíóla og Símon í heimsókn og fengu að gista eina nótt, þau voru í ferðalagi sjálf, í hringferð um landið. Litlu frændsystkini okkar voru skírð á meðan við vorum í sumarbústaðinum og heita þau Hjalti og Pálína Sara. Ferðalaginu var svo ekki lokið þegar vikan var liðin því daginn eftir að við komum heim fórum við austur í Austvaðsholt í afmælisveislu til Sunnu Hlínar, hún átti nefnilega eins árs afmæli! Þar hittum við marga og var það voða gaman. Tinna Guðrún fékk reyndar smá hita þegar við vorum þar og átti smá bátt
. Við keyrðum svo aftur heim þegar afmælisveislan var búin.
Tinna Guðrún er enn soldið lítil í sér og full af kvefi en ekki með neinn hita. Mamma fór með hana til læknis um daginn þegar hún var búin að vera lasinn og þá heyrði hann smá asmahljóð í henni svo mamma og pabbi þurftu þá að gefa henni eitt púst á dag en svo hringdu þau í lækninn aftur í dag því hún er búin að vera lasinn og þeim fannst hún ekkert vera búin að lagast svo að læknirinn sagði þeim að gefa henni tvö púst á dag og sjá til hvað það gerir fyrir hana
.
Hún er komin með tvær tennur, báðar framtennurnar í neðri góm
. Reyndar soldið síðan eða fyrsta tönnin fannst 14. júlí og hin viku seinna. Það er alltaf að styttast í að hún fari að skríða er alltaf að reyna að fara á fjórar en önnur löppin festist alltaf undir svo það tekst ekki alveg hjá henni, en það hlýtur að fara að takast hjá henni
. Hún er rosalega dugleg að borða og borðar bara allt, fær bara það sem er á borðinu hverju sinni
. Þegar einhver er að borða fyrir framan hana og henni langar líka að fá þá segir hún nammnammnamm og smattar svo
. Mömmu finnst alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og hún sé orðin strax svona stór
.
Ólöf Inga er allt önnur eftir aðgerðina. Mun skapbetri, ekki eins pirruð og hún gat stundum orðið
. Talið hjá henni er líka alltaf að aukast og talar mun réttar og skírar núna þegar hún er farin að heyra eitthvað! Hún er rosalega dugleg við að dunda sér úti, er úti nær allan daginn saman hvernig veðrið er
. Þá er hún oftast að hoppa á trampólíninu eða í sandkassanum, eða þá að hjálpa pabba sínum við hin ýmsu útiverk
. Hún er svo að fara í leikskóla í haust, fær sennilega inn um miðjan september. Ætlum að senda hana þrjá daga vikunnar frá 8:00-14:00, þetta verður soldil breyting fyrir hana en hún á bara eftir að hafa gaman og gott af henni
.
En ætli þetta sé ekki komið gott í bili, viljum bara minna á GESTABÓKINA endilega að kvitta!!!! Og ekki vera feimin við að biðja um aðgang að albúminu okkar! En biðjum að heilsa í bili, Kveðja Ólöf Inga og Tinna Guðrún
Hæ hæ!!!
Nú ætlar mamma að skrifa smá fréttir af okkur! Fyrst ætlar hún að byrja á að segja ykkur hvað Ólöf Inga er mikil hetja. Hún fór nefnilega í nefkirtlatöku og eyrnaröraísetningu núna á miðvikudaginn síðasta og stóð sig alveg eins og hetja
. Við skruppum aðeins austur á þriðjudaginn til að klára að taka til og ganga frá húsinu okkar í Þúfu. Við vorum bara í Austvaðsholti í pössun hjá Katíólu á meðan mamma og pabbi voru í Þúfu. Við vorum náttúrulega alveg rosalega þægar við hana
. Þegar mamma og pabbi komu svo brunuðum við til ömmu og afa í Reykjavík og fengum að gista þar. Þegar við komum þangað fékk mamma að mæla Tinnu Guðrúnu því henni fannst hún vera orðin soldið heit! Og viti menn þá var hún komin með 39,3 stiga hita. Svo pabbi brunaði í apótekið í Lágmúla og keypti stíl til að setja í hana, svo hún svaf bara vel alla nóttina. Mamma þufti að vekja Ólöfu Ingu kl. 7:30 svo hún gæti fengið sér eitthvað að borða því hún mátti ekki fá neitt að borða eftir kl. 8:00. Þegar mamma var svo búin að gefa okkur að borða skriðum við aftur uppí til pabba og sofnuðum. Mamma skellti Ólöfu Ingu svo í bað svo að mamma og pabbi gætu fengið sér eitthvað að borða
