Velkomin á heimasíðu litlu prinsessunnar minnar sem fær ekki færi á að vaxa og dafna í þessum heimi
Hún var nefnd Birgitta Hrönn Einarsdóttir Núna eru
online


Um mig:
Við heitum Karen Hilmarsdóttir og Einar Hafsteinn Árnason. Þetta er minningarsíða um hana Birgittu Hrönn,dóttur okkar sem fékk ekki að vera á meðal okkar,hún fæddist andvana þann 21.janúar 2005 kl 02:36. Hún var fædd 8 merkur og 46 cm, eftir rétt tæplega 37 vikna meðgöngu.



Mamma ég er hjá þér,
horfi á þig sofa,
ligg í faðmi þér
og hlusta á hjarta þitt slá
ég veit þú sérð mig ekki
en ég sé þig

Ég vil að þú grátir ekki
minnist mín með gleði
því þó við kynntumst aldrei
þekkir þú mig best.

Ég er hjá Guði núna
og hinum englunum,
ég finn hlýjuna þegar þú hugsar til mín.

þó ég vildi frekar vera hjá þér núna
liggja í faðmi þínum
halda í hönd þína
líður mér vel hérna.

Haltu í minninguna,
hugsaðu um þegar þú fannst mig sparka
hvað þú varst stolt.
ég elska þig mamma
og veit að þú munt aldrei gleyma mér!!





Annað:
Þessa síðu mun ég nota mikið til að skrifa í vefdagbókina, þá aðallega mínar hugsanir og pælingar hvað varðar þennan missir okkar.Birgitta Hrönn var heilbrigð stúlka sem vildi flýta sér aðeins í heiminn en því miður gafst henni ekki færi á að lifa í þessum heimi, ég mun skrifa um það í vefdagbókinni hvað gerðist og hvers vegna hún er ekki hér hjá okkur



Til lítils engils
Mamma, ekki gráta mig, ég veit þú saknar mín.
Mig langar að vera hjá þér og þerra tárin þín.
Ég fékk aldrei að sjá þig og blíðu brosin þín,
Guð vantaði lítinn engil og kallaði mig til sín.

Segðu pabba að ég elsk´ann því pabbi á líka bágt,
faðmaðu hann fyrir mig og hvíslaðu ofurlágt.
Segð´onum frá stjörnunni sem á himnum skærast skín,
kennd´onum að þekkja hana því hún er stjarnan mín.

Núna áttu lítinn engil sem vakir yfir þér,
ég passa líka pabba, segðu honum það frá mér.
Það eru hér svo margir sem þykir vænt um mig,
fjöldi fallegra engla sem gæta mín fyrir þig.

Tendraðu lítið kertaljós til að lýsa þér til mín,
láttu á leiðið mittt hvíta rós, það læknar sárin þín.
Þegar sorgarinnar skuggi dvín, þá muntu minnast mín
og tár þín verða gleðitár því ég verð ávallt þín.

Mamma





Þú ert gestur nr. 49804