Ég heiti Eva Natalía og á litla systir sem heitir Tanja Lind:) Við erum mjög góðar vinkonur


Um mig:
Ég kom í heiminn þann 11.september 2005 kl.19:57, en ég átti að koma í heiminn 22.sept. Ég fæddist 13 merkur (3245gr) og 50 cm.

Ég eignaðist litla systir 15.desember 2008. Hún fæddist 13 merkur (3275gr)og 50,5cm.

Mamma mín heitir Oddný (83) og pabbi minn heitir Samúel (80), kallaður Sammi. Mamma er úr Reykjavík en pabbi er úr Kópavogi. Mamma er í Háskóla Íslands í master í heilsuhagfræði og pabbi er málarameistari. Mamma og pabbi giftu sig 21.júní 2008 :)

Lilypie Kids Birthday tickers

Lilypie Second Birthday tickers

Meyjan:
23. ágúst - 22.september
Barn í meyjarmerkinu er vinnusamt svo að þú getur bókað að það er nóg að gera í kringum það. Þetta barn getur látið leik líta út fyrir að vera vinna og öfugt, svo að þú veist oft ekki alveg hvað er í gangi. Ekki hafa áhyggjur samt, meyjan sér um að klára sín verkefni, hvort sem það er að laga til í herberginu eða spila skák. Barn í meyjunni er vísindalegt að eðlisfari og er líklegra til að takast á við verkefni um stjörnur og tungl heldur en að planta grænmeti í garðinn. Þessi verkefni meyjunnar munu ganga vel, því að meyjan er haldin fullkomnunaráráttu og veit ekki hvað það er að mistakast. Þessari leit að fullkomnun fylgir oft smámunasemi svo að oft má misskilja þegar að meyjunni gengur gott eitt til. Barnið í meyjarmerki vill borða baunir, en það þurfa að vera bestu fáanlegar baunir (þessu barni getur þóst vera illt í maganum). Meyjan er þrifaleg og vill hafa fínt í kringum sig og ekki bara sitt herbergi heldur allt húsið og öllu raðað í röð og reglu. Ekki slæmt að hafa eina meyju á heimilinu? En þegar allt kemur til alls þá vill barn í meyjarmerkinu helst hafa hlutina einfalda ( ís í brauðformi án dýfu og alls), skipulag og fær ánægju út úr vel unnu verki.

Bogamaðurinn:
22.nóvember-21.desember
Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.




Annað:
Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.

Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi

Þú ert gestur nr. 72683