. Amma kom svo heim rétt fyrir eitt til að passa Tinnu Guðrúnu á meðan Ólöf Inga væri hjá lækninum. Mamma og pabbi áttu svo að setja stíl í Ólöfu Ingu klukkutíma áður en hún átti að mæta... Hún var orðin frekar róleg svona hálftíma eftir að hún fékk stílinn, því þetta var frekar stór stíll sem hún átti að fá. Við þurftum að bíða soldin tíma eftir að komast inn en loksins var röðin komin að okkur
... Mamma og pabbi fórum með hana inn á skurðstofuna en henni leist nú ekkert á hana, full af einhverjum tækjum og tólum sem hún hafði aldrei séð og eitthvað ókunnugt fólk líka, hún var nú ekki alveg á því að leggjast á bekkinn og leyfa svæfingalækninum að svæfa sig en féllst á það ef hún fengi að halda utan um pabba sinn svo að pabbi þurfti að liggja yfir henni á meðan hún sofnaði. Síðan fóru mamma og pabbi út og biðu eftir því að það yrði kallað á þau að koma inn aftur og það varð ekki eftir langan tíma. Þeim fannst soldið skrítið að sitja hjá Ólöfu Ingu og bíða þar til hún vaknaði, enda þurftu þau að bíða soldið lengi því hún var nú ekkert á því að vakna alveg strax, heldur vildi hún bara hvíla sig vel eftir þetta. Hún rumskaði ekki fyrr en hjúkrunarkonan fór að taka leggin úr handleggnum hennar þá aðeins vaknaði hún og fór í fangið á pabba en var fljót að sofna aftur
. Mamma fór þá bara að borga og ganga frá tímapöntun því læknirinn vildi fá að sjá hana aftur eftir mánuð, því hann þurfti að setja rör í eyrun hennar, þau voru víst orðin ljót. Þegar mamma var búin að ganga frá öllu fengum við að fara. Á leiðinn til ömmu fór pabbi og keypti klaka handa Ólöfu Ingu og hafði hún sko alveg lyst á honum
, var orðin ekkert smá þyrst og svöng greyið litla! Amma var svo að baka pönnukökur þegar við komum svo við fengum gómsætar pönnukökur eftir allt vesenið
. Amma í sveitinni og Eva Sóley komu svo og náðu í okkur og mömmu því pabbi ætlaði að fara aftur austur og ríja kindurnar okkar. Hann kemur svo aftur til okkar í kvöld
. Ólöf Inga svaf svo bara alla leiðina heim, við þurftum að koma við í vegagerðinni og skúra en hún svaf bara og svaf. Hún var svo farin að hressast um kvöldið og farin að líkjast sjálfri sér aftur
og í gær var hún bara alveg orðin eins og hún á að sér að vera
. Hún er svo stór og sterk og fór ekkert að gráta eða neitt
.
En Tinna Guðrún er ennþá með hitan... búin að vera með upp í 39 stiga hita þanga til í morgun þá var hann komin niður í 38,3. Á eftir að sjá hvernig hún verður þegar hún vaknar, hún er bara að leggja sig núna. Fer með hana til læknis ef að hitin hefur hækkað aftur, sem hann hefur vonandi ekki gert.
En jæja ætli þetta sé ekki komið nóg í bili, mamma var líka að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið svo endilega kíkið á þær... Kveðja Ólöf Inga hetja
og Tinna Guðrún laslingur
.
Hæ, hæ og hó, hó
... Ætli það sé ekki komin tími á smá fréttir!!! Það er margt og mikið búið að gerast við skrifuðum síðast!!! Erum t.d. búin að kíkja aðeins aftur austur í Þúfu og pökkuðum meira af dótinu okkar niður... erum búin að pakka því helsta niður en eigum samt eitthvað eftir ennþá... Þegar við vorum fyrir austan fór Tinna Guðrún í sprautu og mælingu. Hún var orðin 8.060 gr. og 66,5 cm. Hún var líka sprautuð í lærið en það var alveg eins og hún fyndi ekkert fyrir því... hún allavegana sýndi engin viðbrögð þegar hjúkkan stakk hana með nálinni, hélt bara áfram að gera það sem hún var að gera
.
