Um Mig
Ég heiti Atli Aiden McLane. Ég kom í heiminn þann 25 júlí 2005 klukkan 20:29, ég var 2965gr og 48,3cm. Ég var með rosa mikið ljóst hár og blá augu. Mamma mín heitir Erlendsína og er úr keflavík. Ég á tvo pabba, einn heitir Michael og á heima í Massachusetts og hinn heitir Örvar og býr hérna hjá okkur í Reykjanesbæ. Ég fæddist á sjúkrahúsinu i Summerville South Carolina en bý núna hjá mömmu og pabba (örvari) á íslandi og litla bróður mínum, mömmu og pabba finnst við nátturulega vera sætastir.
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.

ÞAÐ SEM BÖRNIN KENNA OKKUR...
*Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar...
*Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni, þá er betra að gera það bak við sófann...
*Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf borðað grænmeti þegar hann var lítill...
*Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk, þá ætti þér ekki að líka það heldur...
*Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið, þá hefur þú það a.m.k. betra en ormurinn á hinum endanum...
*Ef þig langar í kettling, þá skaltu byrja á að biðja um hest...
*Það er engin skynsamleg ástæða fyrir því að föt þurfi að passa saman...
*Ef hesturinn sem þú ert að teikna líkist meira hundi, þá skaltu breyta honum í hund...
*Taktu frá pláss í röðinni handa vinum þínum...
*Bankaðu bara áfram...og áfram... þar til einhver kemur til dyra...
*Að búa um rúmið sitt er mikil tímasóun...
*Búðu reglurnar til jafnóðum...
*Það skiptir engu máli hver byrjaði...
*Haltu fast í það sem þú vilt...
*Spurðu "af hverju?" alveg þangað til þú færð svar sem þú skilur...
**Elsku Mamma mín og Pabbi minn**
*Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni
*Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir
*Ekki slá á hendurnar á mér þegar
Ég snerti eitthvað fallegt, Ég skil það ekki
*Horfðu á mig þegar að ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta
*Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera altaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök
Án þess að mér finnist ég vitlaus
*Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna.
*Mundu að ég er barn ekki fullorðin
Stundum skil ég ekki það sem þú segir
*Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég
Ekki fyrir eitthvað sem ég geri
**Við elskum þig strákurinn okkar**
|