| Velkomin á heimasíðu okkar systranna |
| Við heitum Karen Ylfa, Tinna Margrét og Þóra Kolbrún |
|
|
Þóra Kolbrún
Þóra Kolbrún stórasystir fæddist 16. okt. 2002. Var 3830 gr og 54 cm. Hárið var dökkt og mikið en augun bólgin og yfirleitt bara lokuð fyrstu dagana. Þar sem fengitíminn í sveitinni hjá okkur er í janúar þá fæddust Tinna Margrét og Karen Ylfa líka í október tæpum tveimur árum seinna. Þann 12. reyndar því Þóra vill eiga afmælisdagdaginn sinn ein. Tinna var 3375 gr en Karen 3095 gr. Báðar 50 cm. Pabbi og mamma náðu að eignast þrjú börn á rétt innan við tveimur árum. Og þykir þeim þetta vera orðið gott ;-) |
|
|
|
Tinna og Karen
Allir voru kátir og sprækir við fæðingu en þó kom fljótlega í ljós að Karen var með mjög sjaldgæfan hjartagalla sem ekki hafði sést hér á landi áður en er þó til í bókum. Á mannamáli var hann þannig að gúlpur var á ósæðinni sem sprakk inn í vinstri slegilinn og myndaði þar hringrás sem ekki átti að vera. Hluti af súrefnisríka blóðinu sem átti að fara út í líkamann fór aðeins í þessa hringrás og hefði Karen veslast upp með tímanum ef ekkert hefði verið að gert. Kransæðina þurfti að færa og var Karen líka með gat á milli efri hjartahólfanna. Því skelltu tvíburarnir sér til Boston til að laga gallann. Að vísu hefur myndast þrenging í ósæðina þar sem aðgerðin var gerð en það háir Karenu ekki og hefur verið óbreytt nokkuð lengi. Gatið milli hólfanna er enn, en ætti þó að geta lagast af sjálfu sér. Hér líta því allir vongóðir til framtíðar með bros á vör.
Pabbi okkar heitir Jóhann Þór Sigurvinsson ('71)og er tölvunarfræðingur og mamma okkar heitir Katrín Harðardóttir (´72) og er kennari. |
| Þú ert gestur nr. 54635 |