Við komum svo aftur hingað vestur á fimmtudaginn í síðustu viku. Við mamma og Tinna Guðrún fórum á okkar bíl og pabbi kom svo á eftir á bílnum hans Bogga með fimm kvígur í hestakerru
... Við fengum nefnilega að taka með okkur nokkrar kvígur frá Þúfu. Hann fór svo aftur austur snemma á föstudagsmorgun að skila bílnum og koma aftur til okkar á laugardaginn með Bogga, Rögnu og Sunnu Hlín. Við hittum hann reyndar bara á Indriðastöðum því að við vorum að fara á ættarmót þar sem afkomendur Sigurjóns langafa og Þóru langömmu hittust. Það var rosagaman á því... Sigþóra amma og Maggi afi voru þar og öll börnin hennar og barnabörn mættu líka svo við höfðum sko nóg af fólki til að tala og leika við... ásamt öllum hinum ættingjunum okkar. Fyrst var byrjað á því að hitta allt fólkið og sjalla við það, síðan var farið í alskonar leiki. Eftir leikina var farið í óvissuferð og var hún að Hvanneyri þar sem Guðmundur Hallgríms tók á móti okkar og rölti með okkur um Hvanneyrina og endaði það á því að það var farið í sveitafitness
. Mamma, Benni og Ragnheiður tóku þátt í henni ásamt þremur öðrum og mamma hún vann
hehe.... Eftir óvissuferðina var haldið að Indriðastöðum aftur þar sem sameiginlegur kvöldmatur tók við... Allir grilluðu bara sinn mat og borðuðu saman í stórri hlöðu. Mamma og pabbi drifu sig reyndar að borða og skutluðu okkar og flotta Farmalinum okkar vestur á Mel og báðu ömmu um að passa okkur. Þau fóru svo aftur og komu ekki heim aftur fyrr en eftir hádeigið daginn eftir... þau fengu nefnilega að gista í sumarbústaði hjá Sif. Þetta var sem sagt alveg svaka skemmtilega helgi
.
Mamma og pabbi skutluðust svo á Selfoss í dag með Ólöfu Ingu til nef-, háls- og eyrnalæknis
, hann sagði að eyrun hennar væru full af einhverjum vökva og það þyrfti að taka nefkirtlana úr henni
. Svo hún á fantaðan tíma í nefkirtlatöku 11. júlí n.k.
. En þá vonandi hættir hún að vera með stíflað nef og kannski fer hún líka að tala skírara þar sem hún á eftir að heyra skírar
.
Tinna Guðrún er alltaf að verða meiri og meiri grallari
Farin að bakka út um allt og snúa sér í allar áttir... en ekki kemur tönnin ennþá sem mamma hélt að væri að koma um daginn
.
Heyskapur er byrjaður á fullu hjá okkur og eru allir að hamast í honum, við erum svo heppnar að Eva Sóley er bara heima svo við getum fengið hana til að passa okkur á meðan mamma pakkar rúllunum þegar Ágúst og pabbi eru í fjósinu! Við erum alltaf rosalega góðar við hana
.
En jæja ælti þetta sé ekki komið nóg í bili, við kveðjum að sinni... Ólöf Inga og Tinna Guðrún grallarar
Hæ hæ!!!
Jæja nú er margt og mikið búið að ske síðan við skrifuðum síðast enda komnar þrjár vikur síðan
. En ef við byrjum bara á byrjuninni þá er Tinna Guðrún útskrifaður sundsnillingur
, sundnámskeiðinu er lokið og var hún sko orðin svakalega klár að synda... Núna þurfa mamma og pabbi bara að vera dugleg við að fara með hana í sund til að viðhalda því sem hún lærði!!!
Eva Sóley frænka okkar er búin að fermast og heppnaðist fermingin rosalega vel... Við vorum að hjálpa ömmu og Evu Sóleyju við undirbúninginn í Lyngbrekku ásamt fleirum og var rosalega gaman að leika við hina krakkana á meðan fullorðna fólkið var að hamast við að skreyta salinn og elda. Tinna Guðrún var reyndar bara þæg á meðan og svaf úti í vagninum sínum mest allan tíman... En Ólöf Inga ærslaðist um allt ásamt frændsystkinum sínum
. Við fórum svo í kirkjuna á fermingardaginn og vorum bara stilltar og prúðar, eða svona eins og við var að búast
, Ólöf Inga þurfti nú aðeins að skoða sig um í kirkjunni og flakka á milli manna
, og Tinna Guðrún þurfti nú aðeins að spjalla og svo varð hún voðalega svöng og kallaði eftir pelanum sínum... sem hún fékk mjög fljótt
. Í veislunni var fullt af krökkum sem Ólöf Inga lék sér við en Tinna Guðrún lagði sig bara í vagninum sínum. Eva Sóley fékk fullt af flottum gjöfum og var mjög ánægð með fermingardaginn sinn.
