|
| Nýjar myndir 15. janúar ;0) |
|
|
Við erum bræðurnir
Finnur Valdimar og fæddist þann 5 nóvember 2003. Ég var svo mikið að flýta mér í heiminn.... að hún mamma mín var ekki nema í einn og hálfan tíma að eiga mig frá fyrstu hríð.. Pabbi stóð sig eins og hetja þó mamma hélt á tímabili að hann myndi liggja með andlitið í steypunni..... en svo kom ég og pabbi ránkaði við sér.. ég var 3830 kíló og 52 cm.
Mikael Árni var eins og bróðir sinn að flýta sér í heiminn kom þann 17 desember 2007 en það var búið að ákveða keisaraskurð þann 21 desember, en Mikael Árni ákvað að grípa í taumana og ákveða sjálfur sinn dag.. og var tekin með keisaraskurði.. Mikael Árni var 3.638 kíló og 51 cm, hann var mjög líkur bróðir sínum við fæðingu. Við bræður erum alveg yndislegir og flottir strákar, alveg eins og við eigum að vera.. |
|
|
Hvað þýðir nafnið mitt Finnur: Maður, - finnskur maður. Valdimar: Nafn þetta er fengið af rússneska nafninu "Vladimir" sem er myndað af forliðnum "vladetb" sem merkir ríkja, ráða yfir og viðliðnum "mir" sem merkir heimur. Valdimar er því voldugur höfðingi.
Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.
Hvað þýðir nafnið mitt Mikael; Nafn þetta er komið úr biblíunni, komið af nafninu "Mika'el" sem merkir hver er sem guð? Mikael erkiengill er af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverk guðs. Árni; merkir fuglinn örn.
Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.
Mamma er Konan Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi. Pabbi er Maðurinn Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt !! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi.
Boðorðin 10 fyrir foreldra 1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau. 2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem "krakkann". 3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín. 4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkenndu það. 5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir. 6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau. 7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán. 8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki. 9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til. 10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði.
Eyþór Ingi, Eva Lind og litli prins Magnús Máni Una Dís Þórdís Helga, Ragnar Ingi og Máney Dögg
|
| Þú ert gestur nr. 22129 |