Sandra og Katrín


Þegar við fæddumst:
Sandra fæddist á Sjúkrahúsi Akraness að morgni 25. febrúar 2005 og var 49 cm og 2,85 kg. Hún var sko á mikilli hraðferð - ekki nóg með að hún kæmi viku fyrir tímann heldur liðu innan við 5 tímar frá því að ég fékk fyrstu verkina þar til skvísan var mætt á svæðið.
Vatnið fór á miðnætti og eftir ca 2 tíma voru verkirnir komnir. Ég fór bara í sturtu og var þar í næstum klukkutíma, það hjálpaði mjög mikið. Svo var verðandi faðirinn vakinn og hann þurfti að pakka (stór mistök) og svo brunuðum við á Skagann. Á leiðinni notaði ég TENS tæki sem ég hafði fengið lánað á Grensás. Veit ekki alveg hvort það gerði neitt fyrir mig en það leiddi aðeins hugann frá hríðunum sem voru orðnar ansi slæmar.
Það tók smá tíma að láta hleypa okkur inn á Spítalann enda voru 3 fæðingar í gangi og bara ein ljósmóðir á vakt. Hringdum í mömmu og hún kom og var hjá okkur allan tímann, sem betur fer því greyið ljósan mátti ekkert vera að þessu ;) Sandra fæddist svo rétt fyrir klukkan sjö um morguninn eftir stutta rembingshríð og var sætust í heimi.


Katrín fæddist 17. september 2007 í sólstofunni hjá langömmu og langafa og var 51 cm og 3,6 kg.
Ég hafði fundið fyrir samdráttum allan daginn á ca 3-5 mínútna fresti en verkirnir voru mjög vægir þannig að ég var ekki viss hvort fæðingin væri farin af stað. Vorum hjá mömmu og pabba í kvöldmat og Sandra fékk að gista hjá þeim því mig var farið að gruna að eitthvað myndi gerast um nóttina. Um tíu leytið voru verkirnir farnir að versna og ég hringdi í ljósuna okkar í kringum ellefu. Ég gekk svo bara um gólf með heitan grjónapoka á maganum (sem gerir kraftaverk!) og hlustaði á góða tónlist og söng með á milli hríða hehe. Pétur þreif laugina og lét renna í hana á meðan. Ljósan kom svo um eitt og þá var ég með 4-5 í útvíkkun. Svo fylgdist hún bara með okkur en ég, mamma og Pétur unnum bara okkar vinnu eins og vel smurð vél :) Ég gekk um gólf og í hverri hríð sá mamma um köldu þvottapokana á ennið en Pétur nuddaði mjóbakið. Svo var farið í laugina og það var nú meiri sælan. Ég var nánast verkjalaus lengi á eftir og náði að slaka rosalega vel á. Svo lét ljósan mig standa upp og þá var eins og allt færi af stað og snúllan okkar var fædd nokkrum mínútum síðar (kl:2:40) og fékk að kúra hjá mömmu sinni í heita pottinum. Það vill svo skemmtilega til að hún var líka sætust í heimi.




Störnumerkin okkar
Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars

Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.


Meyjan 23.ágúst - 22. september

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.

Tenglar:
byggingablogg
sunnudagskaffi hjá ömmu og afa
Silja, Siggi og Ragnar