Daginn eftir ferminguna fórum við í afmælisveislu til Þorkels Inga og eftir hana héldum við heim á leið... Ágúst kom með okkur austur í Þúfu og var hjá okkur í nokkra daga.
Tinna Guðrún fór svo í vigtun og mælingu og fékk líka sprautu í lærið
, en fannst það samt ekkert vont, hún allavegana kippti sér ekkert upp við það þegar hjúkrunarkonan sprautaði hana heldur hélt bara áfram að skoða flottu fuglana sem hengu niður úr loftinu inn í stofunni
. Hjúkkan var bara mjög ánægð með hana, hún fylgir bara sinni línu og heldur áfram að stækka jafnt og þétt. Var orðin 66 cm og 7410 gr.
1. júní fóru mamma og pabbi með systkinum hennar mömmu á laddasýninguna. Við vorum hjá ömmu Sigþóru á meðan og fannst okkur það bara gaman
. Pabbi kom svo aðeins fyrr heim heldur en mamma því hún fór á bekkjarmót í keiluhöllinni og spilaði tvo keiluleiki við fyrrverandi bekkjarfélaga sína.
Við fórum svo aðeins á búðarráp daginn eftir en síðan fórum við aftur heim í Þúfu.
En ætli stærsta fréttin af okkur sé ekki að fimmtudaginn 7. júní fluttum við vestur á Mel til ömmu og afa. Þar ætlum við að búa, annað hvort byggja okkur hús eða byggja hús handa ömmu og afa og við flytjum í stóra húsið þeirra, það er ekki alveg komið í ljós ennþá. Mamma og pabbi ætla að fara í búskapinn með afa. Það er nú soldið skrítið að vera flutt frá Þúfu og eigum við eftir að sakna margs sem við höfðum þar, eins og Katíólu, Símonar, Afa og Regulu og Hannesar og Ingu og náttúrulega hannar Rúnu okkar
, en við verðum bara að vera dugleg við að heimsækja þau
. Pabbi keyrði á nýja traktornum okkar með fjárkerruna fulla af dóti vestur á Mel, en við fórum með mömmu á bílnum. Við lögðum af stað á sama tíma og pabbi en vorum komnar nokkrum klukkutímum á undan honum
. Kisa kom með okkur vestur en amma vill ekki hafa hana inni svo hún fékk bara að fara í skemmuna og getur dundað sér við að éta mýsnar þar
.
En núna eru amma og afi á Ítalíu þau fóru 9. júní og koma aftur 16. júní. Pabbi, mamma, Ágúst og Eva Sóley eru að búa fyrir þau á meðan. Það verður sko gaman þegar þau koma aftur heim. Ólöf Inga er alltaf að leita að ömmu og afa, en finnur þau aldrei
.
Í gær eignuðumst við lítinn frænda
Gunni bróðir hennar mömmu og Kristbjörg kærastan hans voru að eignast sinn annan strák
. Svo eignuðst Bubbi og Christine stelpu 21. maí þannig að Tinna Guðrún er sko ekki lengur minnst í fjölskyldunni mömmu megin.
En mamma og pabbi hafa ákveðið að læsa myndaalbúminu okkar en ekki vera feimin við að byðja um lykilorðið.
Meira var það ekki í bili... biðjum að heilsa Kveðja Ólöf Inga og Tinna Guðrún Vestlendingar
Hæ hæ!!! Jæja nú er búið að líða soldið langur tími síðan mamma skrifaði fyrir okkur síðast, hún er ekki alveg að standa sig í þessu...
En það er nú samt ekkert voða mikið búið að gerast síðan síðast, við erum bara búin að vera hérna heima í Þúfu og sinna þeim störfum sem þarf. Allar kindurnar okkar eru búnar að bera og við fengum ekki eitt einasta hvítt lamb... þau voru öll eitthvað flekkótt, svört, grá eða mórauð
. Reyndar var megnið að lömbunum hrútar, það komu bara sárafáar gimbrar og þær voru ekki eins flottar á litin og allir hrútarnir
. Við erum bara búin að reka allar kindurnar og lömbin upp á tún þar sem þau eiga að bíta grasið og verða stór og pattaraleg
. Amma Sigþóra og Maggi afi komu á sunnudaginn og hjálpuðu okkur að reka síðustu kindurnar þangað. Þeim leist rosavel á öll lömbin og enn betur á okkur systurnar
. Það er alltaf gaman að fá þau í heimsókn en þau gátu því miður ekki gist í þetta sinn því við erum búin að taka svefnsófann út úr herberginu og setja rúmið hennar Ólafar Ingu þangað inn svo að nú er hún komin með sitt einkaherbergi
. Henni finnst það svaka gaman og er voða góð að dunda í herberginu sínu, þegar hún vill vera ein að leika þá bara lokar hún hurðinni
. Mömmu finnst þetta vera mjög gott líka því að nú er ekki alveg jafn mikið dót út um allt í stofunni eins og var, þó að Ólöf Inga komi nú voða oft fram með dótið sitt...
