Um okkur:
Arnrún Ósk fæddist 1. apríl 2005 klukkan 16:36 á Landspítalanum og var tekin með keisara.
Hún átti samt ekki að fæðast fyrr en 7. mai en ákvað að drífa sig í heiminn 5 vikum fyrr. Það voru samt nokkuð margir sem héldu að Arnrún væri aprílgabb.
EN nei svo er ekki.
Það eru skiptar skoðanir um það hverjum Arnúrn líkist. Samt er það svo að hún hefur nebban frá mömmu og hárið frá pabba.
Ásdís Birna fæddist 7. mai 2008 klukkan 18:12. Hún fæddist líka á Landspítalanum og var einnig keisara barn - þrátt fyrir að hún hafi gert tilraun til annars ;) Mamman náði að halda Ásdísi Birnu í bumbunni í 38 vikur og 2 daga - þrátt fyrir að búist hafi verið við öðru.
Og hverjum líkist svo Ásdís Birna? Það verður að segjast að í fyrstu var hún tiltölulega góð eftirlíking af stóru systur ;) en núna síðustu daga hafa heyrst raddir sem segja hana sláandi líka Bigga afa og Jóni Helga frænda - En Ellen vinkona mömmu segir hana snýtta úr nefi móður sinnar - en það á víst allt eftir að koma í ljós.
Mamma okkar heitir Erla Birna og er sagnfræðinemi við Háskóla Íslands og dagmamma og pabbi okkar heitir Magnús Örn og er húsasmiður.
Við erum svo stálheppnar að eiga æðislegan stóran bróðir sem heitir Jóhann Örn, hann er 9 ára. Við eigum líka labrador hundinn Neró.
Svo eigum við fullt af öfum og ömmum, frændum og frænkum.
Við eigum Bigga afa á Hvammstanga og afi á Lilla kisu. Ernu ömmu í Reykjavík og Jóhann afa og Sigrúnu ömmu í Reykjavík og þau eiga hundinn Feykir.
Bræður mömmu heita Jón Helgi og Ástmar. Jón frændi býr í Svíþjóð með fjölskyldunni sinni. Konan hans Jóns frænda heitir Dana og þau eiga Sebastian, Töru Líf og Tiffany Lind.
Systkini pabba heita Solla og Hallgrímur. Svo má ekki gleyma Jóa kærastanum hennar Sollu frænku ;) og æðisgengna ltila/stóra frænda okkar sem fæddist í Des 2007. Hann heitir Haukur Ingi, við köllum hann samt stundum Snáða.
Svona erum við nú heppnar.
Við settum lykilorð á síðuna - okkur fannst mjög margar heimsóknir miðað við hvað er sjaldan kvittað í gestabókina - ykkur er velkomið að biðja um lykilorðið - þá vitum við líka hverjir fylgjast með okkur ;)
|