Lykilorðið til þess að komast inn á albúmið er nafnið á hundinum okkar :)


Hæ hæ við heitum Natan Ernir og Dagur Hrafn. Við erum algjörir orkuboltar báðir tveir :)
Mamma okkar heitir Hulda og pabbi okkar heitir Ingvar. Natan fæddist á Landspítalanum þann 25. júní 2005 og var nákvæmlega 14,7 merkur. Dagur fæddist 19. mars 2008 á Landspítalanum og var nákvæmlega 11,9 merkur.
Natan elskar Playmo dót, Legó kubba, bækur, StarWars dót, ofurhetjur og skrímsli.
Dagur elskar Dublo lego kubba, að klifra, að lesa, læknadót, dótið hans Natans og að elda mat. Dagur vill vera í fanginu hennar mömmu sinnar allan daginn :)




Natan = hebreska: gjöf Guðs. (2. Sam. 12).
Ernir = ungt nafn í íslensku. Ernir - fleitalan af örn. Einnig gæti verið að fjallsnafnið Ernir hefði haft áhrif á nafngjöfina.

Dagur = dagur.
Hrafn = hrafn. Hrafn Sveinbjarnarson á Hrafnseyri (d. 1213).





TIL YKKAR FRÁ MÖMMU OG PABBA
Áður en þú varst til þráðum við þig
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til






BARN Í KRABBAMERKINU - NATAN ERNIR

Barn í krabbamerkinu er feimið og viðkvæmt að eðlisfari og vill frekar leika inni í sínu herbergi heldur en að fara út og takast á við hina ?ógnvænlegu? veröld. Þessi börn eru einnig tilfinninganæm og bresta auðveldlega í grát ef hlutirnir ganga ekki eins og þau vilja eða ef gengur á einhverju í fjölskyldunni. Þessi börn vilja ró og næði í kringum sig. Þar sem barn í krabbanum heldur sig nálægt heimili sínu má búast við að það hangi svolítið í pilsfaldinum hjá mömmu fram eftir aldri. Það getur þó verið kostur þar sem krabbinn elskar að hjálpa til. Móðureðli er ríkt í krabbabörnum og þau hugsa vel um yngri systkini sín ef þau eiga yngri systkini. Þetta barn er fædd barnapía og er vanalega með öll börnin í hverfinu í eftirdragi og hefur ofan fyrir þeim með allskyns leikjum. Þetta barn býr yfir frábæru minni og því er nám og próf leikur einn. Krabbinn getur stundum verið erfiður í skapinu og þá er best að leyfa honum að vera í friði. Stundum vorkennir barn í krabbanum sér rosalega og verður jafnvel svolítið latt en það varir yfirleitt stutt. Oftast er voðalega gaman í kringum krabbann. Barn í krabbamerkinu er yfirleitt heimakært og er mikið fyrir fjölskyldulífið og er sá einstaklingur í fjölskyldunni sem finnst skemmtilegast í fjölskylduboðum og á ættarmótum.


BARN Í FISKAMERKINU - DAGUR HRAFN

Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.




Þú ert gestur nr. 24517