Tinna Guðrún er alltaf að stækka jafn mikið... Mamma heldur meira að segja að hún sé að fara að fá tönn en það er nú samt eitthvað lengra í hana heldur en mamma hélt fyrst
. Hún er farin að velta sér yfir á magan og snýr sér í allar áttir í rúminu, stundum er hún komin með hausin þar sem fæturnar eiga að vera
. Svo er hún alltaf að gera einhver sniðug hljóð
. Hún getur setið smá en þá verður að vera bæði stuðningur að framan og aftan, hún er nefnilega svo lítil ennþá þó svo hún haldi að hún sé miklu eldri
. Hún er líka rosalega dugleg að borða, hún er farin að fá stappaðar kartöflur í smjöri, skyr, mauk og graut og svo fékk hún að smakka matarkex í gær og henni fannst það alveg rosalega gott, varð alveg öskureið ef að það datt hjá henni
það er líka rosa gott að naga það við kláðanum í gómnum.
Nú eru bara þrír tímar eftir af ungbarnasundinu við förum voða oft núna þessa viku og næstu eða tvisvar í viku á mánudögum og föstudögum, það á nefnileg að fara að taka sundlaugina í gegn eftir hvítasunnuna og verður henni lokað í tvær vikur og sundkennarinn vildi bara klára tímana fyrir þann tíma sem er fínt. Tinna Guðrún er orðin algjör sundsnillingur, voða dugleg að fara í kaf og svo vorum við látin prufa í síðasta tíma að láta hana standa í lófanum á okkur
en það gekk alveg fínt, hún var reyndar eitthvað löt og nennti aldrei að standa nema bara í smá stund í einu... Hún kannski stendur eitthvað lengur næst
. Eftir loka tíman sem verður á föstudaginn 25. maí verðum við að bruna beint vestur til að getað hjálpað þeim að undirbúa ferminguna hennar Evu Sóleyjar, hún á nefnilega að fermast sunnudaginn 27. maí og þá er búið að ferma öll systkini hennar mömmu
.
Við erum alltaf að bíða núna eftir að heyra að það sé lítið kríli fætt, hann Þorkell Finnur er nefnilega að fara að verða stóri bróðir. Mamma hans var skrifuð 10. maí svo það hlítur að fara að líða að þessu
og við vonum bara að það gangi allt vel hjá þeim. Tinna Guðrún er semsagt að verða stóra frænka
.
En við munum ekki eftir fleiru í bili svo við kveðjum að sinni.... Kveðja Ólöf Inga og Tinna Guðrún sem bíða spenntar eftir litla frænda eða frænku (við höldum að það sé frændi
, getur samt vel verið að það sér kolvitlaust hjá okkur
)
Hæ hæ!!! Við erum enn þá í sveitinni hjá ömmu og afa
. Pabbi er bara heima í Þúfu að hugsa um kindurnar okkar... þær eru nefnilega að fara að bera. Tvær eru bornar og önnur átti tvo svarflekkótta hrúta og hin einn mórauðan hrút... Það koma vonandi fleiri svona skrautleg lömb, þau eru svo flott
. Það er frí í ungbarnasundinu á föstudaginn svo að við þurfum ekki að fara heim þá svo við ætlum allavega að vera eitthvað fram yfir helgina en vitum ekki hvað lengi!!!
Það er svaka gaman að vera hérna hjá ömmu og afa... alltaf nóg að gera! Hvort sem það er úti eða inni, Ólöf Inga finnur sér sko alltaf eitthvað að gera
. Amma er líka nýbúin að kaupa trampolín handa krökkunum og mamma setti það saman í dag og var þá alveg svaka fjör. Ólöfu Ingu fannst svo gaman að hoppa. Þorkell Finnur og Thelma voru líka svaka kát að hoppa á því. Það var varla hægt að fá þau til að fara af því þegar stóru krakkarnir komu heim úr skólanum og langaði til að prufa
.
