Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Birgitta Hrönn
Birgitta Hrönn
Ég samhryggist þér innilega. Sjálf missti ég stelpuna mína eftir tæpar 40 vikna meðgöngu fyrir rúmum tveimur árum. Ég gat ekki lesið textann þinn án þess að tárast, þetta er svo erfitt og maður er svo oft aleinn með alla þessa sorg.
Sóley | 0 | 28.4.2010 17:21:08 #
  • Mikið ofboðslega er þetta falleg síða hjá þér. Ég dáist svo að styrkleika þínum, því í gegnum skrifin sér maður hvað þú ert sterk. Ég sendi ykkur innilegar samúðarkveðjur, ég get aðeins ímyndað mér þann mikla missi sem þið hafið gengið í gegnum, en það á enginn að þurfa að grafa barnið sitt :'( Ég er viss um að Birgitta Hrönn vakir yfir ykkur
    Júlí (ókunnug)
    |
    26.3.2010 23:39:28
  • Rosalega falleg síða og þú ert algjör hetja að skrifa í svona mikilli einlægni og geta opnað þig fyrir þessu öllu opinberlega. En ég vildi bara kvitta fyrir mig þar sem ég er búin að vera fylgast smá með og skila kveðju á ykkur og fallega engilinn ykkar :) gangi ykkur vel..
    Birna (ókunnug)
    |
    26.3.2010 22:48:38
  • samhryggist! :( Missti minn a 22. viku. Thad a enginn ad thurfa ad ganga i gegnum thad ad missa barnid sitt :(
    Ástrós Lilja
    |
    26.3.2010 20:42:55
hæ,eg samhryggist ykkur eg veit hvernig þetta er eg eignaðist andvana dreng eftir 4o vikna meðgongu guð megi vera með ykkur birgitta og gabriel(strakurinn minn)hafa það orugglega mj0g gott þarna uppi
aleksandra (okunnug) | 0 | 16.8.2009 19:50:02 #
If tears could build a stairway, and memories a lane. Id walk right up to heaven and bring you home again. hugsum stundum til þín frænka og vildu, láta þig vita af því
Auðunn og Rakel | 0 | 24.1.2009 10:30:45 #
Ég hugsaði til ykkar núna....vinkona mín var að missa dóttur sína,gengin 38.vikur:-( Ótrúleg sorg:-( Ég missti minn engil fyrir 4.árum síðan og veit hvernig líðaninn er hjá henni núna og hvað er framundan hjá henni. Mér var bara svo hugsað til ykkar því að ég fylgdist mikið með ykkur á sínum tíma. Vonandi gengur allt vel hjá ykkur og litlu skottunni ykkar. Kveðja: Hildur
Hildur | 0 | 30.3.2008 14:59:44 #
  • elsku birgitta i dag heldur tu uppa afmalid titt med englunum og braga franda tinum. elsku karen og einar eg veit ad tid erud mjog sterk eg hugsa mikid til ykkar love you
    hrafnhildur
    |
    0
    |
    21.1.2008 23:19:43
  • Til hamingju með afmælið litla englastelpa. Ég er viss um að núna sitja hjá þér við afmælisborðið fullt af litlum englum og þú auðvitað í hásætinu með fallegu vængina þína. Eigið góðan dag öll sömul
    Dísa Maja
    |
    21.1.2008 14:56:23
  • Kæra Karen og Einar. Megi guð gefa ykkur styrk og frið í dag... Kveðja frá Húsavík,Sigrún K
    Sigrún K
    |
    0
    |
    21.1.2008 10:43:59
  • Til hamingju með daginn elsku fallegi engill. Ég man hvað við mamma þin töluðum hvað væri gaman að eiga börn á svona sviðuðum aldri en við fengum ekki að njóta þess. Ég man hvað mér kveið fyrir því þegar ég átti Díönu mína og mamma þin var að koma og skoða hana, mér fannst svo sárt að vera að springa úr monti yfir fallegu stelpunni minni og þú fékkst ekki að koma með og skoða hana. Elsku Karen, Einar og Sólrún Guð veri með ykkur í dag. Knús Fanney og fjölsk. Barðaströnd
    Fanney Inga Halldórsdóttir
    |
    0
    |
    21.1.2008 10:42:43
  • Elsku Karen og Einar Megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiða degi held að engin geti gert sér grein fyrir fyrir hvað þið eruð að ganga í gegnum nema þeir sem hafa gengið í gegnum það sjálfir.Veit að Bragi passar hana vel en allavega til hamingju með afmælið litli engill Kv Aníta
    Aníta
    |
    21.1.2008 10:34:37
  • Megi guð styrkja ykkur á þessum erfiða degi sem og aðra daga. Ég kannast því miður við mjög margt sem þú lýsir í vefdagbókinni því okkar dagur rennur upp eftir 3 daga en þá eru komin 2 ár síðan engillinn okkar kvaddi. Vonandi eigið þið eins góðan dag í dag og aðstæður leifa og helgið honum minningu elsku litlu dóttur ykkar. Kærleikskveðja Kata og fjölskylda
    Katrín Helga Óskarsdóttir
    |
    0
    |
    21.1.2008 09:54:16

