| Velkomin :) |
| Við erum systkinin Eldar, Breki og Vaka |
|
Um okkur
Eldar fæddist þann 17 nóvember 1999 á Herlev hospital, kl. 03.50 um nóttina og var 15 merkur og 53 cm . Ég lét bíða eftir mér í 18 daga, fanst svo annsi huggulegt í mallanum á mömmu, en mamma var sett af stað og þá lét ég undan. Ég er voða rólegur og góður strákur en er samt með mikið skap og læt alveg vita ef mér mislíkar eitthvað, núna er ég orðin 7 ára og er í 1 bekk. Þetta er Rudolf Steiner skóli og er ég rosa glaður í honum. Ég er sagður mjög líkur mömmu minni, við erum líka bæði með græn augu. Breki fæddist 9 febrúar 2005 kl. 01.12 um nótt og var 13 merkur og 49 cm. Mamma og pabbi bjuggust við mér frekar seint þar sem stóri bróðir kom ansi seint, en ég kom bara 2 dögum eftir settan dag, þetta gerðist allt frekar hratt og lét ég sko heyra í mér þegar ég kom í þennann kulda hér á jörðinni. Ég er algjör pjakkur með krullur. Ég er líka mjög mikill kúrukall, get legið hjá mömmu og pabba heillengi að kúra, sérstaklega ef ég er med snudduna mína og Mæju mína að þæfa, Mæja er gamalt koddaver, frá því mamma var lítil, með Mæju býflugu á. Mér þykir rosa vænt um stóra bróður minn, hann er líka rosalega fyndinn og góður við mig, þó stríðir hann mér nú stundum. Ég er aftur á móti líkur pabba mínum, mamma og pabbi eru svo sniðug að skipta þessu svona því þá verður enginn svektur. Ég er aftur á móti með heiðblá augu sem passa vel við nafnið mitt. Vaka fæddist á Glostrup sygehus 17. mars. 2007 kl. 03.46 um nótt og var 11 merkur og 51 cm. Var hún að flýta sér í heiminn og kom 12 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag. Mamma og pabbi komu kl 02.30 upp á spítala og hittu þar ljósmóðurina Alice sem mamma hafði verið hjá. þetta voru frekar óreglulega hríðir og stundum langt á milli og hélt mamma að hún yrði fleiri tíma að þessu. 03.40 fór mamma ofan í fæðingarlaugina og fór þá vatnið og kom ég í heiminn 6 mín síðar. Mamma tók sjálf á móti mér með naflastrenginn vafin um hálsinn en voru mamma og ljósan fljótar að ná vefja honum af. Við erum sem sagt öll fædd í Danmörku, mamma okkar heitir Jóna Björg og pabbi Sindri Nöfnin okkar hafa þessa merkingu: Eldar er myndað af forliðnum "Eld" sem táknar eldur og viðskeitinu "ar" sem merkir hermaður. Eldar er því hermaður eldsins. Breki er ýmist talið að merki brotsjór eða blindsker, eða þá að það merki eldur. Vaka merkir sú sem vakir |
|
|
|
Eldar er sporðdreki 24. október - 21. nóvember Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann. Breki er vatnsberi 20. janúar - 18. febrúar Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass. Vaka er fiskur 19. febrúar - 20. mars Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum. |
| Þú ert gestur nr. 4230 |