Ólöf Inga er reyndar búin að vera soldið slöpp og átt voða bátt síðustu daga, hún datt nefnilega úti í fjárhúsum um daginn og fékk bólgna vör og sár á vörina og síðan fékk hún soldið stórt munnangur út frá sárinu og hefur voðalítið getað borðað... drykkjarjógúrt og barnamauk var það eina sem hún fékkst til að borða. En sem betur fer er sárið að gróa og hún farin að borða meira og verða líkari því sem hún á að sér að vera
.
Tinna Guðrún stækkar og stækkar.... mamma heldur að hún fari bara bráðum að ná Ólöfu Ingu
. Hún heldur að hún sé orðin svo stór og er alltaf að reyna að reisa sig upp ef hún liggur á gólfinu eða í fanginu á einhverjum því hún vill bara sitja eins og allir hinir... Hún hefur sko ekki nógu gott útsýni ef hún liggur
. Hún náði næstum því að snúa sér af bakinu og yfir á magan um daginn, það munaði bara pinkulitlu... hún náði bara ekki að taka aðra hendina undan annars tókst þetta hjá henni
Hún er orðin svo stór og dugleg. Í síðasta sund tíma fór hún þrisvar sinnum í kaf, mamma setti hana tvisvar og pabbi einu sinni... það gekk nú bara vel, fór eitthvað smá ofan í hana einu sinni en hún var fljót að jafna sig á því... Þau eiga öll eftir að verða flinkari við þetta með tímanum
.
En jæja vildum bara láta heyra aðeins í okkur.... var komin tími á það!!! Við kveðjum að sinni... Kveðja Ólöf Inga og Tinna Guðrún Melsbúar
Hæ hæ allir!!! Við fórum í ungbarnasund í gær og amma Sigþóra og Maggi afi komu með okkur svo að Ólöf Inga komst líka í sund. Það var sko svaka stuð, Ólöfu Ingu fannst svaka gaman í sundinu og vildi helst bara vera úti í rennibrautunum... Maggi afi var svo góður að hann fylgdi henni í einu og öllu í sundhöllinni
. Tinna Guðrún kann sko alveg að synda núna
, nei kannski ekki alveg
en hún var látin kafa í fyrsta skiptið í gær. Sundkennarinn gerði það svona í fyrsta skiptið en svo eiga mamma og pabbi að æfa sig næst. Tinnu Guðrúnu fannst þetta ekkert mál og var bara kát þegar hún kom upp
.
Við og mamma erum búnar að vera fyrir vestan hjá ömmu og afa síðan á mánudaginn, það er bara búið að vera gaman. Ólöf Inga og mamma hafa farið í fjósið að mjólka fyrir ömmu. Svo kom Þorkell Finnur líka til þeirra í pössun á fimmtudaginn og Ólöf Inga og hann voru rosalega dugleg að leika sér saman, svo fóru þau í fjárhúsin og fjósið með mömmu en síðan hurfu þau allt í einu en það var allt í lagi, þau voru bara farin inn til ömmu og Evu Sóleyjar í bað
. Við förum aftur til ömmu og afa á morgun eftir fermingarveisluna hennar Þóru Bjarkar, og verðum örugglega fram á föstudag en þá þurfum við að fara í ungbarnasund aftur.
Jæja þetta voru nú helstu fréttirnar af okkur... Við látum heyra í okkur síðar! Kveðja Ólöf Inga fjósameistari
og Tinna Guðrún kafari
Hæ hæ!!! Jæja nú er Tinna Guðrún byrjuð í sundinu... búin að fara í tvo tíma. Fórum í annan tíman kl. 10:00 í gærmorgun, var breytt því að það á ekki að vera tími á föstudaginn langa. Ólöf Inga og Katíóla fóru með í sund í gær og hafði Ólöf Inga svaka gaman af... þær voru bara í útilauginni að renna sér í rennibrautunum, svaka stuð
. Þær komu svo aðeins í innilaugina þegar tíminn hjá Tinnu Guðrúnu var alveg að verða búin og þá syntu systurnar saman
. En Tinnu Guðrúnu finnst líka svaka fjör í sundi... hefur ekkert kvartað til þessa
. Þetta er samt voða rólegt ennþá, það er ekkert farið að láta þau fara í kaf, bara verið að leyfa þeim að venjast umhverfinu og reyna að fá þau til að sprikla á meðan verið er að draga þau um allt. En það hafa samt allir svaka gaman af þessu... mamma og pabbi líka þó þau séu nú ekkert mikið sundfólk
.