Þitt fyrsta bros er lagið sem ég er að hlusta á núna, bros sem ég fékk ekki að upplifa að sjá hjá henni Birgittu Hrönn. Alltaf held ég að sársaukinn minnki með tímanum, ég hef ekkert notað vefdagbókina til að skrifa um hvernig mér líður gagnvart missinum því ég held alltaf að sársaukinn dofni með tímanum en svo er ekki. Í dag hefði hún Birgitta mín orðið 3ja ára og mér líður núna einsog ég hafi misst hana í gær. Ég var að skoða myndirnar af henni á síðunni og mikið svakalega er þetta nú erfitt, það er satt sem sérfræðingarnir segja. Að þegar líður að svona sérstökum dögum einsog afmælum eða jólum að þá er einsog tilfinningapakkinn sé tekinn og honum skellt upp á yfirborðið og maður þarf að takast á við alla flóruna aftur.

Ég efast um að þetta breytist eitthvað með árunum, að hugsa til þess að núna væri hún hjá mér, já eða ég búin að fara með hana á leikskólann. Búin að knúsa hana til hamingju með daginn og jafnvel fara með köku eða ís á leikskólann til að halda upp á þennan merka dag í lífi hennar. Ég er minnt á hana á hverjum degi því ég á nokkra frændur sem eru fæddir á svipuðum tíma og þessir yndislegu strákar eru í blóma lífsins í dag, það er erfitt að horfa framhjá því að hún Birgitta Hrönn HEFÐI getað verið hér líka.

Ég á litla yndislega stelpu, systir Birgittu Hrannar og ég þakka endalaust fyrir það en get ekki horft framhjá þeirri hugsun að ég gæti átt þær báðar og haft þær báðar hjá mér. Margar minningar rifjast upp fyrir mér akkúrat núna, meðgangan, hve allt gekk vel þar til á síðustu stundu. Hún litlan mín fæddist andvana eftir miklar hremmingar og bráðakeisara 21.janúar 2005. Enn þann dag í dag má ég ekki heyra í sjúkrabíl án þess að upplifa allt sem við gengum í gegnum þegar við vorum keyrð í Reykjavík í sjúkrabíl vegna þess að líf hennar Birgittu Hrannar var að fjara út, litla hjartað hennar sló sín síðustu slög á Reykjanesbrautinni rétt áður en við lentum á spítalanum.

Mér líður ekkert vel núna, ákvað því að setjast niður og skrifa smá í dagbókina hennar, tárin renna niður kinnar mínar og mikið ofsalega sakna ég hennar mikið núna. Ég veit ég get verið þakklát fyrir það sem ég á, því ég er mjög rík en get ekki varist þeirri hugsun að ég gæti verið mun ríkari ef ég bara hefði fengið Birgittu inn í líf mitt líka. Dagurinn í dag verður tileinkaður henni og mun ég nota þennan dag í að minnast hennar með MIKLUM söknuði.

  Til Birgittu Hrannar

Elsku litla fallega dóttir mín, ég sakna þín svo mikið að ég get varla skrifað fyrir tárum. Mikið vildi ég að Guð hefði gefið mér þá hamingju að fá að hafa þig hjá mér núna, en svo er ekki og verð ég víst að sætta mig við það sem komið er. Ég hugsa til þín á hverjum degi og ég veit að þú hefur það gott í faðmi hans Braga frænda þíns, hann lofaði mér því í kveðjubréfinu sínu að hann myndi vera hjá þér það sem eftir er. Mundu bara að mamma elskar þig útaf lífinu elsku stelpan mín.