Við ætlum bara að vera hérna heima um páskana... Allavega á páskadag, förum sennilega vestur annan í páskum. Sigþóra amma og Maggi afa eru að spá í að kíkja í heimsókn til okkar um helgina... það verður sko gaman að fá þau. Ólöf Inga er búin að fá alveg fullt af páskaeggjum
alveg þrjú, eitt nr. 2, annað nr. 3 og þriðja nr. 4
. Þannig að hún getur nú aldeilis étið páskaeggin
hún væri nú enga stund að því ef að hún fengi að ráða en ætli mamma reyni nú ekki að stjórna átinu hjá henni svo hún fái nú ekki illt í magann sinn
.
Við og mamma verðum fyrir vestan alveg fram að föstudeginum 13. þá förum við aftur austur til að fara í sund og svo er líka ferming hjá Þóru Björk frænku okkar 15. apríl sem við ætlum að fara í, en eftir hana förum við svo aftur vestur á Mel. Amma er nefnilega að fara að láta laga fæturnar sínar strax eftir páska svo mamma ætlar að hjálpa afa í fjósinu á meðan. Það fer svo allt eftir því hvað hún verður lengi að ná sér hvað við verðum lengi fyrir vestan.
En jæja nóg komið í bili, við minnum bara á gestabókina svona í lokin... endilega að skrifa í hana
Kveðja Ólöf Inga og Tinna Guðrún Sunddrottningar
Halló allir!!! Jæja ætli það sé ekki komin tími á smá fréttir... Hjá okkur er nú samt voðalítið að frétta, hér gengur bara allt sinn vanagang. Ólöf Inga er enn bleyjulaus voðalega dugleg, hún er farin að fara sjálf á klósettið þegar henni er mál
. Mamma þurfti oftast að minna hana á það þarna fyrst en þarf það ekki eins mikið núna
.
Ólöf Inga á sér uppáhalds bók núna það er bókin um Barbapabba eða babbadí eins og Ólöf Inga segir það
og hún fer sko aldrei að sofa nema að bókin sé með og svo skoðar hún hana þanga til hún sofnar. Stundum þegar mamma fer inn í rúm liggur Ólöf Inga sofandi og bókin ofan á henni
.
Það vantar enn soldið upp á að hægt sé að segja að Ólöf Inga sé farin að tala... Það eru nú samt alltaf að bætast fleiri og fleiri orð við orðaforðan hjá henni, hún þarf bara aðeins að læra að segja þau skírar, t.d. bíbin=búin, labbi=loka, labbi=labba, ofna=opna, dóttið=klósettið o.fl. En svo eru líka orð sem hún kann alveg að segja... Hún er líka farin að búa til lengri setningar en stundum er voða vont að skilja hvað þær þýða
en þetta er samt allt í áttina. Hún kallar systir sína annað hvort systa eða Tinna.
Það er voða mikið núna hjá Ólöfu Ingu að hún er alltaf að leika litla barnið
reynir að troða sér í náttgallana hennar Tinnu Guðrúnar og leggst í vögguna hennar með snuðið upp í sér
Hún er sko algjör rófa.
Nú er Tinna Guðrún búin að fara tvisvar sinnum út í vagninn og svaf hún bara nokkuð vel í honum í bæði skiptin, Ólöf Inga og mamma nota þá tækifærið og fara líka út að leika á meðan Tinna Guðrún sefur. Það er voða gaman að komast út. Ætli við setjum hana Tinnu Guðrúnu ekki út núna í dag það er svo rosalega fallegt og gott veður.
Tinna Guðrún er alltaf jafn sperrt og kát. Hún heldur að hún sé ekkert litla barn lengur og vill alltaf bara sitja uppi þegar maður heldur á henni
. Hún er voða dugleg að spjalla og brosa og svo er hún alveg farin að taka dótið sitt og skoða og smakkar svo soldið á því gá hvernig það bragðast
. Hún lítur voða mikið upp til stóru systir sinnar og brosir voða sætt til hennar þegar hún er að spjalla við hana
.
Það er sko nóg að gera næstu daga hjá okkur. Á morgun á Tinna Guðrún tíma í skoðun og sprautu, það verður gaman að sjá hvað hún er orðin stór og þung...
Síðan á föstudaginn kl. 19:30 á Tinna Guðrún að byrja í ungbarnasundi, það verður líka gaman að sjá hvernig hún verður í því. Mamma og pabbi ætla bæði með hana svo að þau eru búin að fá Katíólu til að passa Ólöfu Ingu á meðan. Ólöf Inga fær nú kannski að koma einhvern tíman með í sund en ekki í fyrsta tímann.