Ég kveð að sinni, þín mamma

0 | 21.1.2008 09:14:27 #

Brynja
Elsku vinkona. Ég hef ekkert nema faðmlag fram að færa. Það er satt að sársaukanum er alltaf skellt upp á borðið aftur og aftur og sérstaklega þegar svona dagar eins og afmæli, jól og aðrar hátíðir dúkka upp. Sársaukinn hefur til dæmis ekki beint dofnað hjá mér, hann er orðinn öðruvísi. Ég er orðin svo vön honum að hann stingur ekki eins mikið og var það "bara" vegna föðurmissis og það fyrir 17 árum. Ég vona að þinn sársauki breytist því þetta er óendanlega erfitt. Mundu að þú ert sterk en leyfðu okkur að bera þig líka....
0
21.1.2008 22:11:59
Elín Ása
Ég sit núna fyrir framan tölvuna og les skrifin þín og ég tárast, minninngarnar hrannast upp og ég get ekki ýmindað mér brot af því sem þið hafið þurft að þola, ég held að einungis þeir sem hafa upplifað missir barns síns gæti fundið skilning sem slíkan,en hjarta mitt brotnaði þegar ég fékk þær sorgar fréttir að Birgitta Hrönn væri farin frá okkur. Elsku Karen mín það er aðeins tvær manneskjur sem ég þekki sem ég tel vera sterkustustu persónur sem ég veit um og þú ert ein af þeim, mér þykir óendalega vænt um þig og ég bið fyrir ykkur :) Karen,Einar og börn vonandi finnið þið ljós í myrkrinu á þessum degi, kær kveðja Elín og fjölskylda
0
21.1.2008 19:10:04
Nanna
Jæja ótrúlega líður tíminn elsku Karen mín.. Alltaf fær maður hroll þegar maður hugsar til baka þegar Hlynur frændi hringdi í mig í vinnuna og sagði mér að þið Einar hefðuð misst litlu skvísuna sem þið voruð búin að bíða svo lengi eftir.. Þessi dagur á alltaf eftir að sitja í minnum okkar alla tíð og við verðum bara að lifa með sorginni.. Veit að hann elsku Bragi frændi hugsar um litluna. Eigið góðan dag í minningu Birgittu og við hugsum til ykkar.. kv Nanna og co.
0
21.1.2008 18:45:46
Dísa Maja
Knús til ykkar elsku Karen og Einar:-)
0
21.1.2008 14:47:53
hæ var að kíkja við og vildi kvitta fyrir mig
izabela | 0 | 1.10.2007 21:37:46 #
  • Hugsa til þín oft með sorg í hjarta. Heimsæki þig her annaðslagið til að minnast þín. Hvert sinn sem ég fer yfir firstu myndir af frænda þínum Kristófer hugsa ég til þín og kem þá á siðuna.
    Eyrún
    |
    23.8.2007 20:50:39
  • Mikið er þetta falleg síða hjá ykkur um litla engilinn ykkar.
    Bryndís Rósantsdóttir
    |
    0
    |
    4.8.2007 00:42:47
  • hææ.. þekki ykkur ekki neitt.. rakst bara inná þessa síðu.. en ég samhryggist innilega með hana Birgittu.. en einnig til hamingju með systur hennar:) vonandi hefur Birgitta það bara sem allrabest þarna uppi og hún varkir yfir ykkur öllum.
    Ólöf
    |
    30.5.2007 23:39:55
  • hæhæ ja ég segi það nú mikið er leiðið þitt fallegt og sumarlegt. Ég verð nú að segja að ég hugsa oft til þín þessa dagana enda ekki annað hægt þar sem ég horfi á litlu stelpuna mína, og ég hugsa hvað ég er heppin. þu kenndir mér það að lifið er gjöf en ekki sjálfsagt. ástarkveðja til þín litla englabarn.
    kolbrún ottósdóttir
    |
    0
    |
    10.5.2007 15:12:18
  • Hæ hæ litli engill ekkert smá hvað mamma þín og pabbi eru búin að gera leiðið þitt fallegt rosa gaman að sjá það kv Aníta
    Aníta
    |
    6.5.2007 19:06:07