Svo er búið að bjóða okkur í afmælisveislu á Akranesi á laugardaginn, hún Birta Marín frænka okkar er að verða eins árs skvísa á morgun og ætlar að halda upp á það á laugardaginn. Við erum ekki alveg búin að ákveða hvort við förum eða ekki, vonandi að við komust samt.
Þannig að eins og þið sjáið er nóg um að vera hjá okkur á næstu dögum og svo eru náttúrulega páskarnir á næsta leyti og mamma er komin í svo mikið páskaskap að hún er búin að gera síðuna okkar voða páskalega
. Við erum nú samt ekki búin að ákveða hvað við ætlum að gera eða vera um páskana en vonandi að við gerum eitthvað skemmtilegt. En ætli þetta sé þá ekki bara komið nóg í bili, við heyrumst síðar.... Kveðja Ólöf Inga Barbastelpa
og Tinna Guðrún verðandi sunddrottnig
Hæ hæ allir!!! Af okkur er bara allt gott að frétta þrátt fyrir að smá kvef og hósti hafi verið að pirra okkur alla síðustu viku en er sem betur fer alveg að fara núna. Við kíktum aðeins á læknirinn í síðustu viku þegar við vorum sem verstar, Ólöfu Ingu var eitthvað illt í eyranu sínu og læknirinn sá smá roða í því en ekki eyrnabólgu sem betur fer. Læknirinn hlustaði svo Tinnu Guðrúnu og heyrði enginn hljóð í lungunum hennar og benti mömmu og pabba á hóstasaft sem mætti gefa okkur báðum. Okkur fannst það nú ekkert rosalega gott á bragðið og vorum soldið óþekkar þegar mamma var að gefa okkur það
. Pabbi fékk líka þessa flensu sem við vorum með en mamma hefur alveg sloppið, hún er svo hraust
. Nú er veðrið búið að vera mjög milt og gott og alveg tilvalið til að byrja að setja Tinnu Guðrúnu út í vagninn en þá þurfti hún bara að vera lasin
svo það hefur ekki enn gengið. Ef að veðrið á morgun verður eins gott og það var í dag þá stefnir mamma á það að setja hana út í smá tíma á morgun því henni er alveg batnað núna.
En aðal fréttin hjá okkur er nú að Ólöf Inga er alveg að fara að hætta með bleyju
á daginn allavega, hún er búin að vera svo dugleg í dag að pissa alltaf í klósettið
skruppum reyndar aðeins á Selfoss áðan og þá var hún með bleyju. Mamma tók af henni bleyjuna á laugardaginn og lét hana bara pissa í sig ef hún pissaði ekki í klósettið og svo var hún bara blaut allan daginn og það fannst henni ekkert þægilegt. Sunnudagurinn var svipaður hjá henni hún pissaði oftast í sig en svo í gær fór hún að fatta að stoppa pissið þegar það var að koma, fór kannski smá í buxurnar en síðan afgangurinn í klósettið
og í dag hafa buxurnar hennar ekkert blotnað, hún svo dugleg og mamma svo stolt af henni
. Hún fær líka alltaf einhver smá verðlaun fyrir að pissa í klósettið, klaka, tómat, kex eða eitthvað annað gott
. Við skulum bara vona að þetta haldi svona áfram hjá okkur...
Tinna Guðrún er alltaf jafn kát og góð. Hefur reyndar átt soldið erfitt með svefn sökum stíflaðs nefs en þá hefur hún bara verið að rumska og ekkert mál að fá hana til að sofna aftur. Hún hefur ekkert verið óvær með kvefinu. Hún er alltaf að stækka og er orðin alltof stór
eða það finnst mömmu
. Hún var að uppgötva hendurnar sínar um daginn og getur dundað sér í lengri tíma við það að fylgjast með þeim
voða spennandi. Hún er líka farin að reyna að ná í dót en hendurnar eru eitthvað óþekkar við hana og láta mjög illa af stjórn
, þegar hún liggur á leikteppinu sínu er hún oft að reyna að næla í dótið sem hangir þar niður. Hún er alltaf mjög kát og er mjög grunnt á brosið hjá henni
.
En eins og þið sjáið þá erum við bara sáttar við lífið og tilveruna og höfum ekki undan neinu að kvarta
, en ætlum ekki að hafa þetta lengra að sinni... látum heyra í okkur síðar... Kveðja Ólöf Inga bleyjulausa og Tinna Guðrún káta